Háskóli Íslands hættir að tanngreina

Háskóla­ráð Háskóla Íslands hefur sam­þykkt að end­ur­nýja ekki verk­samn­ing sem hefur verið í gildi á milli Háskóla Íslands og Útlend­inga­stofn­unnar.

Háskóla­ráð Háskóla Íslands sam­þykkti ein­róma á fundi sínum 6. mars síð­ast­lið­inn að end­ur­nýja ekki verk­samn­ing sem verið hefur í gildi á milli Háskóla Íslands og Útlend­inga­stofn­unnar. Verk­samn­ing­ur­inn sner­ist um kaup Útlend­inga­stofn­unar á þjón­ustu Tann­lækna­deildar Háskóla Íslands í málum þar sem vafi leikur á aldri ein­stak­linga sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Frá þessu er greint á vef Háskóla Íslands í dag.

Þar kemur fram að á sama tíma og samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður í mars 2019 hafi Háskóli Íslands komið ábend­ingum til dóms­mála­ráð­herra þess efnis að bókun barn­aréttar­nefndar Sam­ein­uðu þjóðanna frá 16. nóv­em­ber 2017 kunni að gefa til­efni til þess að end­ur­skoða lög um útlend­inga, þar á meðal ákvæði um ald­urs­grein­ingar.

[links]Í umræddri bókun barn­aréttar­nefndar Sam­ein­uðu þjóðanna segir meðal ann­ars að ríki skuli not­ast við fjölþætt mat á líkam­legum og and­legum þroska barna, sem fram­kvæmt er af barna­læknum og öðrum sérfræð­ingum í þroska barna. Í sömu bókun kemur fram að ríki skuli meðal ann­ars forð­ast að not­ast við klínískar ald­urs­grein­ingar á tönnum.

Samkvæmt til­kynn­ingu Háskóla Íslands kom skól­inn sömu sjónar­miðum á fram­færi í skrif­legum athuga­semdum við þing­manna­frum­varp um breyt­ingu á lögum um útlend­inga haustið 2019.

Útlendingastofnun brást ekki við athugasemdum

Þá hefði háskólaráð haft vænt­ingar til þess að brugð­ist yrði við þessum athuga­semdum með breyt­ingum á reglum og verk­lagi Útlend­inga­stofn­unar í þá átt að heild­stætt mat á aldri umsækj­enda yrði fjölþætt­ara og að ein­ungis yrði not­ast við ald­urs­grein­ingar á tönnum í tak­marka­til­vikum.

„Þetta hefur ekki gengið eftir á því ári sem samn­ing­ur­inn hefur verið í gildi. Af þeirri ástæðu þótti háskólaráði rétt að end­urnýja ekki umræddan verk­samn­ing við Útlend­inga­stofnun,“ segir á vef HÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár