„Stöðvum tanngreiningar“ – Vilja fella þjónustusamning úr gildi

Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun þar sem skorað er á háskóla­ráð að standa vörð um mann­rétt­indi flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd með því að fella þjón­ustu­samn­ing HÍ við Útlend­inga­stofnun úr gildi.

Röskva, nem­enda­fé­lag við Háskóla Íslands, hefur hrundið af stað und­ir­skrifta­söfnun þar sem skorað er á háskóla­ráð að fella þjón­ustu­samn­ing við Útlend­inga­stofnun um ald­urs­grein­ingar á fylgd­ar­lausum börnum með tann­grein­ingum úr gildi og standa vörð um mann­rétt­indi flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Ástæðan fyrir áskor­un­inni er að þann 6. febr­úar næst­kom­andi mun háskóla­ráð fjalla um fyrr­nefndan þjón­ustu­samn­ing. Þegar þetta er skrifað hafa 673 skrifað undir.

Þá segir í áskor­un­inni að lengst af hafi tann­grein­ingar og rann­sóknir tengdar þeim farið fram án vit­neskju stjórn­sýslu Háskól­ans, án þjón­ustu­samn­ings og án vit­neskju almenn­ings, í gegnum lektor og tann­lækni við Tann­lækna­deild. Þegar aðgerða­sinnar og stúd­entar sem berj­ast fyrir rétt­indum flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hafi stigið fram og komið upp um fram­kvæmd­ina hafi háskóla­ráð ákveðið að semja við Útlend­inga­stofnun, frekar en að stöðva þjón­ust­una.

Um að ræða viðtekna skoðun mannréttindasamtaka um heim allan

„Tann­grein­ingar eru vafa­samar af mörgum ástæðum, þar má helst benda á að ýmis alþjóða­sam­tök hafa mælt gegn þess­ari fram­kvæmd, m.a. barna­rétt­inda­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNICEF, og Rauði kross­inn. Þetta er því ekki ein­göngu spurn­ing um sið­ferði nokk­urra aðgerða­sinna, heldur við­tekna skoðun mann­rétt­inda­sam­taka víðs vegar um heim,“ segir í áskor­un­inni.

[links]Þá telja for­svars­menn und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar tann­grein­ingar jafn­framt stinga í stúf við vís­inda­siða­reglur Háskóla Íslands, en í því sam­hengi er bent ákvæði greinar í regl­unum sem byggja á fimm þáttum: Virðingu fyrir mann­eskj­unni, vel­ferð, skað­leysi, rétt­læti og heið­ar­leika og vönd­uðum vís­inda­legum vinnu­brögðum. „Það má með sanni segja að tann­grein­ingar upp­fylla ekki þessar kröfur. Skrif­stofa rekt­ors og aðilar innan HÍ hafa haldið því fram að tann­grein­ingar falli ekki undir vís­inda­siða­regl­urnar, vegna þess að þær telj­ast ekki til rann­sókna. Því eru stúd­entar og aktí­vistar ósam­mála og telja það ekki rétt. Tann­grein­ingar falla undir þessar reglur, ekki ein­göngu vegna þess að þær eru fram­kvæmdar innan veggja HÍ og nið­ur­stöður þeirra hafa verið gefnar út á bréfs­efni HÍ, heldur einnig vegna þess að nið­ur­stöður þeirra hafa verið birtar í fræði­legum greinum.“

Spurning um áreiðanleika

Enn fremur segir í áskor­un­inni að vand­inn við tann­grein­ingar felist þó ekki ein­göngu í sið­ferði­legum vafa­málum sem fylgja þeim, heldur séu vik­mörkin ein­fald­lega of mikil til að þær geti talist áreið­an­legar, sér­stak­lega þegar um sé að ræða ald­urs­mat á ein­stak­lingum í kringum átj­ánda ald­ursárið.

Umrædd vik­mörk séu 1,4 ár, og þó Útlend­inga­stofnun vilji meina að nið­ur­stöður tann­grein­inga hafi ekki áhrif á umsókn þeirra ein­stak­linga sem gang­ast undir þær, þá hafi nú þegar komið fram dæmi um ein­stak­linga sem vísað hafi verið úr landi vegna nið­ur­staðna úr tann­grein­ingum sem reynd­ust rangar. Upplýst sam­þykki sé sér­stakt vand­kvæði hér, því til þess að veita upp­lýst sam­þykki sé nauð­syn­legt að rann­sóknin hafi ekki nei­kvæð áhrif á líf og stöðu ein­stak­lings innan sam­fé­lags. Óháð stöðu þeirra í sam­fé­lag­inu geti börn ekki veitt upp­lýst sam­þykki.

Rýri traust Háskóla Íslands

Auk þess er bent á að allt bréfs­efni Útlend­inga­stofn­unar sé gefið út á íslensku, án þess að hæl­is­leit­endur fái færi á að læra tungu­málið. Þau sem und­ir­gang­ast tann­grein­ingar fái því ekki einu sinni tæki­færi til að túlka nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sjálf.

„Háskóli Íslands er stærsta mennta­stofnun lands­ins og hefur fram­kvæmd tann­grein­inga óhjá­kvæmi­lega innan skól­ans áhrif á við­horf flótta­manna til Íslands. Ein­stak­lingar sem hafa farið í tann­grein­ingar hafa þegar lýst því yfir að þeir sjái ekki fram á að geta treyst HÍ framar, hvað þá stundað nám þar. Að fram­kvæma tann­grein­ingar við HÍ hefur því afger­andi áhrif á rétt flótta­fólks til að stunda nám við HÍ, sem og nei­kvæð áhrif á lík­am­lega og and­lega heilsu þeirra,“ segir í áskor­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár