Börn eiga alltaf rétt á stuðningi og heildstæðu mati

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Vinstri grænna hefur lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingar á útlend­inga­lögum.

„Börn eiga að mínu mati og að mati Evr­ópu­ráðs­ins og Evr­ópu­ráðs­þings­ins - og í sam­ræmi i við Barna­sátt­mála S.Þ.- alltaf rétt á stuðn­ingi og aðstoð í sam­ræmi við stöðu sína sem börn.“

Þetta segir Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, í færslu á Facebook síðu sinni, en hún hefur lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingu á útlend­inga­lögum. Með frum­varp­inu er lagt til að horfið verði frá ald­urs­grein­ingu með lík­ams­rann­sókn og horft fremur til heild­stæðs mats.

„Ald­urs­grein­ingar á borð við tann­grein­ingar (eins og gert er hér á Íslandi) beina­mynda­tökur og jafn­vel skoðun kyn­færa ( eins og leyfi­legt er í Danmörku ! ) hafa verið not­aðar til að greina aldur barna til að meta hvort við­kom­andi ein­stak­lingur eigi rétt á til­tek­inni þjón­ustu í þeim löndum sem þau leita eftir vernd. Þessar aðferðir hafa verið gagn­rýndar um ára­bil,“ segir Rósa í Facebook færslu sinni. 

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að mark­miðið sé að breyta fram­kvæmd ald­urs­grein­ingar, og horfa fremur til þess að vernda betur mann­rétt­inda þeirra sem umræðir. „Í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum megi leggja fyrir útlend­ing að hann gang­ist undir lík­ams­rann­sókn ef enn leikur vafi á aldri við­kom­andi og fyrir liggur að öðrum mögu­legum úrræðum hafi verið beitt við hið heild­stæða mat,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í grein­ar­gerð­inni segir enn fremur, að lík­ams­rann­sóknir hafi verið gagn­rýndar, meðal ann­ars fyrir óná­kvæmni, og þá hafi einnig komið til­mæli frá alþjóða­stofn­unum um að virða alþjóða­samn­inga og mann­rétt­indi þegar börn eiga í hlut. „Víða hafa ald­urs­grein­ingar byggðar á lík­ams­rann­sóknum verið gagn­rýndar, bæði vegna sið­ferð­is­legra þátta og vís­inda­legrar óná­kvæmni. Þá hafa komið fram til­mæli frá Evr­ópu­ráð­inu, Evr­ópu­ráðs­þing­inu og ráð­herra­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins þar sem meg­in­inn­tak þeirra er að þegar vafi leikur á því hvort umsækj­endur sem sækja um alþjóð­lega vernd séu börn skuli þeir ávallt metnir sem börn en ekki sem full­orðnir, og að beitt skuli heild­stæðu mati til að reyna að kom­ast að aldri þeirra en ekki tann­grein­ingum sem eru taldar afar óáreið­an­leg aðferð til að mæla aldur barna,“ segir í greina­gerð­inni.

Rósa Björk seg­ist vona að Alþingi sam­þykki frum­varpið. „Frum­varpi mínu um að heild­stætt mat verði frekar notað heldur en ald­urs­grein­ingar á borð við tann­grein­ingar eða ann­ars konar lík­ams­rann­sóknir var dreift í dag. Ég vona að Alþingi muni sam­þykkja þetta góða þing­mál mitt. Börnum sem leita eftir alþjóð­legri vernd til heilla. Og okkur öllum sem fá þau til okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár