Biður Jón Steindór afsökunar

Benedikt Jóhann­es­son hefur beðið þing­mann Við­reisnar afsök­unar á orðum sínum. „Ummæli mín voru án alls sam­ráðs við Jón og í óþökk hans.“

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhann­es­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bene­dikt Jó­hann­es­son fyrr­ver­andi for­maður Viðreisn­ar hefur beðið Jón Steindór Valdi­mars­son þing­mann flokks­ins afsök­unar fyrir orð sem hann lét falla í sam­tali við mbl.is í vik­unni.

Hann sagði í við­tal­inu að um hann­aða atburða­rás hefði verið að ræða þegar Jón Steindór, þing­maður flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, hefði verið færður úr fyrra sæti sínu sem væri lík­legt þing­sæti, yfir í ólík­legt sæti í Reykja­vík norður.

Jón Steindór brást við þessum orðum Bene­dikts á Facebook í gær­kvöldi en þar sagði hann að það hefði hryggt hann meira en orð fá lýst að „Benedikt Jóhann­es­son, sem ég hef talið góðan félaga og vin, hafi valið þá leið að gera for­ystu og stofn­anir flokks­ins tor­tryggi­legar í kjöl­far þess að hann fékk ekki vilja sínum fram­gengt við upp­still­ingar á lista“.

„Jón Steindór er drengur góður“

[links]Benedikt hefur nú beðið Jón Steindór afsök­unar, eins og fyrr segir, en hann greinir frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

„Í sam­tali við mbl.is fyrr í vik­unni nefndi ég Jón Steindór Valdi­mars­son og færslu hans á lista Við­reisnar, úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi í Reykja­vík Norður. Ummæli mín voru án alls sam­ráðs við Jón og í óþökk hans.

Jón Steindór er drengur góður og við höfum lengi barist fyrir sama mál­stað. Ég hef beðið hann afsök­unar per­sónu­lega á ummælum mínum um hann og geri það hér með einnig opin­ber­lega,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár