Tekjur ríkisins af kolefnisgjaldi aldrei verið jafn miklar og í fyrra

Ríkið hefur millj­arða­tekjur af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, bæði frá upp­boðum á los­un­ar­heim­ildum og af kolefn­is­gjaldi. Féð er ekki eyrna­merkt lofts­lags­að­gerðum en fjár­mála­ráð­herra áætlar að fram­lög til lofts­lags­mála nemi yfir 15 millj­örðum í ár.

Frá árinu 2010 hafa tekjur rík­is­ins af inn­heimtu kolefn­is­gjaldi tæp­lega 45,6 millj­örðum króna. Tekjur rík­is­ins af gjald­inu hafa vaxið jafnt og þétt og hafa aldrei verið jafn miklar og í fyrra þegar þær námu 5.770 millj­ónum króna. Sú tala er byggð á áætlun fjár­laga 2022 sem gefin voru út í nóv­em­ber en rík­is­reikn­ingur árs­ins er ekki kom­inn út. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata um tekjur af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Árið 2010 hófst inn­heimta kolefn­is­gjalds og námu tekjur rík­is­ins það ár vegna kolefn­is­gjalds 1.914 millj­ónum. Krónu­tölu­hækk­unin á tíma­bil­inu er því næstum þre­föld. Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að kolefn­is­gjald sé lagt á gas- og dísilolíu, bensín, brennslu­olíu og jarð­ol­íu­gas og annað loft­kennt vetniskolefni. Þrátt fyrir að tekjur tekjur rík­is­ins af kolefn­is­gjaldi hafi auk­ist umtals­vert frá því það að inn­heimta hófst er ekki þar með sagt að notkun elds­neytis og gass hafi auk­ist á tíma­bil­inu enda hefur gjaldið hækkað.

Sala á gjaldskyldu eldsneyti rokkandi

Kolefn­is­gjaldið er hluti af Aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum og er ætlað að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis og þar með losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Á vef stjórn­ar­ráðs­ins er birtur árang­urs­mæli­kvarði fyrir aðgerð­ina þar sem borin er sala á jarð­efna­elds­neyti sem lagt er kolefn­is­gjald. Þar sést að árið 2020 voru 664,6 þús­undir lítra af jarð­efna­elds­neyti seldir árið 2019 en 557,9 þús­undir lítra árið 2020. Salan dróst því saman um 18 pró­sent á milli þess­ara ára. Orku­skipti í sam­göngum hafa þau áhrif að veru­lega dregur úr sölu á jarð­efna­elds­neyti en hafa ber í huga í sam­an­burði á árunum 2019 og 2020 að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn dró veru­lega úr öllum umsvifum á árinu 2020.

Í upp­hafi árs 2018 var kolefn­is­gjald hækkað um 50 pró­sent og tekjur rík­is­ins juk­ust úr 3.806 millj­ónum árið 2017 í 5.317 millj­ónir árið 2018. Þegar þær tölur eru skoð­aðar nánar sést að tekjur rík­is­ins af gjald­inu juk­ust um 53.5 pró­sent sem er umfram gjald­hækk­un­ina sem þýðir að sala á gjald­skyldu elds­neyti jókst á milli þess­ara ára.

Gjaldið var aftur hækkað um 10 pró­sent í upp­hafi árs 2019. Á milli áranna 2018 og 2019 jókst inn­heimta kolefn­is­gjalds um 6,8 pró­sent, fór úr 5.317 millj­ónum í 5.353 millj­ónir. Tekju­aukn­ingin var því hlut­falls­lega minni en hækkun gjalds­ins sem þýðir að salan á gjald­skyldu elds­neyti minnk­aði á milli þess­ara ára. Gjaldið var enn aftur hækkað í upp­hafi árs 2020 um 10 pró­sent. Tekjur rík­is­ins lækk­uðu aftur á móti milli ára og námu 5.332 millj­ónum árið 2020.

Uppboð á losunarheimildum skilað á ellefta milljarð

Ríkið hefur einnig tekjur af upp­boði los­un­ar­heim­ilda gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og hefur haft frá árinu 2019. Samtals nema tekjur rík­is­ins af upp­boði los­un­ar­heim­ilda tæp­lega 10,5 millj­örðum króna á tíma­bil­inu 2019 til 2021. Samkvæmt bráða­birgða­upp­lýs­ingum námu tekjur rík­is­ins í fyrra 847 millj­ónum króna og lækk­uðu þær umtals­vert frá fyrri árum, þær voru 6.067 millj­ónir árið 2020 og 3.576 millj­ónir árið 2019.

Ríkið á rétt á hlut­deild í tekjum af upp­boði los­un­ar­heim­ilda sam­kvæmt EES-samn­ingnum. Evr­ópu­sam­bandið hefur sett það sem við­mið að að minnsta kosti 50 pró­sent af tekjum sem fást frá upp­boði á los­un­ar­heim­ildum renna til lofts­lags­að­gerða. EFTA-ríkin eru aftur á móti und­an­skilin þeirri kvöð að þurfa að fylgja því við­miði. „Því felur þátt­taka Íslands í sölu los­un­ar­heim­ilda ekki í sér skuld­bind­ingu til þess að ráð­stafa ákveðnu hlut­falli af tekjum af sölu los­un­ar­heim­ilda til lofts­lags­mála,“ segir í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Tekj­urnar af upp­boði los­un­ar­heim­ilda renna því beint í rík­is­sjóð og eru ekki eyrna­merktar lofts­lags­að­gerðum. Það sama gildir um tekjur af inn­heimtu kolefn­is­gjaldi.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi námu tekjur rík­is­ins frá upp­boði á los­un­ar­heim­ildum 920 millj­ónum króna og tekjur frá kolefn­is­gjaldi námu 2.147 millj­ónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár