Rannsókn á fjárkúgun gagnvart forsætisráðherra ekki enn lokið

Rannsókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á til­raun til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra er ekki enn lokið. Þetta stað­festir Friðrik Smári Björg­vins­son, yfir­maður hjá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar, í sam­tali við Kjarnann.

Friðrik Smári segir málin enn vera í rann­sókn, þau séu langt komin en rann­sókn sé ekki enn lokið. Ekki sé hægt að segja til um það hvenær rann­sóknum ljúki. Nið­ur­stöður líf­sýna­rann­sókna liggja fyrir en enn á eftir að ljúka skýrslu­tökum.

Málin sem rann­sóknin snýr að eru í raun þrjú. Það fyrsta snýst um til­raun systr­anna Hlínar Ein­ars­dóttur og Malínar Brand til þess að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra, sem komst upp um í byrjun júní síð­ast­lið­ins. Í lok maí voru syst­urnar hand­teknar eftir að hafa sent Sigmundi Davíð fjár­kúg­un­ar­bréf, þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim pen­inga, átta millj­ónir króna, og skildi eftir á til­teknum stað syðst í Hafn­ar­firði, þar sem þær voru hand­teknar. Hlín hefur játað að hafa ætlað að kúga fé út úr Sigmundi Davíð en Malín sagð­ist í yfir­lýs­ingum ekki hafa skipu­lagt fjár­kúg­un­ina heldur aðeins aðstoðað systur sína við að ná í pen­ing­ana sem áttu að fást út úr kúg­un­inni. Þessu hefur Hlín mót­mælt.

Skömmu síðar kom upp annað mál, þar sem fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Hlínar kærði syst­urnar einnig fyrir fjár­kúgun, sem hefði átt sér stað í apríl. Hann sagði syst­urnar hafa hótað að kæra hann fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki 750 þús­und krónur. Syst­urnar komu þá fram og sögðu að seinna málið hefði verið sátt í nauðg­un­ar­máli. Nokkrum dögum eftir að mað­ur­inn lagði fram kæru lagði Hlín fram kæru gegn honum fyrir nauðgun.

Sögðust hafa upplýsingar sem kæmu forsætisráðherra illa


Upp­lýs­ing­arnar í fjár­kúg­un­ar­bréf­inu áttu að koma Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra illa, og hótað var að gera þær opin­berar í bréf­inu sem stílað var á eig­in­konu hans. Þessar upp­lýs­ingar snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka. Björn Ingi, aðal­eig­andi Pressunnar, er með sterk tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hann starf­aði á árum áður sem aðstoð­ar­maður þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra flokks­ins, Halldórs Ásgríms­sonar, og sat fyrir hönd hans í borg­ar­stjórn Reykja­víkur um skeið. Björn Ingi til­kynnti hins vegar að hann væri hættur afskiptum af stjórn­málum í byrjun árs 2008 og hefur síðan þá starfað við fjöl­miðla.

Vísir greindi fyrst frá því að upp­lýs­ing­arnar hefðu átt að tengj­ast MP banka. Þar var rætt við Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóra Pressunnar, um rúm­lega 60 milljón króna hækkun á skuldum félags­ins á árinu 2013. Þar segir hann að lík­lega sé um að ræða yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eign­ar­halds­fé­lag­inu Vef­press­unni ehf. Hann stað­festir að yfir­drátt­ur­inn sé hjá MP banka. Arnar hafn­aði strax öllum tengslum Pressunnar við for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafn­aði einnig að lána­fyr­ir­greiðsla MP banka hafi verið fengin að til­stillan Sig­mundar Davíðs eða aðilum tengdum honum.

Fyrst um sinn voru sagðar fréttir af því að kúg­unin hafi snú­ist um upp­lýs­ingar um að Sig­mundur Davíð hefði tengst fjár­mögnun á kaupum Björns Inga á DV. Björn Ingi setti inn færslu á Facebook þriðju­dag­inn 2. júní. Þar sagði hann: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sálar.“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu sama dag þar sem sagði m.a.: „ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt.“ Síðar setti for­sæt­is­ráð­herra svo inn stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann ítrek­aði að hann hefði „ekki nokkra ein­ustu aðkomu að eig­enda­skiptum á DV og veit ekk­ert um aðdrag­anda og gang þeirra mála.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár