Þú ert aldrei einn á ferð

Hundruð mynda úr eft­ir­lits­mynda­vélum komu lög­reglu á sporið við leit­ina að til­ræð­is­mann­inum Omar Hussein sem varð tveimur mönnum að bana í Kaup­manna­höfn í febr­úar í fyrra. Flestar mynd­anna sem lög­reglan not­að­ist við voru ólög­lega teknar.

Að minnsta kosti hálf milljón öryggismyndavéla eru í Danmörku, og eru eftirlitsmyndavélar við og í heimahúsum og sumarhúsum ekki meðtaldar. Hver sem er getur gengið inn í næstu verslun og keypt myndavél án þess að gefa upp ástæður.
Að minnsta kosti hálf milljón örygg­is­mynda­véla eru í Danmörku, og eru eft­ir­lits­mynda­vélar við og í heima­húsum og sum­ar­húsum ekki með­taldar. Hver sem er getur gengið inn í næstu verslun og keypt mynda­vél án þess að gefa upp ástæður. Mynd: EPA

Eft­ir­lits­mynda­vél­arnar eru alls staðar: í versl­unum, bönkum og fyr­ir­tækjum, við íbúð­ar­hús, á götum og torgum,við sum­ar­bú­staði, utan dyra og innan. Víða er það svo að fólk getur vart hreyft sig spönn frá rassi án þess að ein mynda­vél, og iðu­lega fleiri, festi það í tölvu­tengdu minni sínu. 

Talið er að í Danmörku séu að minnsta kosti hálf milljón slíkra véla, einn af yfir­mönnum rann­sókn­ar­lög­regl­unnar telur reyndar að þær séu miklu fleiri. Þá eru eft­ir­lits­mynda­vélar við og í heima­húsum og sum­ar­húsum ekki með­taldar. Í Kaup­manna­höfn eru hátt á fjórða hund­ruð þús­und slíkra véla sem fylgj­ast með ferðum borg­ar­anna. Eigendur versl­ana og bens­ín­stöðva setja upp eft­ir­lits­mynda­vélar til að reyna að draga úr þjófn­uðum og upp­tök­urnar er jafn­framt hægt að nota ef þjófarnir nást. Bank­arnir nota vélar til fylgj­ast með við­skipta­vin­unum, lög­reglan notar þær, til að fá gleggri mynd af atburða­rásinni ef til rysk­inga kemur á götum úti. Flestir eru á einu máli um gagn­semi mynda­vél­anna og kann­anir sýna að yfir­gnæf­andi meiri­hluti almenn­ings kærir sig koll­óttan þótt fylgst sé með honum, telur vél­arnar auka öryggi sitt.

Engin skráning

Eins og áður sagði eru eft­ir­lits­mynda­vél­arnar yfir og allt um kring og fjölgar ört. Ein­faldar eða með mörg „augu” dýrar og ódýrar, úrvalið er mikið og allir geta fundið það sem hentar. Í Danmörku getur hver sem er gengið inn í næstu verslun og keypt slíkt upp­töku­tæki, án þess að nokkur spyrji til hvers eigi að nota grip­inn. Engin skrán­ing af neinu tagi fer fram, kassa­kvitt­unin gildir sem ábyrgð­ar­skír­teini, eins og lög gera ráð fyrir, en það er allt og sumt. Nafn kaup­anda er ekki skráð, nema hann biðji sér­stak­lega um það, og enn síður hvar vélin verði sett upp. Selj­endur hafa enga heim­ild til að spyrja um og skrá slíkt.

Ekki skortir reglurnar

Árið 2007 voru í Danmörku sett lög um notkun eft­ir­lits­mynda­véla (videoovervågning). Þar er kveðið á um hvar og hvernig megi nota mynda­vél­arnar, hvar megi taka upp og varð­veita myndefni, hvar sé leyfi­legt að nota mynda­vélar til að fylgj­ast með án þess að efnið sé varð­veitt. Ef mynda­vélar eru til staðar þar sem almenn­ingur, aðrir en starfs­fólk fer um, t.d. í versl­unum er skylt að hafa uppi skilti sem segir að eft­ir­lits­mynda­vélar séu í notkun. Starfs­fólk á vinnu­stöðum sem almenn­ingur fer ekki um að jafn­aði þarf að sam­þykkja mynda­véla­notkun skrif­lega. Árið 2010 var bætt við lögin ákvæði um að leigu­bílar skuli und­an­tekn­inga­laust vera með upp­töku­búnað.

Lögreglan treysti á eftirlitsmyndavélar við leitina

Rúmt ár er liðið frá til­ræð­unum í Kaup­manna­höfn þar sem Omar Hussein varð tveimur mönnum að bana.

Strax eftir fyrra til­ræðið, síð­degis á laug­ar­degi við sam­komu­hús á Aust­ur­brú hófst mikil leit. Fjöldi fólks hafði næstu klukku­stund­irnar sam­band við lög­reglu sem hafði í fjöl­miðlum aug­lýst eftir upp­lýs­ingum sem að gagni gætu komið. Brátt kom í ljós að helstu hald­reipi lög­regl­unnar voru upp­tökur úr eft­ir­lits­mynda­vélum, og vitn­is­burður leigu­bíl­stjóra sem ekið hafði til­ræð­is­mann­inum að húsi á Norð­ur­brú eftir morðið á Aust­ur­brú. Þrátt fyrir að lög­reglan hafi fljót­lega vitað hver til­ræð­is­mað­ur­inn var tókst honum að kom­ast að sam­komu-og bæna­húsi gyð­inga í mið­borg Kaup­manna­hafnar skömmu eftir mið­nætti 15. febr­úar. Þar skaut hann gæslu­mann til bana en flúði síðan. Omar Hussein féll nokkrum klukku­stundum síðar fyrir skotum lög­reglu.

Engar upplýsingar til um staðsetningu og eigendur

Í ljósi þess hve mik­il­vægar myndir úr eft­ir­lits­vélum reynd­ust í leit lög­regl­unnar að Omar Hussein hefur mikil athygli síðan beinst að þessu mik­il­væga ”hjálp­ar­tæki” eins og einn af yfir­mönnum lög­regl­unnar hefur kallað mynda­vél­arnar. Í löngu við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði þessi sami yfir­maður að vél­arnar væru að sínu mati ómet­an­legar fyrir störf lög­regl­unnar. En hann sagði jafn­framt nauð­syn­legt að lög­reglan byggi yfir upp­lýs­ingum um hvar eft­ir­lits­mynda­vélar væru stað­settar og hver hefði aðgang að þeim, slíkt gæti skipt sköpum þegar hver mín­úta skipti máli. Í ljós hefði komið 14. febr­úar í fyrra að litlar sem engar upp­lýs­ingar væru til um þær þrjú til fjögur hund­ruð eft­ir­lits­mynda­vélar sem væru vítt og breytt um Kaup­manna­höfn. ”Það er mynda­vél á hverju horni en lög­reglan hefur ekki hug­mynd um hver á þessa vél og enn síður hvar hægt er að skoða upp­tök­urnar”.

Hvað má mynda og hvað ekki?

Í áður­nefndum lögum frá árinu 2007 er til­greint hvað má mynda og hvað ekki. Myndavél í verslun má ekki, sam­kvæmt lög­unum, vera stillt þannig að á myndum sjá­ist fólk sem gengur um götu eða gang­stétt fyrir framan. En það eru einmitt slíkar myndir sem komu lög­regl­unni að mestu gagni við leit­ina að Omari Hussein. Kona, sem á og rekur verslun í mið­borg Kaup­manna­hafnar, og veitti mik­il­væga aðstoð með því að hringja til lög­regl­unnar hafði ekki hug­mynd um að myndir sem lög­reglan taldi mjög mik­il­vægar væru í raun ólög­legar. ”Ég fékk fyr­ir­tæki til að setja upp þessa vél í búð­inni og hef aldrei velt því fyrir mér að þetta gæti verið ólög­legt” sagði konan. Á upp­töku sést hvar maður sem reynd­ist svo vera Omar Hussein gengur fram­hjá búð­inni. Þetta er ólög­leg upp­taka, mynd­hornið alltof gleitt og ein­skorð­ast ekki við það sem sést inn­an­dyra. Þetta er aðeins eitt dæmi.

Ráðherrann vill samvinnu um skrá

Lög­reglan hefur í við­tölum sagt að það sé algjör­lega úti­lokað að skoða þær mörg hund­ruð þús­und mynda­vélar sem vaka yfir borg­urum Dan­merkur til þess að kanna að þær myndi aðeins til­tekin svæði, til dæmis inni í versl­unum. Slíkt kosti óhemju mann­afla og fjár­muni, sem lög­reglan ráði ekki yfir, og þar að auki væri eig­endum í lófa lagið að breyta still­ingum vél­ar­innar um leið og ”mynda­véla­eft­ir­litið” væri horfið á braut. Nefnd á vegum lög­regl­unnar hefur und­an­farna mán­uði kannað hvernig eft­ir­lits­mynda­vélar geti best gagn­ast lög­regl­unni. Nefndin skil­aði dóms­mála­ráð­herra áliti sínu í vik­unni. Þar er lagt til að kerf­is­bundið verði skráðar þær vélar, sem telj­ast á almanna­færi og jafn­framt hvern lög­reglan geti haft sam­band við til að sjá upp­tökur þegar svo ber undir. Nefndin leggur til að þetta verði eins árs til­rauna­verk­efni og dóms­mála­ráð­herr­ann hefur lýst sig fylgj­andi þess­ari hug­mynd. Nefndin nefnir ekki einu orði hvað sé lög­legt varð­andi upp­tök­urnar, nokkrir þing­menn hafa í við­tölum sagt að rétt­ast væri að breyta lög­unum. Þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins sagði að eng­inn biði skaða af því þótt á ein­hverjum myndum bregði fyrir fólki á gangi en slíkt gæti gagn­ast lög­regl­unni, eins og komið hefði í ljós 14. febr­úar í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár