Alvarlegt að einn starfsmaður hafi tekið ákvörðun um að stöðva umfjöllun

Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir lög­maður segir að það sé verið að vega og meta hvort að Stundin og Reykja­vik Media stígi ein­hver fleiri skref vegna lög­banns­máls­ins svo­kall­aða. Í mál­inu var lög­banni beitt til að stöðva umfjöllun um þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

„Gagnvart mínum skjól­stæð­ingum þá erum við bara að vega og meta,“ sagði Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir, lög­maður Stund­ar­innar og Reykja­vík Media, um hvort að fleiri skref á borð við skaða­bóta­mál verði stigin vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar fyrir rúmri viku í lög­banns­mál­inu svo­kall­aða.

Í dómnum, sem féll 22. mars síð­ast­lið­inn, var öllum kröfum GlitnisHoldCo um að hefta tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðl­anna til að vinna efni úr gögnum sem áttu upp­runa sinn innan úr kerfum Glitnis í mál­inu hafnað.

Sigríður Rut var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í lið­inni viku og ræddi þar dóm Hæsta­réttar.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Sigríður Rut sagði í þætt­inum sagði að henni fynd­ist rétt að taka fram að fyrir liggi laga­frum­varp sem muni breyta aðgerðum eins og þeim sem beitt var í mál­inu. Ef ein­hver fer fram á lög­bann á tján­ingu þá mun ákvörðun um málið fær­ast frá sýslu­manni og til dóm­stóla verði frum­varpið að lögum.

Þrír hlutir hafi verið að í því máli sem Hæsti­réttur dæmdi nýverið í. Í fyrsta lagi að starfs­maður fram­kvæmda­valds­ins hefði tekið ákvörðun um að stöðva umfjöll­un­ina. Enginn dóm­stóll á nokkru stigi féllst á neinar kröfur um lög­bannið. „Þarna var einn starfs­maður sem tók þessa ákvörðun og stopp­aði þessa umfjöllun í heilt ár. Það er mjög alvar­legt.“

Nú sé hins vegar búið að lag­færa þetta í fram­komnu frum­varpi þannig að málið fari strax til dóm­stóla.

[adspot]Í öðru lagi gerir hún athuga­semd við tíma­lengd­ina. „Þetta ár sem fer í þetta.[...]Lög­bannið var lagt á í októ­ber og féll niður lögum sam­kvæmt þegar Lands­réttur stað­festi dóm hér­aðs­dóms að það væri ekki lög­legt.“

Hún bindur vonir við það að frum­varpið lag­færði máls­með­ferð­ina og tím­ann sem fer í það.

Í þriðja lagi gerir hún athuga­semd við aðferð­ar­fræð­ina í mál­inu. Það eigi ekki að gilda sömu sjón­ar­mið um óþekktan borg­ara og ráð­herra sem sé í fram­boði. „Þú getur ekki lagt þetta að jöfnu innan sömu dóm­kröf­unnar.“

Í mál­inu hafi dóm­krafan verið allt og víð­tæk vegna þess að það var verið að krefj­ast þess að allt sem hugs­an­lega gæti verið í gögnum Glitnis væri bannað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár