Morgunblaðið með minna en 20 prósent lestur í fyrsta sinn síðan að mælingar hófust

Lestur Frétta­blaðs­ins hefur lækkað um hálft pró­sentu­stig að með­al­tali síð­ast­liðið ár og hefur aldrei verið minni. Haldi þessi þróun áfram fer lestur blaðs­ins undir 30 pró­sent fyrir árs­lok. 3,5 pró­sent lands­manna sögð­ust lesa DV í síð­ustu mæl­ingu blaðs­ins.

Davíð Oddsson er annar ritstjóra Morgunblaðsins og hefur verið það frá haustinu 2009. Davíð er sá á myndinni sem er ekki með hatt.
Davíð Oddsson er annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og hefur verið það frá haustinu 2009. Davíð er sá á mynd­inni sem er ekki með hatt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lestur Morg­un­blaðs­ins, stærsta áskrift­ar­blaðs lands­ins, mæld­ist 19,9 pró­sent í síð­asta mán­uði. Það er í fyrsta sinn sem heild­ar­lestur þessa 107 ára gamla blaðs mælist undir fimmt­ungi í lestr­ar­könn­unum Gallup. Vorið 2009, þegar nýir eig­endur komu að Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, var lestur þess yfir 40 pró­sent.

Hjá lands­mönnum á aldr­inum 18 til 49 ára mælist lestur blaðs­ins nú tíu pró­sent en í byrjun árs 2009 lásu um þriðj­ungur lands­manna í þeim ald­urs­hópi blaðið.

Þetta má lesa út úr nýjum tölum Gallup um lestur prent­miðla sem birtar voru í dag.

Þessi þróun, hríð­minnk­andi lestur, hefur átt sér stað þrátt fyrir að Morg­un­blaðið hafi síð­ast­liðin ár verið frí­blað á fimmtu­dögum. Í því felst að blað er í aldreif­ingu þá daga og fer inn á heim­ili tug­þús­unda sem eru ekki áskrif­endur. Almenn áskrift að Morg­un­blað­inu kostar í dag 7.982 krónur á mán­uði, eða 95.784 krónur á ári.

[adspot]Tap Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og fleiri miðla, á þeim ára­tug sem leið frá því að nýir eig­endur tóku yfir móð­­ur­­fé­lagið Þór­s­­mörk á árinu 2009, og fram til loka árs 2019, var sam­tals um 2,5 millj­­­örðum króna. Stærstu eig­endur Árvakurs eru tengdir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum auk þess sem Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, er skráður fyrir rúm­lega 20 pró­sent eign­ar­hlut.

Enn fækkar lesendur Fréttablaðsins

Frétta­blaðið, frí­blað sem dreift er í 85 þús­und ein­tökum án end­ur­gjalds á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Akureyri fimm daga vik­unnar, hefur aldrei verið minna lesið en í síð­asta mán­uði.

Alls sögð­ust 32,1 pró­sent lands­manna lesa Frétta­blaðið og dróst lest­ur­inn saman um 0,5 pró­sentu­stig á milli mán­aða. Lest­ur­inn hefur dreg­ist saman um 15 pró­sent á einu ári og helm­ing­ast á rúmum ára­tug, en í apríl 2010 lásu 64 pró­sent lands­manna Frétta­blaðið. Hjá Íslend­ingum undir fimm­tugu mælist lestur Frétta­blaðs­ins 23 pró­sent, og hefur dreg­ist sama um 64 pró­sent frá vor­inu 2010.

Heild­ar­lestur Frétta­blaðs­ins fór undir 60 pró­sent í apríl 2012, undir 50 pró­sent í nóv­em­ber 2015 og undir 40 pró­sent í ágúst 2018. Ef lestur blaðs­ins heldur áfram að falla á sama hátt og hann hefur gert und­an­farið hálft ár, um hálft pró­sentu­stig á mán­uði, fer lestur Frétta­blaðs­ins undir 30 pró­sent í haust.

Frétta­blaðið er í eigu Torgs sem rekur einnig miðla á borð við Hring­braut og DV. Helgi Magn­ús­son athafna­maður keypti Torg árið 2019. Tap Torgs á árinu 2019 var 212 millj­­­ónir króna.

Síðasta mæling DV

Tvö viku­blöð hafa verið í mæl­ingum Gallup und­an­farin miss­eri, DV og Við­skipta­blaðið. Alls sögð­ust 3,5 pró­sent lands­manna lesa DV í síð­asta mán­uði. Það er minnsti lestur á því blaði frá upp­hafi. Í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára náði lest­ur­inn botni í febr­úar þegar tvö pró­sent lands­manna undir fimm­tugu lásu DV.

[links]Þann 6. apríl síð­ast­lið­inn var til­kynnt að ákveðið hefði verið að hætta útgáfu DV á prenti, að minnsta kosti um sinn. Helsta ástæða þess var sögð yfir­stand­andi heims­far­aldur sem hafi „gert aug­lýs­inga­sölu erf­iða og hamlað útgáfu með ýmsum hætt­i.“

Við­skipta­blaðið kemur út á fimmtu­dögum og er selt í áskrift. Alls lesa 4,3 pró­sent lands­manna það blað og hjá ald­urs­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­ur­inn 2,9 pró­sent. Það er í fyrsta sinn sem lestur Við­skipta­blaðs­ins fer undir þrjú pró­sent hjá full­orðnum les­endum undir fimm­tugu.

Vert er að taka fram að allir þeir prent­miðlar sem nefndir eru í þess­ari umfjöllun reka frétta­vef­síður. Síða Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, er nú, og hefur oft­ast verið, mest lesna vef­síða lands­ins, þótt helsti sam­keppn­is­að­ili hennar, Vísir, hafi oftar verið í fyrsta sæti á þeim lista und­an­farnar vikur. Vefsvæði DV, dv.is og tengdir vefir, er þriðja mest lesna vef­svæði lands­ins og vef­svæði Frétta­blaðs­ins, sem inni­heldur líka vef Hring­brautar, er það fimmta mest lesna. Við­skipta­blaðsvef­ur­inn situr í átt­unda sæti á lista Gallup en vert er að taka fram að ein­ungis þrettán vef­svæði taka þátt í vef­mæl­ingum fyr­ir­tæk­is­ins. Á meðal fjöl­miðla sem gera það ekki eru Kjarninn og Stundin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár