Mynd: 123rf.com

Verðbólga og vextir á Íslandi – Blikur á lofti eða ofmetið vandamál?

Þingmenn ræddu í sér­stakri umræðu á Alþingi í vik­unni sam­spil verð­bólgu og vaxta – og höfðu þeir ýmis­legt að segja um ástæður ástands­ins sem nú er uppi og hver næstu skref ættu að vera.

Hækkandi verð­bólga og vaxta­stig hefur vakið ugg hjá mörgum enda hafa þessir þættir mikil áhrif á stöðu efna­hags­mála í land­inu. Ber þá sér­stak­lega að nefna hærri afborg­anir á lánum vegna hús­næð­is­kaupa, bæði verð­tryggðum og óverð­tryggðum, sem og hækk­andi hús­næð­is­verð, sem gerir meðal ann­ars fyrstu kaup­endum erf­ið­ara fyrir að kom­ast inn á mark­að­inn.

Til þess að ræða þessi mál ákvað Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar að óska eftir sér­stakri umræðu um sam­spil verð­bólgu og vaxta á Alþingi og átti sú umræða sér stað í gær. Til and­svara var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, og tóku tíu þing­menn bæði úr stjórn­ar­flokk­unum og stjórn­ar­and­stöð­unni þátt í umræð­unum.

Sumir þing­mann­anna töl­uðu um að vand­inn væri heima­til­bú­inn og fyr­ir­sjá­an­legur og að blikur væru á lofti. Aðrir sögðu að mik­inn lær­dóm hefði mátt draga af hrun­inu fyrir rúmum 10 árum og sagði ráð­herr­ann að þrátt fyrir skulda­aukn­ingu heim­il­anna væri fjár­hags­staða þeirra sterk. Enn aðrir töl­uðu um ástandið á hús­næð­is­mark­aði sem hringa­vit­leysu og sitt sýnd­ist hverjum á hvern ætti að benda sem söku­dólg hækk­andi hús­næð­is­verðs.

Guð­brandur sagði í upp­hafs­ræðu sinni að hann hefði óskað eftir umræð­unni vegna þess að Íslend­ingar upp­lifðu um þessar mundir mik­inn óstöð­ug­leika og aukna verð­bólgu í íslensku sam­fé­lagi, óstöð­ug­leika sem virt­ist hell­ast yfir land­ann með reglu­legu milli­bili og sem íslenskur almenn­ingur þyrfti að takast á við í formi verð­hækk­ana, vaxta­breyt­inga, verð­bólgu og kaup­mátt­arrýrn­unar.

Óskar ekki börnum sínum þess að þurfa að ganga í gegnum það sama og hans kynslóð

„Íslenskur almenn­ingur stjórnar ekki þessum öflum sem mestu ráða um breyt­ing­arnar en verður á end­anum fyrir mestum skaða vegna þeirra áhrifa sem þetta hefur á lífs­kjör. Hver er að velta fyrir sér vaxta­mun­ar­við­skiptum, bindi­skyldu bank­anna og sveiflu­jöfn­un­ar­auka í dag­legu lífi?“ spurði hann.

Hann full­yrti að flesta skorti þekk­ingu til að átta sig á slíkum hug­tökum. „Hins vegar er það þannig að hvert þess­ara atriða geta ráðið miklu um afkomu almenn­ings. Að kaupa sér hús­næði er stór og mikil ákvörðun fyrir flesta sem gerir það að verkum að fólk þarf að setja sér mark­mið og gera áætl­anir til ára­tuga um end­ur­greiðslu lána. En því miður er það svo að í fæstum til­fellum stand­ast þessar áætl­anir vegna ytri þátta sem fólk ræður ekki við.

Að lokum verður staðan alltaf sú að búið er að greiða marg­falt verð fyrir fast­eign­ina. Ég hef til dæmis upp­lifað margar nið­ur­sveiflur á þeim tíma frá því að ég keypti mína fyrstu íbúð 20 ára gam­all. Ég óska ekki börn­unum mínum þess að þurfa að ganga í gegnum það sama og mín kyn­slóð hefur þurft. Ég sé hins vegar ekki að neinar breyt­ingar séu í far­vatn­inu. Ég fæ ég ekki annað séð en að íslensk örmynt, sem þarf bæði belti og axla­bönd, sé ástæða þessa óstöð­ug­leika sem við búum við,“ sagði hann.

Guðbrandur Einarsson var málshefjandi umræðunnar í gær.
Guð­brandur Ein­ars­son var máls­hefj­andi umræð­unnar í gær.

Guð­brandur benti á að á sama tíma væri óum­deilt að hag­stjórn­ar­að­gerðir bæði rík­is­stjórnar og Seðla­bank­ans síð­ustu tvö árin hefðu skilað sér í sögu­legri hækkun íbúða­verðs. Af þeirri ástæðu spurði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fjög­urra spurn­inga sem voru svohljóð­andi:

  1. Var fram­kvæmd grein­ing á því hvaða áhrif lækkun stýri­vaxta og bindi­skyldu og breyt­ing á sveiflu­jöfn­un­ar­auka kynni að hafa á eft­ir­spurn eftir hús­næði? Ef ekki, hvers vegna var það ekki gert?
  2. Hefur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið rætt við Seðla­banka Íslands um hvaða aðgerðir hann geti gripið til ann­arra en stýri­vaxta­hækk­ana til að vinna gegn verð­bólgu?
  3. Eftir hrun var stýri­vaxta­hækk­unum beitt ótæpi­lega með skelfi­legum afleið­ingum fyrir skamm­tíma­skuld­bind­ingar þjóð­ar­bús­ins og skamm­tíma- og lang­tíma­skuld­bind­ingar heim­ila. Nú eru 400 millj­arða við­bót­ar­skuld­bind­ingar heim­il­anna aug­ljós hættu­merki. Hvaða lær­dóm ætlar rík­is­stjórnin að draga af þessu og hvernig hyggst hún koma í veg fyrir að hún end­ur­taki mis­tökin frá því í hrun­inu?
  4. Hækkun stýri­vaxta eykur vaxta­mun­ar­við­skipti. Hvernig mun fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra beita sér fyrir tak­mörkun þeirra og nei­kvæðum afleið­ingum?

Hann sagði jafn­framt að þau stýri­tæki sem verið væri að nota til að stilla af íslenskt efna­hags­líf hefðu alltaf tvær hliðar. „Mun til dæmis verða aukn­ing á vaxta­mun­ar­við­skiptum sem getur haft styrk­ingu gengis í för með sér sem aftur hefur nei­kvæð áhrif á útflutn­ings­grein­arnar? Á Seðla­bank­inn sýknt og heil­agt að grípa inn í þróun gengis þegar enda­laust er verið að tala um kosti þess að vera með fljót­andi krónu? Má íslenskur almenn­ingur ekki njóta þess ef krónan styrk­ist? Eiga allar okkar aðgerðir að mið­ast við útflutn­ings­greinar?“ spurði hann enn fremur.

Guð­brandur sagð­ist hafa áhyggjur af því að kom­andi kjara­samn­ingar yrðu erf­iðir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin. „Þegar Seðla­bank­inn hækkar frekar vexti en að leyfa krón­unni að styrkj­ast kemur það sér vel fyrir útflutn­ings­greinar en bitnar á hag fólks­ins. Við virð­umst vera komin í sömu hringa­vit­leys­una aftur þar sem unga fólkið okkar hefur lagt allt undir í kaupum á hús­næði en þarf nú að kljást við það sem við af minni kyn­slóð þurftum að glíma við, þ.e. víxl­verkun vaxta og verð­bólgu sem eng­inn veit hvar endar,“ sagði Guð­brandur. Hann end­aði mál sitt á því að segja að það væri eins og Íslend­ingar hefðu ekk­ert lært.

Hækkun húsnæðisverðs ekki séríslensk þróun

Bjarni svar­aði og þakk­aði fyrir umræð­una sem hann teldi tíma­bæra og mik­il­væga. „Varðandi fyrstu spurn­ing­una þá hafa við­brögð seðla­banka og rík­is­sjóða á Vest­ur­löndum við útbreiðslu heims­far­ald­urs­ins víð­ast hvar verið áþekk. Í upp­hafi var útlit fyrir dýpsta efna­hags­á­fall í heila öld, áfall sem leit út fyrir að yrði bæði stærra og útbreidd­ara en fjár­málakrísan. Til að bregð­ast við því lækk­uðu seðla­bankar vexti og drógu úr aðhaldi með öðrum hætti, svo sem með aflétt­ingu sveiflu­jöfn­un­ar­auka. Samhliða því juku rík­is­sjóðir útgjöld og drógu úr skatt­heimtu. Þetta var gert til að styðja við fjár­hag heim­ila og fyr­ir­tækja í djúpri efna­hag­skreppu og við aðstæður veru­legrar óvissu.

Stað­reyndin er svo sú að við gripum til skil­virkra aðgerða, meðal ann­ars til víð­tækra bólu­setn­inga og að lokum lærðum að lifa með veirunni. Stuðn­ings­að­gerðir stjórn­valda og útsjón­ar­semi fólks og fyr­ir­tækja leiddu til þess að efna­hags­bat­inn varð bæði skjót­ari og kraft­meiri en gert var ráð fyrir. Með skjótum efna­hags­bata hefur inn­lend eft­ir­spurn auk­ist mikið sem birt­ist ekki síst á hús­næð­is­mark­aði. Verð­hækk­anir á hús­næð­is­mark­aði eru þannig afleið­ing þess að hag­kerfið hefur tekið hraðar við sér en reiknað var með,“ sagði hann.

Ráð­herr­ann benti á að þetta ætti ekki ein­ungis við hér á landi enda væri hækkun hús­næð­is­verðs ekki sér­ís­lensk þróun. „Það voru fram­kvæmdar fjöl­margar grein­ingar á þessu tíma­bili, bæði í ráðu­neyt­inu, í Seðla­bank­anum og af öðrum grein­ing­ar­að­ilum. Engar þeirra gerðu ráð fyrir að inn­lend eft­ir­spurn yrði eins kraft­mikil og raun ber vitni. Í því sam­hengi má til dæmis nefna að í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans frá því í maí 2020, eftir að gripið var til þeirra ráð­staf­ana sem spurt er um, segir, með leyfi for­seta, að lík­legt sé að það hægi enn frekar á verð­hækk­unum íbúð­ar­hús­næðis.“

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Helsta vopn Seðlabankans í baráttunni við verðbólgu er hækkun stýrivaxta

Varðandi aðra spurn­ing­una þá sagði Bjarni að Seðla­banki Íslands hefði meðal ann­ars það mark­mið að stuðla að stöðugri og lágri verð­bólgu og að hann hefði sjálf­stæði sitt að lögum af sér­stakri ástæðu.

„Til að ná þessum mark­miðum hefur bank­inn bæði þá sér­þekk­ingu og hann hefur þau tæki sem þarf og hann notar þau tæki til að ná þessu mark­miði með eins skil­virkum hætti og hægt er. Það er rétt sem fram hefur komið að eitt helsta vopn bank­ans í bar­átt­unni við verð­bólgu er hækkun stýri­vaxta. Seðla­banki Íslands er ekki einn um að hafa fyrst og fremst það tæki því að stýri­vextir eru helsta tæki allra vest­rænna ríkja til að hafa áhrif á verð­bólg­una. Það er ekki til­viljun heldur eru stýri­vextir almennt taldir besta tækið til að ná stjórn á verð­bólgu.

Bankinn hefur svo ýmis önnur tæki til að ná mark­miðum sínum, ekki síst varð­andi fjár­mála­stöð­ug­leika. Til að hemja verð­hækk­anir á hús­næði hefur bank­inn til dæmis sett tak­mark­anir á veð­setn­ing­ar­hlut­föll íbúða­lána og lág­mark greiðslu­byrð­ar­hlut­falls. Seðla­bank­inn er hins vegar, eins og áður er komið fram, sjálf­stæð stofnun og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hlut­ast ekki til um það með hvaða hætti hann nær mark­miðum sínum. En við leggjum hins vegar áherslu á að Seðla­bank­inn hafi þau tæki sem hann telur sig þurfa til að ná mark­mið­unum og við leggjum áherslu á að stefna í opin­berum fjár­málum styðji við verð­bólgu­mark­miðið og dragi þannig úr þörf á veru­legri hækkun stýri­vaxta.“

Gjörólíkar aðstæður – engin hætta á fjármagnsflótta

Þriðju spurn­ing­unni svar­aði hann með þeim hætti að stýri­vextir hefðu vissu­lega verið hækk­aðir í októ­ber 2008 en að ekki væri hægt jafnað því við það sem væri að ger­ast núna.

„Í fyrsta lagi fóru stýri­vextir hæst í 18 pró­sent í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar. Á und­an­förnum mán­uðum hafa meg­in­vextir Seðla­bank­ans hækkað úr 0,75 pró­sent í 2,75 pró­sent. Það munar tölu­vert miklu á 2,75 pró­sent vaxta­stigi eða 18 pró­sent. Það munar reyndar nákvæm­lega 15,25 pró­sentu­stigum.

Í öðru lagi ber að líta til þess að það eru gjör­ó­líkar ástæður fyrir því að vextir hækka nú. Mark­miðið í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar var fyrst og fremst að verja gengi krón­unnar, en það er engin hætta á fjár­magns­flótta nú eins og menn höfðu áhyggjur af á þeim tíma. Það má bæta við að skuldir hag­kerf­is­ins eru lágar í sögu­legu sam­hengi núna og fjár­hags­staða heim­il­anna er sterk. Þegar hátt­virtur þing­maður talar um víxl­verkun vaxta og verð­bólgu þá vil ég kannski bæta við hinni sögu­frægu víxl­verkun verð­bólgu og hækk­ana kaup­taxta, sem er kannski það sem við þurfum að fara að hafa áhyggjur af,“ sagði hann.

Bjarni náði ekki að svara fjórðu spurn­ing­unni en bætti því við að vaxta­mun­ar­við­skipti væru auð­vitað eitt­hvað sem stjórn­völd væru ekki að reyna að laða fram. „Einhver eðli­leg fjár­fest­ing í gengi krón­unnar er ekki til þess að hafa miklar áhyggjur af en við þurfum að vera vak­andi yfir því ef vaxta­mun­ar­við­skipti aukast um of.“

Verðbólgu- og vaxtaþróun kemur verst við þá hópa sem standa höllustum fæti

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tók fyrstur til máls eftir ræðu ráð­herr­ans. „Það eru teikn á lofti um að heim­ilin þurfi að fara að hafa áhyggjur. Vextir fara hækk­andi, verð­bólga fer hækk­andi og stríðið í Úkraínu bætir sann­ar­lega ekki horf­urnar. Við erum að fara út úr far­aldr­inum, en það er hlut­verk stjórn­valda að gæta þess að end­ur­ræs­ing hag­kerf­is­ins bitni ekki á við­kvæm­ustu hópum sam­fé­lags­ins. Og því miður er vís­bend­ing um það að ákveðnir hópar fari verr út úr þessum far­aldri en aðrir. Sú verð­bólgu- og vaxta­þróun sem við höfum horft upp á kemur nefni­lega verst við þá hópa sem standa höllustum fæti. Það er auð­vitað ljóst að alvar­legt efna­hags­á­stand, ekki síst erf­iður hús­næð­is­mark­aður auk versn­andi heilsu fólks eftir far­ald­ur­inn, mun hafa víð­tæk áhrif.“

Vísaði hann í orð Bjarna að Íslend­ingar hefðu lært að lifa með veirunni en Logi sagði í fram­hald­inu að eng­inn myndi læra – ekki til lang­tíma að minnsta kosti – að lifa með aura­leysi.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

„Rík­is­stjórnin ber á sinn hátt ábyrgð á þess­ari stöðu. Þegar vaxta­lækk­un­ar­ferlið hófst fyrir tveimur árum tal­aði hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra nefni­lega bein­línis um nýjan veru­leika og gaf þannig ungu fólki mjög óraun­hæfar vænt­ingar. Margir skuld­settu sig miðað við orð hæstv. fjár­mála­ráð­herra og eru núna hugs­an­lega að lenda í erf­iðri stöðu. Nú verður rík­is­stjórnin að bregð­ast við. Hún hefur tækin til þess. Hún getur til dæmis stigið fastar inn á fram­boðs­hlið hús­næð­is­mark­að­ar­ins, eins og Sam­fylk­ingin hefur talað um, og hún getur stutt til­lögur Sam­fylk­ing­ar­innar og ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka um mót­væg­is­að­gerðir við heim­ilin. Ég trúi ekki öðru en að þessar til­lögur hafi stuðn­ing hjá almennum stjórn­ar­þing­mönnum, að minnsta kosti hjá þeim og flokkum þeirra sem kenna sig við jöfnuð,“ sagði hann.

„Þurfum að fara að hugsa málið öðruvísi og hugsa reikningsdæmið öðruvísi“

Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins tók næst til máls og benti á að und­an­farnar vikur og mán­uði hefðu Íslend­ingar séð stjarn­fræði­legar hækk­anir á hús­næð­is­verði sem hefðu veru­leg áhrif á vísi­tölu neyslu­verðs.

„Í lok jan­úar hafði hús­næð­is­verð hækkað um 1,7 pró­sent bara á einum mán­uði. Árs­hækk­un­ar­takt­ur­inn er kom­inn í rúm 20 pró­sent. Það liggur fyrir að þörfin á við­brögðum er aðkallandi. Það eru blikur á lofti, það er komið stríð í Evrópu og það hefur gíf­ur­leg áhrif á verð­bólgu hér á landi og erlendis. Verð­bólgan sýnir okkur hversu mikið verð á neyslu­vöru og þjón­ustu sem heim­ili lands­ins neyta hafa hækkað í verði miðað við sama mánuð ári fyrr. Hag­stofan mælir þetta út frá vísi­tölu neyslu­verðs, en þar fær hver vöru­flokkur mis­mikið vægi eftir því hversu stór hluti hann er af útgjöldum heim­il­anna. Lang­mestu máli skiptir hús­næð­islið­ur­inn, sem mælir kostn­að­inn við að búa í eigin hús­næði, en hann er um þriðj­ungur vísi­töl­unnar og því mesti áhrifa­vald­ur­inn á vexti hér á landi.“

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Benti hún jafn­framt á að í útreikn­ingi hús­næð­islið­ar­ins væri hús­næð­is­verð, leigu­verð, við­hald, raf­magn og fleira tekið inn í jöfn­una. „Hús­næð­is­kostn­að­ur­inn er þar á meðal. Það sem við þurfum að huga að er að hús­næð­islið­ur­inn er ekki eins mældur í sam­ræmdu vísi­töl­unni og þeirri íslensku. Munurinn liggur í því að notuð er greidd húsa­leiga ásamt öðrum kostn­aði sem lýtur að hús­næði í sam­ræmdu vísi­töl­unni en í þeirri íslensku er notuð greidd húsa­leiga ásamt reikn­aðri húsa­leigu,“ sagði hún.

„Þegar verð­bólgu­horfur hafa versnað umtals­vert þá hafa þær ákvarð­anir sem teknar eru hér í þessum sal gíf­ur­leg áhrif á efna­hags­lífið, eðli máls­ins sam­kvæmt, og það er mik­il­vægt að við setjum tón­inn. En við­brögðin eiga ekki að byrja eða enda hér heldur þurfum við að fá fleiri í lið með okkur til að tempra ástandið. Við þurfum að fara að hugsa málið öðru­vísi og hugsa reikn­ings­dæmið öðru­vísi. Og nú þegar höfum við í Framsókn lagt fram til­lögur að lausnum um hvernig við getum gefið sann­gjarn­ari mynd af vísi­töl­unni og þar með verð­bólg­unni. Og hvernig væri það að for­stjóri Hag­stof­unnar myndi koma með okkur í þá veg­ferð sem fram undan er og fara að hugsa í lausnum?“ spurði hún í lok ræðu sinnar.

Vaxtalækkanir hafa ekki skilað sér til neytenda nema að litlu leyti

Næstur á mæl­enda­skrá var Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins. Hún sagði að vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans á síð­asta ári hefðu ekki skilað sér til neyt­enda nema að litlu leyti.

„Vextir bank­anna á óverð­tryggðum íbúða­lánum eru yfir­leitt um þriðj­ungi hærri en stýri­vextir Seðla­bank­ans en þegar stýri­vextir Seðla­bank­ans fór niður í 0,75 pró­sent voru þeir meira en fjórum sinnum hærri. Þessi lækkun skil­aði sér þess vegna alls ekki til neyt­enda nema að litlu leyti. Þessar lækk­anir eiga neyt­endur enn inni hjá bönk­unum sem nýta hækkun stýri­vaxta til fulls í hvert sinn.

Núna er blússandi verð­bólga í kjöl­far heims­far­ald­urs og svo er núna stríð í heim­inum sem á áreið­an­lega eftir að hafa sín áhrif. Verð­bólgan stafar ekki af atburðum hér heima nema að litlu leyti. Það er verð­bólga úti um allan heim og því verður að takast á við hana út frá þeim for­sendum. Sú leið sem alltaf hefur verið farin til þess að slá á þenslu er að hækka meg­in­vexti Seðla­bank­ans og svo er einnig nú. En ef verð­bólgan er fyrst og fremst vegna utan­að­kom­andi áhrifa hvernig eiga þá hærri álögur á heim­ili og fyr­ir­tæki lands­ins að slá á hana?“ spurði hún.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins. Mynd: Bára Huld Beck
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Hún telur að það eina sem hærri vextir geri sé að auka á erf­ið­leika heim­ila og fyr­ir­tækja sem oft séu nægir fyrir, meðal ann­ars vegna heims­far­ald­urs og afleið­inga hans. „Ástandið er erfitt víða um heim vegna COVID og rof hefur komið í fram­leiðslu- og flutn­ings­línur heims­ins, hina svoköll­uðu virð­is­keðju, og flutn­ings­kostn­aður til lands­ins hefur þannig hækkað gríð­ar­lega sem og verð á ýmsum vörum. Hærri álögur á íslensk heim­ili munu ekki hafa nein áhrif á þessa þróun. Núna ætti þvert á móti að koma íslenskum heim­ilum í skjól fyrir afleið­ingum þess­ara verð­hækk­ana og sjá til þess að þau skað­ist ekki meira af COVID-far­aldr­inum en þegar er orðið þar sem margir hafa orðið fyrir tekju­missi og standa illa undir auknum álögum vegna vaxta­hækk­ana sem vafa­samt er að beri til­ætl­aðan árangur.

Stærsti útgjalda­liður flestra heim­ila er í fyrsta lagi hús­næð­is­kostn­aður og í öðru lagi mat­ar­kostn­aður. Hverjum hjálpar það ef báðir þessir liðir hækka vegna utan­að­kom­andi verð­bólgu? Hjá sumum fjöl­skyldum er mán­að­ar­legur hús­næð­is­kostn­aður, hvort sem það eru afborg­anir lána eða leiga, allt að 60 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum. Þetta eru oft staðan hjá tekju­lágum fjöl­skyldum sem hafa lítið borð fyrir báru. Hvert ein­asta pró­sentu­stig til hækk­unar á hús­næð­is­kostn­aði getur skilið á milli feigs og ófeigs hjá þeim.“

Þurfum að nýta öll tæki til að sporna við aukinni verðbólgu og afleiðingum hennar

Þing­maður Vinstri grænna, Eva Dögg Dav­íðs­dóttir, hóf sína ræðu á að minna á að máls­hefj­andi umræð­unnar hefði vísað til hruns­ins og velt því fyrir sér hvaða lær­dóm núver­andi rík­is­stjórn hygð­ist draga af þeim tíma í ljósi stýri­vaxta­breyt­inga.

„Í þessu sam­hengi er mik­il­vægt að hafa í huga að lækkun stýri­vaxta kom einmitt til sem hluti af efna­hags­að­gerðum stjórn­valda í kjöl­far COVID og stýri­vextir nú eru þar sem þeir voru fyrir far­ald­ur­inn, líkt og hæst­virtur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kom inn á í fram­sögu sinni. Lágt vaxtaum­hverfi hafði áhrif á hús­næð­is­mark­að­inn en á seinni hluta árs­ins 2021 dró úr veð­setn­ingu sem má tengja við þá ákvörðun fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar að lækka veð­setn­ing­ar­hlut­fall í lok júní ásamt því að hækk­andi eigna­verð og skortur á fram­boði er lík­legt til að spila inn í.

Við þurfum að nýta öll tæki til að sporna við auk­inni verð­bólgu og afleið­ingum hennar. Hækkun stýri­vaxta er helsta tæki Seðla­bank­ans til að ná verð­bólgu­mark­mið­inu. Það er lík­legt að vaxta­hækk­un­ar­ferlið haldi áfram á þessu ári. Við vitum að það eru hópar í sam­fé­lag­inu sem eru við­kvæmir fyrir þessum hækk­unum og hags­munir heim­il­anna verða að vera í for­vegi. Það er ljóst að vax­andi hlut­fall íbúða­lána á breyti­legum vöxtum er var­huga­vert og eitt­hvað sem við þurfum að bregð­ast við.“

Eva Dögg Davíðsdóttir, þingmaður VG.
Eva Dögg Dav­íðs­dóttir, þing­maður VG.

Þá sagði hún að næstu árin myndu þurfa að ein­kenn­ast af mark­vissum aðgerðum og stefnu­mótun hins opin­bera til að skapa stöðugt vaxtaum­hverfi og fjöl­breytt­ari hús­næð­is­markað. „Það þarf að halda áfram að styrkja opin­beran hús­næð­is­markað með það að mark­miði að tempra verð­hækk­anir og mæta eft­ir­spurn. Hið opin­bera stóð fyrir bygg­ingu á 30 pró­sent af öllu nýju hús­næði á síð­asta kjör­tíma­bili og þessi þróun þarf að halda áfram svo við getum vaxið út úr far­aldr­inum líkt og stefna rík­is­stjórn­ar­innar kveður á um.“

Fólk þarf að vera búið að eignast skuldlausa íbúð ef lífeyririnn á að duga

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata beindi sjónum sínum að öðrum vinkli í sinni ræðu. „Ég held að það sé mjög gott og nauð­syn­legt atriði í þess­ari umræðu að skoða málið ann­ars vegar út frá stóru mynd­inni og hins vegar út frá hverjum og einum ein­stak­lingi. Ég ætla að byrja aðeins á stóru mynd­inni í þessu. Stóra myndin á bak við þetta allt, að mínu mati, sem við þurfum að vekja athygli á og pota dálítið mikið í er líf­eyr­is­kerfið okkar. Af hverju segi ég það?“ spurði hann.

„Af því að líf­eyr­is­kerfið okkar er sam­kvæmt vef­síð­unni líf­eyr­is­mál.is 6.000 millj­arðar króna að stærð. Hvað þýðir það, sér­stak­lega með til­liti til þess að ávöxt­un­ar­krafa á 6.000 millj­örðum króna eru 3,5 pró­sent? Það þýðir 200 millj­arða á ári sem þarf að afla í vexti til að standa undir líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Þetta er athygl­is­verð tala af því að raun­virði eykst verg lands­fram­leiðsla ein­ungis um 100 millj­arða á ári.

Hvað verður þá um hina 100 millj­arð­ana sem vantar? Þeir koma fram í verð­bólgu, verð­rýrnun, það er ekk­ert flókn­ara en það. Þarna er kjarn­inn í því sem við upp­lifum dags­dag­lega í afborg­unum af lánum og svo fram­vegis, grunn­ur­inn að verð­bólg­unni. Verð­bólgan er þarna af því að við leggjum til hliðar hluta af launum okkar til þess að geta fengið þau seinna sem ráð­stöf­un­ar­tekjur á efri árum. En það þarf að við­halda verð­gildi þess­arar inn­lagnar okkar til að við eigum fyrir henni þegar við komumst á efri ár, og þetta kostar hún okkur þegar allt kemur til alls. Hinn hlut­inn af líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu er síðan hús­næði sem allir þurfa að eign­ast skuld­laust áður en þeir fara á elli­líf­eyri.“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata.

Í seinni ræðu sinni sagði Björn Leví að til þess að klára lífið þá þyrfti fólk að hafa þak yfir höf­uðið og ráð­stöf­un­ar­tekjur. „Til þess höfum við sett upp líf­eyr­is­sjóða­kerfi sem gerir ekki ráð fyrir því að líf­eyr­ir­inn geti greitt hús­næð­is­kostnað. Málið er það ein­falt. Fólk þarf að vera búið að eign­ast skuld­lausa íbúð ef líf­eyr­ir­inn á að duga að jafn­aði fyrir bara mat og þess háttar. Sá líf­eyrir er ein­fald­lega ekki ætl­aður til að greiða fyrir hús­næði.

Í heild­ar­sam­hengi þess þurfa stjórn­völd að geta útskýrt hvernig fólk á lág­marks­launum á að geta eign­ast hús­næði því eins og er eru fram­færslu­út­reikn­ingar stjórn­valda á þann hátt að þeir sem eru á lág­marks­launum eru í mínus eftir hver mán­aða­mót. Þá er ekki séns að geta eign­ast íbúð, hvað þá þegar ein­fald­lega öll önnur sveit­ar­fé­lög en Reykja­vík byggja ekki hlut­falls­lega sinn hluta íbúða sem þarf miðað við þá mann­fjölda­þróun sem er spáð á næstu árum og ára­tugum. Við erum að glíma við það akkúrat núna að það er nýbúið að upp­færa mann­fjölda­spána. Hún er hærri en var búist við. Þá þarf enn fleiri íbúðir en búist var við. Í fyrri áætl­unum var Reykja­vík eina sveit­ar­fé­lagið sem byggði nægi­lega mikið til að sinna þeirri þörf miðað við hlut­falls­lega stærð borg­ar­innar. Eina sveit­ar­fé­lagið. Hin eru öll að svíkj­ast undan í þeirri eft­ir­spurn.“

Skiptir engu máli að vextir séu sögulega lágir

Formaður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, tók einnig þátt í umræð­unum. „Vandinn sem hér um ræðir er að mörgu leyti heima­til­bú­inn og fyr­ir­séður. Þó að um alþjóð­legan vanda sé að ræða þá hefur fjöldi sér­fræð­inga líka bent á þau mis­tök sem gerð hafa verið í hag­stjórn­inni. Nú eru fimm mán­uðir síðan að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir háðu sína kosn­inga­bar­áttu með þeim skila­boðum að hér hafi skap­ast öruggt lág­vaxtaum­hverfi á meðan stað­reyndin sú að greiðslu­byrði almenn­ings hefur snar­hækkað á síð­ustu vikum og mán­uðum og mun hækka á kom­andi tímum.

Síðan hefur verið sagt þessu til varnar að í sögu­legu sam­hengi séu vextir lágir. Það skiptir bara engu. Það er engin huggun harmi gegn fyrir alla þá hús­næð­is­kaup­endur þar sem lánin hafa hækkað um tugi þús­unda. Það skiptir heldur engu að miða við ein­hver ver­búð­arár því að þetta er allt til heima­brúks. Sam­keppn­is­hæfi Íslands og íslensks atvinnu­lífs fer eftir því hver staða okkar er og sam­keppn­is­staða við útlönd, ekki hér innan lands. Hver vaxta­mun­ur­inn við útlönd? Hann auð­veldar ekki íslenskum fyr­ir­tækjum umhverfið. Þannig að vaxta­kostn­aður af skuldum rík­is­sjóðs mun hækka og er nú þegar fimmti stærsti útgjalda­lið­ur­inn. Á sama tíma sitjum við uppi með alls konar auk­inn kostnað, m.a. vegna fjölda ráðu­neyta, af því að það treystir sér eng­inn til að for­gangs­raða fjár­munum rík­is­sjóðs,“ sagði hún.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar.

Vill fá skýr svör frá stjórnvöldum

Þor­gerður Katrín kall­aði það þema sem hún sá í þessu sam­hengi „ábyrgð­ar­leysi og aðhalds­leysi“.

„Rík­is­stjórnin hefur aukið þensl­una og aukið útgjöld til að láta ráð­herrakap­al­inn ganga upp, en hefur síðan ekki mann­dóm í sér til að klára ýmis grund­vall­ar­prinsipp­mál eins og nið­ur­greiðslu sál­fræði­þjón­ustu. Samtök atvinnu­lífs­ins segja stjórn­völd varpa ábyrgð á alger­lega ósjálf­bærum rík­is­sjóði og skuldum hans á næstu rík­is­stjórn og rík­is­stjórnin svarar síðan ekki þeim skila­boðum frá seðla­banka­stjóra sem sagði skýrt á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í morgun að það þurfi að eyða hall­anum, að ríkið verði að eyða minni pen­ing og draga sig til baka. Við blasi ann­að­hvort skatta­hækk­anir eða að dregið verði úr rík­is­út­gjöldum.“

Kallaði hún eftir skýrum svörum frá stjórn­völdum um næstu skref og ætl­að­ist hún til þess að þau vökn­uðu til lífs­ins, því að staðan væri grafal­var­leg.

Kjaraviðræður munu hafa mest áhrif á þróun verðbólgunnar

Einn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, auk ráð­herr­ans, tók til máls í umræð­unni. Berglind Ósk Guð­munds­dóttir sagð­ist ætla að leyfa sér að vera rödd bjart­sýn­innar. Hún sagði að nú væru uppi ger­ó­líkar aðstæður en þær sem máls­hefj­andi vís­aði til eftir hrun.

„Í fyrsta lagi reynd­ust efna­hags­leg áhrif heims­far­ald­urs­ins ekki vera jafn lang­vinn og margir ótt­uð­ust og í öðru lagi voru við­brögð stjórn­valda við far­aldr­inum til þess að efna­hags­bat­inn varð meiri en spár gerðu ráð fyrir. Ein helsta breytan er sú að eftir hrun var atvinnu­leysi mikið en nú er skortur á vinnu­afli. Þá hefur reglu­um­hverfið tekið veru­legum breyt­ingum frá hruni til marks um einmitt það að stjórn­völd hafa lært af mis­tök­unum í hrun­inu.

Þessar breyt­ingar eru bæði til hags­bóta fyrir neyt­endur sem og fjár­mála­stofn­anir og neyt­endur njóta nú betri verndar og hafa aukið frelsi til að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir um eigin fjár­hag og við­skipti við fjár­mála­stofn­anir. Meðan hús­næð­is­mark­að­ur­inn drífur áfram verð­bólg­una að mestu vegna skorts á fram­boðs­hlið­inni hefur Seðla­bank­inn fáa aðra kosti en að hækka stýri­vexti og er fullt til­efni til þess að beita áfram öðrum þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum. Þær aðgerðir sem gripið er til hér á þing­inu mega ekki ýta undir þrýst­ing á eft­ir­spurn­ar­hlið­inni eins og sumar til­lögur á þing­inu munu gera.“

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í þessu sam­hengi ítrek­aði hún að skuldir hag­kerf­is­ins væru lágar í sögu­legu sam­hengi og þrátt fyrir skulda­aukn­ingu heim­il­anna væri fjár­hags­staða þeirra sterk. „Það sem mun svo hafa mest áhrif á þróun verð­bólg­unnar eru kom­andi kjara­við­ræður. Vinnu­mark­að­ur­inn mun spila stórt hlut­verk. Laun hafa í heims­far­aldr­inum hækkað veru­lega sem ger­ist ekki ann­ars staðar í svona aðstæðum. Kjara­við­ræð­urnar verða að end­ur­spegla aðstæð­urnar í hag­kerf­inu.“ Að lokum sagði hún að margt þyrfti að vinna saman til að við­halda fjár­mála­stöð­ug­leika og til þess þyrftu allir að róa í sömu átt.

Íslenska krónan – örmynt sem leikur almenning grátt með reglulegu millibili

Oddný G. Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tók næst til máls og sagði að fram­kvæmd pen­inga­mála hefði breyst mjög til hins betra frá banka­hruni og fyrir það væri fyrst og fremst hægt að þakka mik­il­vægum laga­breyt­ingum í tíð rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur.

„Þá varð loks­ins til sjálf­stæður seðla­banki á Íslandi, pen­inga­stefnu­nefnd sett á lagg­irnar og póli­tískum skip­unum seðla­banka­stjóra hætt. Því miður var samn­ingur um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ekki klár­aður, því með aðild­inni hefðum við fengið efna­hags­legan stöð­ug­leika til fram­tíðar og gjald­miðil sem borin er uppi af 500 millj­ónum manna.

Í stað þess þurfum við að búa við íslensku krón­una, örmynt sem leikur íslenskan almenn­ing grátt með reglu­legu milli­bili. Síðustu stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans komu illa við þá tekju­lægstu og þá sem verja nú þegar langstærstum hluta ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í hús­næð­is­kostnað, heim­ili sem eru í þeirri stöðu að mega ekki við neinum óvæntum útgjöldum. Staða fólks á leigu­mark­aði er erfið og ótryggð, ekki síst nú um stundir þegar verð­bólgan vex og leiga sem bundin er vísi­tölu hækkar sjálf­krafa. Verð­bólgan sem mun vaxa enn vegna stríðs­ins sem nú geisar í Evrópu og vaxta­hækk­anir verða til þess að hús­næð­is­kostn­aður fólks með lágar og með­al­tekjur fer enn lengra yfir við­mið­un­ar­mörk af ráð­stöf­un­ar­tekjum. Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur beitti hús­næð­is­bóta­kerf­inu og barna­bóta­kerf­inu með árang­urs­ríkum hætti á erf­iðum tímum,“ sagði hún.

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Oddný telur að nú ætti að nýta þá reynslu og beita kröft­ugum vaxta­bótum, leigu­bótum og barna­bótum til að létta fólki róð­ur­inn. „Það þarf ein­ungis að stilla af eigna- og launa­við­mið og skerð­ing­ar­mörk. Kerfin eru til og það er hægt að bregð­ast við strax. Það eina sem vantar er póli­tískur vilji til að standa með fólki sem vegna ástands­ins nær ekki endum saman.“

Ábyrgð sveitarfélaga á hækkun fasteignaverðs mikil og þá sérstaklega Reykjavíkurborgar

Ágúst Bjarni Garð­ars­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins henti sprengu inn í umræð­una í sinni ræðu sem end­aði á því að for­seti Alþingis bað þing­menn að gefa ræðu­mönnum hljóð til að ljúka máli sínu. Ágúst Bjarni hóf mál sitt á því að segja að aukin verð­bólga snerti öll heim­ili lands­ins. „Það er ástæðan fyrir því að Seðla­bank­inn hefur hækkað vexti. Það er gert til þess að bregð­ast við núver­andi aðstæðum, þá sér­stak­lega á fast­eigna­mark­aði. Síðustu ár hafa verið óvenju­leg, meðal ann­ars vegna alheims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Ég hef þó sagt það áður að lík­lega er ekki skyn­sam­legt fyrir Seðla­bank­ann að auka taum­hald pen­inga­stefn­unnar of hratt.“

Hann sagði jafn­framt að nú hillti undir lok far­ald­urs­ins, atvinnu­lífið væri að kom­ast í gang og Íslend­ingar hefðu raun­hæfa mögu­leika á að verð­bólgan gengi hratt niður með nátt­úru­legum hætti. „En þá þarf líka meira til. Ýmislegt hefur áhrif og það er meðal ann­ars staðan á fast­eigna­mark­aði. Hún er erfið, fast­eigna­verð hefur hækkað gríð­ar­lega hratt og mik­ill skortur er á fram­boði á hús­næði. Fram­boðið hefur ekki haldið í við eft­ir­spurn. Það er stað­reynd sem ekki er hægt að líta fram hjá að það er hús­næð­is­verð sem knýr verð­bólg­una áfram á Íslandi ásamt hækkun á hrá­vöru­verði. Ástæðan fyrir því er ein­fald­lega að það er skortur á íbúðum, meðal ann­ars vegna þétt­ing­ar­stefnu borg­ar­innar, sem hefur leitt til þess að verð á hús­næði er hátt. Það er verið að byggja dýrt á of dýrum svæðum. Það er ekki það sem við þurfum. Við þurfum að byggja hraðar og við þurfum að byggja hag­kvæmt.

Okkur Íslend­ingum er að fjölga hratt, þá sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ábyrgð sveit­ar­fé­laga á hækkun fast­eigna­verðs er mikil og þá sér­stak­lega Reykja­vík­ur­borgar. Reykja­vík­ur­borg er langstærsta sveit­ar­fé­lagið á Íslandi og því skiptir gríð­ar­legu máli hvað er gert. Við­var­andi skortur á lóðum og nýbygg­ingum hjá Reykja­vík­ur­borg hefur ýtt undir þessa miklu hækkun og knúið áfram verð­bólgu.“

Hann sagði að allir þyrftu að gera þetta saman ef „við ætlum að halda sjó“.

Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Ágúst Bjarni Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

„Við þurfum að vinna okkar vinnu. Við þurfum að tryggja lóða­fram­boð og kraft­mikla upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis til fram­tíðar fyrir alla. Þar hefur Reykja­vík­ur­borg, langstærsta sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, skilað auðu undir for­ystu jafn­að­ar­manna í allt of langan tíma,“ sagði Ágúst Bjarni en aðrir þing­menn köll­uðu fram í og spurðu meðal ann­ars hvað Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefði gert en hann var bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafn­ar­firði og for­maður bæj­ar­ráðs áður en hann gerð­ist þing­maður. Forseti Alþingis hvatti í fram­hald­inu þing­menn til þess að gefa ræðu­mönnum hljóð til að ljúka máli sínu og benti á að það væri ekki heim­ilt að halda uppi umræðum úr sætum sínum í þingsalnum.

Óréttlátt að fjármagnseigandi borgi lægri skatta en launþegi

Tómas A. Tómasson þing­maður Flokks fólks­ins lét sig ekki vanta í umræð­urnar og sagði að margt væri skrýtið í kýr­hausnum. „Í minni minn­ingu var það þannig ein­hvern tím­ann upp úr 1980 að ákveðið var að bæði laun og annað væri verð­tryggt, sem kom síðan í ljós að var dregið til baka þannig að launin hættu að vera verð­tryggð. Þannig að við sem erum laun­þegar þurfum að lifa við það að verð­bólgan hækkar og við þurfum ein­hvern veg­inn að redda okkur úr því.

Nú er ég búinn að velta þessu fyrir mér. Íbúð­ar­eig­andi sem á nokk­urrar íbúðir og leigir þær út er með verð­tryggðar tekjur. Og ofan á allt annað þá borgar hann miklu lægri skatta. Hann borgar 22 pró­sent í fjár­magnstekju­skatt á meðan við hinir þurfum að borga 30 til 40 pró­sent í skatt. Það er órétt­látt.“

Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins.
Tómas A. Tómasson, þing­maður Flokks fólks­ins.

Sagði hann að verið væri að tala um að lítið fram­boð væri á fast­eignum á Reykja­vík­ur­svæð­inu, aðal­lega. „Ég hef þá kenn­ingu að ástæðan sé m.a. sú að fjár­magns­eig­endur kaupa íbúðir í gríð og erg vegna þess það er ekki hægt að fá betri ávöxtun í dag. Þegar þú leggur pen­ing inn í bank­ann færðu núll komma eitt­hvað pró­sent vexti þar á og hluta­bréf eru upp og niður. En íbúða­verð hækkar stöðugt. Þannig að þeir sem eiga pen­inga kaupa íbúðir og græða því að þeir geta selt þær aftur um leið og þeir vilja.“

Nágranna okkar í Evrópu þurfa ekki að reka heimili sín „eins og vogunarsjóði“

Guð­brandur, máls­hefj­andi umræð­unnar, tók að lokum til máls í annað sinn. „Hér hafa farið fram ágæt­isum­ræður og mörg sjón­ar­mið hafa komið fram sem ég er að mörgu leyti sam­mála en öðrum ekki. En staðan er hins vegar sú hjá okkur miðað við nágranna okkar í Evrópu, að þeir þurfa ekki að reka heim­ili sín eins og vog­un­ar­sjóði. Þeir neyð­ast ekki til að spá enda­laust í það hvaða áhrif vaxta­breyt­ingar muni hafa á heim­il­is­bók­haldið. Þeir þurfa ekki að end­ur­fjár­magna lánin sín á nokk­urra ára fresti og eiga ekki á hættu að tapa tugum þús­unda á mán­uði vegna skyndi­legra ákvarð­ana seðla­bank­anna. Venju­legt fólk þarf ekki að hafa ígildi háskóla­prófs í hag­fræði til að lág­marka skað­ann af sveiflu­kenndum gjald­miðli.“

Beindi hann máli sínu að full­yrð­ingum um að lóða­skortur í Reykja­vík væri helsta orsök hækk­ana á fast­eigna­verði. Hann sagði að það stæð­ist ekki. „Fast­eigna­verð hefur hækkað um allt land og Reykja­vík hefur staðið fyrir met­upp­bygg­ingu á tíma­bil­inu, mun meira en nágranna­sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Aftur á móti hafa lægri vextir og aðgengi að líf­eyr­is­sparn­aði aukið eft­ir­spurn­ina á fast­eigna­mark­aði marg­falt umfram það sem verið hefur und­an­farin ár. Rík­is­stjórnin mætti því að líta sér nær áður en hún kennir öðrum um þessa miklu aukn­ingu í skuld­bind­ingum heim­il­anna. Það er mikið áhyggju­efni að hún hafi ráð­ist í þessar aðgerðir án þess að skoða mögu­leg áhrif þeirra.

Þegar ég tal­aði um víxl­verkun verð­bólgu og vaxta minn­ist hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra á víxl­verkun launa og verð­lags í sögu­legu sam­hengi. Illu heilli var þetta tekið úr sam­bandi og launa­fólk stóð bara óvarið. Þegar verið er að skella vaxta­hækk­unum á skuld­sett fyr­ir­tæki ótt­ast ég að það muni bara fara beint út í verð­lagið og valda því að það þurfi áfram að hækka vexti. En að minni hyggju á hag­stjórn líka að snú­ast um hag heim­il­anna og kannski fyrst og fremst.“

Skautað „léttilega“ yfir hin raunverulegu efnahagslegu viðfangsefni

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra lauk umræð­unni með því að segja að þrátt fyrir að hún hefði verið ágæt þá hefði verið skautað létti­lega yfir hin raun­veru­legu efna­hags­legu við­fangs­efni og hvað væri til bóta miðað við stöð­una eins og hún blasir við núna.

„Við höfum verið að ræða verð­bólg­una hér í dag. Ég hef ekki heyrt margar hug­myndir til að slá á verð­bólg­una en ég hef heyrt margar hug­myndir um ný útgjöld hjá rík­is­sjóði. Það hafa verið uppi kröfur um að auka útgjöldin í hina og þessa mála­flokk­ana en það eitt og sér er ekki lík­legt til að hjálpa okkur að takast á við þann vanda sem við erum að ræða hér, sem er í raun og veru verð­bólgan og áhrif hennar á kjör fólks í land­inu vegna vaxta­hækk­ana sem fylgt hafa í kjöl­farið.

Töluvert hefur verið rætt um vaxta­hækk­un­ina og fólk segir að það hjálpi ekki þó að vextir séu lágir í sögu­legu sam­hengi. Ég ætla nú samt að halda því fram að það skipti máli að skoða hvaða hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum heim­il­anna fer í afborg­anir af hús­næð­is­lánum. Það er lágt hlut­fall, það er ekki mikið hærra en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Skuldir heim­il­anna á Íslandi eru þrátt fyrir allt lægri en á hinum Norð­ur­lönd­unum, ef við notum mæli­kvarð­ann sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu. Staða heim­il­anna er því miklu sterk­ari en umræðan hér í dag ber með sér. Það er allt of lítið sem við fáum út úr þess­ari umræðu, því miður, sem inn­legg inn í mark­vissar aðgerðir til að fást við hinn und­ir­liggj­andi vanda. Ég hef verið að segja: Við þurfum að beita rík­is­fjár­mál­unum af skyn­semi við þessar aðstæður og við eigum ekki að horfa í hina átt­ina þegar Seðla­bank­inn segir að nú sé fram­leiðsluslak­inn horf­inn og við séum komin inn í nýtt tíma­bil,“ sagði hann.

Furðaði ráð­herr­ann sig á því hvað for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar átti við þegar hann léti sem svo að það hefði verið slæm ákvörðun hjá fólki að end­ur­fjár­magna lánin sín eða fara í fast­eigna­kaup. „Ég veit bara ekk­ert hvað menn eru að fara. Fólk hefur notið góðs af lágu vaxta­stigi. Ég vil bara segja að sem betur fer hafa margir kom­ist inn á mark­að­inn og við höfum aldrei séð álíka fjölda fyrstu íbúð­ar­kaup­enda, sem er mjög gott mál. En verk­efnið heldur áfram og við eigum eftir að tæma þessa umræðu ein­hvern tím­ann síðar. Það verður ekki gert hér í dag,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár