Hægt að banna arðgreiðslur banka og koma í veg fyrir endurkaup á hlutabréfum

Seðla­bank­inn ætl­ast til þess að við­skipta­bankar nýti ekki það 350 millj­arða króna svig­rúm sem þeim hefur verið veitt með því að afnema eig­in­fjár­auka til að greiða út arð. Fjár­mála­eft­ir­lit hans getur bannað arð­greiðslur við ákveðnar aðstæður.

Enn sem komið er þá hefur Seðla­banki Íslands ein­ungis hvatt við­skipta­bank­anna til að „sýna þá sam­fé­lags­legu ábyrgð á þessum sér­stöku tímum að nýta ekki það svig­rúm sem aflétt­ing sveiflu­jöfn­un­ar­aukans skapar til þess að greiða út arð.“

Telji Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands þó, byggt á gögnum eða upp­lýs­ingum sem það styðst við, að líkur séu á að banki upp­fylli ekki ákvæði laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, svo sem um eig­in­fjár- eða lausa­fjár­hlut­fall, getur það gripið til vald­heim­ilda sam­kvæmt lögum. „Á meðal þeirra vald­heim­ilda er bann við arð- og vaxta­greiðslum til hlut­hafa og fjár­festa og tak­mörkun á kaupaukum við hlut­fall af hreinum hagn­aði.“

Þá þarf fjár­mála­fyr­ir­tæki, eins og banki, alltaf að fá fyrir fram sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits­ins Seðla­bank­ans fyrir end­ur­kaupum á eigin hlutum og lækkun hluta­fjár og hefur Fjár­mála­eft­ir­litið tals­vert svig­rúm við mat á veit­ingu slíks sam­þykkis.

Þetta kemur fram í svörum Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans um þær aðgerðir sem bank­inn getur gripið í til að hindra að við­skipta­bankar nýti nýfengið svig­rúm, sem er til­komið vegna þess að ýmsar hömlur á eig­infé hafa verið los­aðar, til að greiða hlut­höfum sínum arð.

350 milljarða svigrúm

Á skömmum tíma hefur bindi­skylda verið lækkun niður í núll og sveiflu­jöfn­un­ar­auki sem lagð­ist á eigið fé bank­anna afnumin. Aflétt­ing kröfu um ­sveiflu­jöfn­un­ar­auka á að auð­velda banka­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­örðum króna, eða um 12,5 pró­sent af núver­andi útlána­safni.

Það er þó ekk­ert sem segir til um að það svig­rúm sem skap­ist verði ekki nýtt til ann­arra verka, eins og að greið­ast út til hlut­hafa.

Ríkisstjórnin kynnti efnahagspakka sinn 21. mars síðastliðinn. Bönkum er ætlað stórt hlutverk í þeirri baráttu sem framundan er.
Rík­is­stjórnin kynnti efna­hag­s­pakka sinn 21. mars síð­ast­lið­inn. Bönkum er ætlað stórt hlut­verk í þeirri bar­áttu sem framundan er.

Í yfir­lýs­ingu frá fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands, sem tók ákvörðun um að auka svig­rúmið með því að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann, sem birt var 18. mars brýndi nefndin fyrir fjár­mála­fyr­ir­tækjum að þau taki til­lit til þeirrar miklu óvissu sem uppi er í þjóð­ar­bú­skapnum við á­kvörðun um útgreiðslu arðs og end­ur­kaup á eigin hluta­bréfum á kom­andi miss­er­um. „Nefndin ætl­ast til þess að það svig­rúm sem lækk­un ­sveiflu­jöfn­un­ar­aukans skapar verði notað til að styðja við heim­ili og ­fyr­ir­tæki. Fylgst verður vel með við­brögðum banka­kerf­is­ins, stöð­u heim­ila og fyr­ir­tækja, og þeim fjár­mála­legu skil­yrðum sem þeim eru ­búin á næstu miss­er­um. Nefndin er reiðu­búin að beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varð­veita fjár­mála­stöð­ug­leika hér á land­i.“

Í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar, af fundi sem fór fram dag­inn áður eða 17. mars, kemur fram að nefnd­ar­menn hennar hefðu verið „sam­mála um að afar mik­il­vægt væri að fjár­mála­fyr­ir­tækin nýttu ekki svig­rúmið sem við þetta skap­að­ist til arð­greiðslna.”

Áform um arðgreiðslur enn í gildi

Sama dag og pen­inga­stefnu­nefnd fund­aði, þann 17. mars síð­ast­lið­inn, fór aðal­fundur Arion banka fram. Arion er eini stóru við­skipta­bank­anna þriggja sem er í einka­eigu. Á aðal­fund­inum var sam­þykkt að fresta tíu millj­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa um tvo mán­uði, eða fram í miðjan maí. Auk þess var heim­ild stjórnar til að kaupa allt að tíu pró­sent af hlutafé bank­ans end­ur­nýj­uð. Miðað við mark­aðsvirði Arion banka í dag myndi það þýða að tæp­lega tíu millj­arða króna greiðslu til eig­enda bank­ans.

Þremur dögum síðar, 20. mars, var sent bréf til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í Íslands­banka og Lands­bank­anum, fyrir hönd Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þar var farið fram á að hún myndi horfa fram hjá kröfum um ávöxtun og arð­greiðslur á árinu 2020 og að þeim skila­boðum yrði komið áfram til stjórna fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins.

Bjarni var að segja rík­is­bönk­unum tveimur að í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins þá ættu þeir ekki að greiða út arð.

Arion banki hefur enn sem komið er ekki end­ur­skoðað sín áform um að greiða út arð í maí. Í til­kynn­ingu sem bank­inn sendi til Kaup­hallar Íslands 27. mars síð­ast­lið­inn, vegna aðgerða sem hann hefur gripið til vegna COVID-19, kemur þvert á móti fram að eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða bank­ans sé mjög sterk án þess að til­lit sé tekið til „fyr­ir­sjá­an­legrar arð­greiðslu að fjár­hæð 10 millj­arða króna“. Þar sagði enn fremur að auk ákvörð­unar um að fresta arð­greiðslu í tvo mán­uði myndi bank­inn „ekki fara í frek­ari kaup á eigin bréfum fyrr en óvissa vegna heims­far­ald­urs­ins hefur minnkað.“

Höfðað til samfélagslegrar ábyrgðar

Í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans er bent á að aðal­fundur Arion banka hafi verið hald­inn áður en að Seðla­bank­inn birti sínar yfir­lýs­ingar og hvatti til þess að arð­greiðslur yrðu ekki greiddar. Hann var hald­inn einum degi áður en þær yfir­lýs­ingar voru birtar. „Aðstæður hafa verið að breyt­ast og skýr­ast. Seðla­bank­inn treystir því að til­laga um arð­greiðslu verði afgreidd í sam­ræmi við þær óskir sem bank­inn hefur sett fram. Hér á landi sem ann­ars staðar í Evrópu hefur verið höfðað til sam­fé­lags­legrar ábyrgðar fjár­mála­fyr­ir­tækja,“ segir í svari Seðla­bank­ans.

Að því sögðu taldi Seðla­bank­inn þó einnig vert að benda á að ef Fjár­mála­eft­ir­lit hans teldi, byggt á gögnum eða upp­lýs­ingum sem það styðst við, að líkur væru á að fjár­mála­fyr­ir­tæki upp­fyllti ekki ákvæði laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, svo sem um eig­in­fjár- eða lausa­fjár­hlut­fall, geti það gripið til vald­heim­ilda sam­kvæmt lögum. „Á meðal þeirra vald­heim­ilda er bann við arð- og vaxta­greiðslum til hlut­hafa og fjár­festa og tak­mörkun á kaupaukum við hlut­fall af hreinum hagn­aði. Þá þarf fjár­mála­fyr­ir­tæki ávallt fyr­ir­fram­sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits­ins Seðla­bank­ans fyrir end­ur­kaupum á eigin hlutum og lækkun hluta­fjár og hefur Fjár­mála­eft­ir­litið tals­vert svig­rúm við mat á veit­ingu slíks sam­þykkis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár