Fullorðnir og börn frá „tilteknu landi“ fá „öfgafull“, „rasísk“ og „ljót“ skilaboð

Ekki dæma alla fyrir eitt­hvað sem örfáir hafa gert,“ segir Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn. „Við berum öll ábyrgð, við þurfum öll að taka þátt og við erum í þessu saman, sama hvaðan við komum, þá erum við öll almanna­varnir.“

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn. Mynd: Lögreglan

„Langar að byrja í dag á smá hrósi og þökkum,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, við upp­haf upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag. Hrósið fór m.a. til smitrakn­ing­arteym­is­ins sem hefur með útsjón­ar­semi og fag­mennsku í mann­legum sam­skiptum gert „aðdá­un­ar­verða“ hluti. Þá fengu íbúar Ölfuss einnig hrós frá Víði sem segir þá hafa sýnt hvernig sam­fé­lag sem verður fyrir því áfalli að þar grein­ist hóp­sýk­ing geti tekið á hlut­unum saman.

[adspot]

„Að öðru og kannski ekki alveg jafn jákvæðu,“ sagði Víðir svo. „Við höfum oft talað um að veiran sé and­stæð­ing­ur­inn í þessu, það ætlar eng­inn að smit­ast og það ætlar eng­inn að smita annan. En nú erum við að fá upp­lýs­ingar um það að börn og full­orðnir sem hafa tengst hópsmitum og lent í því að vera hluti af þeim, eru að fá öfga­full skila­boð, rasísk og mjög ljót skila­boð. Þau eru líka að verða fyrir nán­ast ein­elti úti á götu. Eingöngu, virð­ist vera, vegna þess að þau koma frá til­teknu landi.

Ekki dæma alla fyrir eitt­hvað sem örfáir hafa gert,“ sagði Víðir með nokkrum þunga. „Við berum öll [links]ábyrgð, við þurfum öll að taka þátt og við erum í þessu saman, sama hvaðan við komum, þá erum við öll almanna­varnir.“

Í loka­orðum sínum á fund­inum horfði Víðir til nán­ustu fram­tíðar. „Nú er vor í lofti og maður sér fólk úti í garði að sinna vor­verk­unum. Við sem sam­fé­lag þurfum að sinna sömu vor­verkum og við gerðum i fyrra.“ Þau verk snúa að per­sónu­bundnum sótt­vörnum og passa okkur að missa ekki „þá góðu stöðu sem við erum í núna á loka­metr­unum.“

Hann sagði yfir­völd von­ast til þess að eftir um tvo mán­uði verði búið að ná góðri stöðu í bólu­setn­ingum. Þangað til þyrftum við að halda út. „Tveir mán­uðir,“ sagði hann með áherslu. „Tveir mán­uðir eru ekki neitt. Við erum búin að vera í þessu í fjórtán mán­uði og tveir mán­uðir í við­bót þar sem við tökum vel á þessu, að klára þetta mál, fylgja þessu alla leið, verður ekk­ert mál fyrir okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár