Þórólfur: Hópsýkingar geta sprottið upp „áður en við er litið“

Enn ber á því að smit grein­ist hjá fólki sem hefur verið með ein­kenni í nokkra daga og þar af leið­andi útsett marga fyrir veirunni. Þó að staðan sé nokkuð góð í far­aldr­inum þarf lítið útaf að bera, líkt og hóp­sýk­ingar síð­ustu daga bera með sér.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Það sem við þurfum að hafa áhyggjur af þessa stund­ina eru þessi sam­fé­lags­legu smit sem við erum að greina á hverjum degi og hættan á að stórar hópar­sýk­ingar blossi upp aftur sem illa myndi ganga að ráða við.“

Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Enn eru að grein­ast smit utan sótt­kvíar í svip­uðum mæli og und­an­farið. Í gær greindust tíu smit inn­an­lands og þrír voru utan sótt­kvíar. Þau smit er ekki hægt að rekja til þeirra hóp­sýk­inga sem þekktar eru nú þegar með óyggj­andi hætti. Hin sjö smit gær­dags­ins tengj­ast hins vegar þessum þekktu hóp­sýk­ingum.

[adspot]

„Ennþá erum við að sjá smit hjá fólki sem hefur verið með ein­kenni í nokkra daga án þess að fara í sýna­töku og þannig náð að útsetja marga,“ sagði Þórólfur og brýndi, enn og aftur, fyrir fólki að fara í sýna­töku ef það fyndi nokkur ein­kenni sem gætu bent til COVID-19. Sagði hann því ekki hægt að segja að náðst hafi full­kom­lega utan um smitin og að það sé ákveðið áhyggju­efni að verið sé að greina fólk þessa dag­ana sem ekki virð­ist hafa nokkur tengsl við þekktar hóp­sýk­ingar.

Því sé hægt að full­yrða að það sé ein­hver útbreiðsla á veirunni til staðar en tak­mark­anir inn­an­lands gilda til fimmtu­dags í næstu viku. Þórólfur mun vænt­an­lega senda heil­brigð­is­ráð­herra nýtt minn­is­blað um helg­ina.

[links]Frá 20. mars hafa 360 greinst með veiruna inn­an­lands og á landa­mær­unum. Níu hafa þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús sem er svip­aður hlut­falls­legur fjöldi og fyrr í far­aldr­inum. Hins vegar eru það heldur yngri ein­stak­lingar sem hafa þurft á inn­lögn að halda nú en í fyrri bylgjum að sögn sótt­varna­læknis. Öll þau smit sem greinst hafa síð­ustu vikur eru af völdum hins breska afbrigðis veirunnar.

Þórólfur til­tók fleiri töl­fræði­legar stað­reyndir um stöð­una á fund­inum og sagði að því loknu við­búið að ef útbreiðslan yrði mikil í sam­fé­lag­inu myndum við „sjá sams­konar mynstur og í fyrri bylgjum“. Í þeim hafa sam­tals tugir þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús og margir á gjör­gæslu­deild.

Spurður hvort að ástandið núna kalli mögu­lega á hertar sótt­varna­að­gerðir sagði Þórólfur að núver­andi aðgerðir, sem væru nokkuð harðar, virt­ust vera að halda far­aldr­inum „nokkuð vel í skefjum“. Ef meiri til­slak­anir væru í gangi værum við „örugg­lega“ að sjá meiri útbreiðslu veirunnar. „Það þarf ekki mikið til,“ sagði hann og benti á hvað gerst hefur síð­ustu daga í Þor­láks­höfn, á Selfossi og í leik­skóla í Reykja­vík þar sem hóp­sýk­ingar hafa sprottið upp „áður en við er litið“. Hann sagði ástandið nú ekki kalla á hert­ari aðgerðir en að vissu­lega þurfi að fylgjst vel með og grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana ef þess ger­ist þörf.

Um 80 pró­sent þeirra sem voru boð­aðir í bólu­setn­ingu í gær með bólu­efni AstraZeneca mættu og er það svipað hlut­fall og við hin bólu­efnin. Þetta sagði Þórólfur ánægju­legt. Hann sagði útlit fyrir að hingað verði komnir að minnsta kosti 360 þús­und skammta af bólu­efni í lok júní og eru þá ekki þá taldir með þeir skammtar sem koma af efnum AstraZeneca og Janssen því dreif­ing­ar­á­ætl­anir þeirra liggja ekki fyrir.

Sjálfur fékk Þórólfur fyrri spraut­una í gær Hann seg­ist ekki finna fyrir auka­verk­unum en hálf­part­inn voni það, því það þýði að bólu­efnið sé að virka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár