„Við Íslendingar höfum sterka rödd á alþjóðavettvangi“

Íslensk stjórn­völd þurfa að láta í sér heyra og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama vegna átaka milli Ísraels og Palest­ínu að mati þing­manna Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks. Þó svo að íslenska þjóðin sé fámenn hafi hún sterka rödd og hana þurfi að nota.

Allir hljóta að hafa skoðun á vegferð Ísraelsmanna að mati Hönnu Katrínar Friðriksson þingmanns Viðreisnar.
Allir hljóta að hafa skoðun á veg­ferð Ísra­els­manna að mati Hönnu Katrínar Frið­riks­son þing­manns Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Við Íslend­ingar höfum sterka rödd á alþjóða­vett­vangi. Það höfum við, þessi litla þjóð, sýnt oftar en einu sinni. Við þurfum að nota hana,“ sagði Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, um mál­efni Ísraels og Palest­ínu og við­brögð stjórn­valda á Alþingi í dag, í umræðum um störf þings­ins.

Hún sagði að ekki væri hægt að sitja aðgerð­ar­laus hjá. „Mann­rétt­inda­brot og brot á alþjóða­sam­þykktum eru ólög­leg líka í þessum heims­hluta og þau ber að stöðva með öllum ráðum. Líf og öryggi millj­óna manna; karla, kvenna og barna veltur á því að vopna­hléi verði komið á milli Ísraels og Palest­ínu og að frið­sam­leg lausn verði fundin til fram­búðar.“

Ljóst væri að Ísraelar væru í mik­illi yfir­burð­ar­stöðu gagn­vart Palest­ínu. „Hamas liðar hafa myrt óbreytta borg­ara í Ísrael en gagnárásir Ísra­els­hers hafa kostað tutt­ugu­falt fleiri lífið, þar á meðal fjölda barna. Það er reyndar ljóst að Ísrael hefur mikla yfir­burða­stöðu gagn­vart Palest­ínu, bæði hvað varðar hern­að­ar­afl og hvað varðar efna­hags­lega yfir­burði, meðal ann­ars í ljósi stuðn­ings frá erlendum ríkjum.“

Hanna Katrín sagði að hún ætl­aði ekki þykj­ast hafa lausn á ára­tuga­löngum deilum Ísraels og Palest­ínu en að hún hefði engu að síður skoðun á þeirri veg­ferð sem Ísra­els­menn væru á „og það hljótum við öll að hafa,“ bætti hún við.

„Níutíu og þremur milljörðum sullað á ófriðarbálið“

Meðal þess sem Hjálmar Bogi Haf­liða­son, vara­þing­maður Fram­sóknar, fjall­aði um í sinni ræðu um störf þings­ins var vopna­sala Banda­ríkj­anna til Ísraels. Hann vitn­aði í frétt Washington Post frá því í gær sem sagði frá 93 millj­arða króna vopna­sölu í fyrri hluta mán­aðar. Hjálmar sagði að með vopna­söl­unni hefðu Banda­ríkin sullað 93 millj­örðum á ófrið­ar­bálið.

Þá gagn­rýndi Hjálmar að full­trúi Banda­ríkj­anna í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna hefði þrí­vegis beitt neit­un­ar­valdi til að stöðva sam­eig­in­lega ályktun ráðs­ins, ályktun þar sem ofbeldi Ísra­els­manna er for­dæmt og hvatt er til vopna­hlés.

Að hans mati þyrfti að bregð­ast við strax. „Sama hversu smá við erum, við verðum að bregð­ast við og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Þessar deilur snú­ast ekki bara um Ísrael og Palest­ínu. Vísum gagn­rýn­inni þangað sem hún á heima.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár