Skýrsla Seðlabankans um fjárfestingarleiðina að klárast

Skýrsla sem Seðla­banki Íslands er að vinna um eigin vinnu­brögð í tengslum við hina umdeildu fjár­fest­ing­ar­leið sem hann bauð upp á milli 2012 og 2015 verður í fyrsta lagi til­búin um miðjan ágúst­mánuð.

Þeir sem nýttu sér fjárfestingarleiðina gátu fengið allt að 20 prósent virðisaukningu á fé sitt og leyst út gríðarlegan gengishagnað.
Þeir sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina gátu fengið allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu á fé sitt og leyst út gríð­ar­legan geng­is­hagnað.

Skýrsla sem Seðla­banki Íslands vinnur um hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans er alveg að verða til­búin. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands mun hún þó í fyrsta lagi verða til­búin um miðjan ágúst og í kjöl­farið verður tekin ákvörðun um hvenær hún mun koma fyrir augu almenn­ings.

[links]Kjarninn greindi frá því í jan­úar síð­ast­liðnum að gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands ynni að gerð skýrslu um fjár­fest­ing­ar­leið­ina sem bank­inn bauð upp á árunum 2012-2015. Auk þess kemur Arnór Sig­hvats­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, að vinn­unni. Seðla­bank­inn er því að rann­saka sjálfan sig. Til­gangur skýrslu­gerð­ar­innar er að varpa ljósi á mark­mið leið­ar­innar og árangur hennar við að búa í hag­inn fyrir losun fjár­magns­hafta. Upp­lýs­ingar um upp­runa þeirra þátt­tak­enda sem nýttu sér leið­ina verða birtar í skýrsl­unni eftir því „sem lög leyfa og nauð­syn­legt er til að ná mark­miðum skýrsl­unn­ar“.

Þá kom fram að Seðla­bank­inn vænti þess að skýrslan yrði gerð opin­ber innan fárra mán­aða.

Umtalsverð gagnrýni en engin óháð rannsókn

Vorið 2017 var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga á Alþingi um að skipa rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Sú til­laga gekk til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar sem kall­aði eftir umsögn­um, en komst ekki lengra í þing­legri með­ferð. Einn þeirra aðila sem skil­aði þá umsögn var Seðla­banki Íslands. Í henni sagði að bank­inn hefði „gert ræki­lega grein fyrir öllum þáttum áætl­un­ar­innar um losun fjár­magns­hafta[...]og fjár­fest­ing­ar­leið­inni. Fram­kvæmdin gekk vel, var skipu­leg og gagnsæ og upp­lýs­ingar hafa verið veittar um hana, nú síð­ast í ítar­legu svari við fyr­ir­spurn á Alþingi til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans sem lagt verður fram á næstu dög­um.“

Það svar barst i júní 2017. Um það má lesa hér.

[adspot]Heim­ildir Kjarn­ans herma að áhugi sé enn til staðar hjá hópi þing­manna að láta rann­sókn­ar­nefnd á vegum Alþingis rann­saka fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Málið var meðal ann­ars til umræðu á þingi 23. októ­ber í fyrra. Þar sagði Oddný Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, að „há­ar fjár­­hæðir hafa komið til lands­ins í gegn­um fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­bank­ans og eig­end­ur fengið þar veru­­leg­an gróða. Aðeins op­in­ber rann­­sókn get­ur aflétt þeirri leynd sem yfir þeirri leið rík­­­ir.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur áður gagn­rýnt fjár­fest­ing­ar­leið­ina opin­ber­lega, sagt hana hafa verið ósann­gjarna og falið í sér­ að­stöðumun milli inn­lendra og erlendra aðila. Í ofan­greindum umræðum sagði Bjarni að ef ein­hverjar vís­bend­ingar væru um að í fjár­fest­ing­ar­leið­inni hafi menn „verið með illa fengið fé sem ekki hafi verið talið fram á ferð­inni, þá tel ég al­­veg aug­­ljóst að slíkt eigi að skoða og ég tel ís­­lensk­um stofn­un­um ekk­ert að van­­bún­aði að fara í þau mál.“

Þagnarskylda trompar almannahagsmuni

Kjarn­inn hefur ítrekað farið fram á að fá upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og hversu háar fjár­hæðir hver og einn flutti til lands­ins. Seðla­banki Íslands hefur ítrekað hafnað þess­ari beiðni og vísað í þagn­ar­skyldu­á­kvæði þeirra laga sem gilda um starf­semi bank­ans. Kjarn­inn kærði synjun Seðla­banka Íslands til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála sem stað­festi synjun Seðla­bank­ans í lok jan­úar síð­ast­lið­inn.

Í kæru sinni vís­aði Kjarninn til þess að í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum hafi verið fjallað um fjár­fest­ing­ar­leið­ina og því meðal ann­ars velt upp hvort hún hafi leitt til þess að hluti af fjár­magni frá aflands­svæðum, sem orðið hafi til með ólög­mætum hætti, hefði skilað sér til Íslands með geng­is­af­slætti. Auk þess lægi fyrir sú alvar­lega stað­reynd að ekki virð­ist hafa átt sér stað nein upp­runa­vottun á því fé sem var fært til lands­ins í gegnum leið­ina. Rök­studdur grunur liggi fyrir um að af hluta fjár­ins hafi ekki verið greiddir rétt­mætir skattar hér­lendis. Sá grunur birt­ist meðal ann­ars í því að aðilar sem nýttu sér leið­ina séu til rann­sóknar vegna gruns um skattaund­an­skot.

Þá taldi Kjarninn að færa mætti rök fyrir því að fjár­fest­ing­ar­leiðin brjóti í bága við jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar í ljósi þess að um hafi verið að ræða stjórn­valds­að­gerð sem hafi ein­ungis staðið til boða fólki sem átti fyrst 50 þús­und evrur í lausu fé, og síðar 25 þús­und evrur, og ein­ungis Íslend­ingum sem áttu fé erlendis. Þeim hafi staðið til boða að fá virð­is­aukn­ingu á fé sitt í krafti þess að eiga fé erlendis. Þegar allt ofan­greint væri dregið saman liggi fyrir að almanna­hags­munir leiði til þess að upp­lýst verði hverjum hafi staðið til boða að færa fé til lands­ins með þessum hætti.

[adspot]Upp­lýs­ingar sem fjöl­miðlar hafi getað miðlað úr brota­kenndri og tak­mark­aðri upp­lýs­inga­gjöf Seðla­banka sýni að rök­studdur grunur sé á að fé sem ekki hafi verið greiddir rétt­mætir skattar af hafi verið færðir aftur inn í landið; fé sem mögu­lega ætti að vera eign kröfu­hafa ákveð­inna aðila hafi verið færðir inn í íslenskt efna­hags­líf og að þröngum hópi lands­manna hafi verið fært tæki­færi til að hagn­ast gríð­ar­lega úr hendi stofn­unar sem til­heyrir sann­ar­lega stjórn­sýslu Íslands.

Almanna­hags­mun­irnir væru enn rík­ari í ljósi þess að stjórn­sýslan hefði ekki sýnt af sér mik­inn vilja og nær enga getu til að sinna eft­ir­liti sem hún ætti að sinna. Þess vegna sé afar mik­il­vægt að fjöl­miðlar fái tæki­færi til þess að vinna þá vinnu sem stjórn­völd hafa ekki unnið.

Úrskurð­ar­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að í ljósi þess hversu for­taks­laus hin sér­staka þagn­ar­skylda sem getið er um í lögum um Seðla­banka Íslands sé þá komi hún í veg fyrir að „slíkar upp­lýs­ingar um við­skipta­menn bank­ans séu gerðar aðgengi­legar sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum, óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Hund­ruð millj­arða flutt til lands­ins

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­fest­ing­­ar­­­leið­inni frá því í febr­­­úar 2012 til febr­­­úar 2015, þegar síð­­­asta útboðið fór fram. Allt í allt komu um 1.100 millj­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar, sem sam­svarar 206 millj­örðum króna.

794 inn­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leiðar Seðla­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­sent þeirrar fjár­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­kvæmt skil­­­málum útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar.

[adspot]Afslátt­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­bank­ans er um 17 millj­­­arðar króna.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­­ar, er fjallað um fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­banka Íslands og því meðal ann­­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­­­magn­inu frá aflands­­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­ina. Sú skýrsla er gerð fyrir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­­lýs­inga um fjár­­­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­­taka í fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­bank­ans er ekki til stað­­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­­bank­ans þegar um grun­­­sam­­­legar fjár­­­­­magnstil­­­færslur er að ræða. Æski­­­legt má telja að sam­­­starf væri um miðlun upp­­­lýs­inga á milli þess­­­ara stofn­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár