Fjárfestingarleiðin: Meira en þriðjungur kom frá Lúxemborg og Sviss

Af þeim 72 millj­örðum sem Íslend­ingar komu með í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands komu 42 millj­arðar frá inn­lendum aðilum með búsetu ann­ars staðar en á Íslandi.

Meiri­hluti þess fjár sem íslenskir fjár­festar fluttu inn til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands kom frá Íslend­ingum búsettum erlendis. Af þeim 72 millj­örðum króna sem Íslend­ingar fengu fyrir gjald­eyri sem þeir skiptu í gegnum leið­ina komu um 42 millj­arðar króna frá inn­lendum aðilum með búsetu ann­ars staðar en á Íslandi. Þar af komu fimm millj­arðar króna beint frá skil­greindum lág­skatta­svæðum og 15,4 millj­arða króna frá íslenskum aðilum skráðum í Lúx­em­borg, á Möltu eða Kýpur. Þeir sem fjár­festu mest á for­sendum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar voru aðilar með skráða búsetu í ann­ars vegar Lúx­em­borg og hins vegar Sviss.

Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Alls komu um 1.100 millj­ónir evra, um 206 millj­arðar króna, til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina á meðan að hún var í boði á árunum 2012 til 2015, en síð­asta útboðið fór fram í febr­úar það ár. Þeir sem nýttu sér leið­ina gátu skipt evrum í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en almenn var í boði gegn því að þeir nýttu krón­urnar til að fjár­festa á Íslandi. Seðla­bank­inn var milli­göngu­að­ili í við­skipt­unum og hann­aði leið­ina, en þeir sem létu krónur frá sér með afslætti voru svo­kall­aðir aflandskrónu­eig­endur, sem ann­ars sátu fastir í íslenskum höftum.

Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var sam­kvæmt svar­inu 31 millj­arður króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­fest­inga­kost­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hafi fengið, sam­kvæmt svar­inu, um 15 pró­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

Fengu 72 milljarða

Kjarninn hefur áður greint frá því að 794 inn­lendir aðilar hafi nýtt sér leið­ina. Voru þá erlend félög í eigu inn­lendra aðila talin sem inn­lendir fjár­festar.

Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið. Þeir fengu alls 72 millj­arða króna fyrir þær evrur sem þeir skiptu í gegnum leið­ina. Virð­is­aukn­ingin er því um ell­efu millj­arðar króna.

Í svar­inu við fyr­ir­spurn Björns Leví er þessi hópur brot­inn frekar niður í fyrsta sinn. Þar kemur fram að ein­ungis hluti þeirra inn­lendu aðila sem nýttu sér leið­ina hafi verið búsettir hér­lendis. Raunar er minni­hluti þeirra sem flokk­aðir eru þannig með heim­il­is­festi á Íslandi. Af þeim 795 inn­lendu aðilum sem komu með fé í gegnum leið­ina og keyptu eignir með afslætti voru 301 búsettir hér­lendis. Þeir komu sam­tals með 160 millj­ónir evra af þeim 385 millj­ónum evra sem inn­lendir aðilar komu með inn í landið í gegnum leið­ina, eða um 42 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar.

Restin, alls 225 millj­ónir evra, kom frá inn­lendum aðilum sem búa erlendis. Ekki er gerður grein­ar­munur á ein­stak­lingum eða lög­að­ilum í þeim tölum sem birtar eru í svar­inu og því eru góðar líkur á því að ein­hver þeirra aðila sem skráðir eru með búsetu erlendis séu félög í eigu aðila sem sann­ar­lega eiga heima á Íslandi. Í svar­inu kemur hins vegar fram að 170 af þeim 206 millj­örðum króna sem komu til lands­ins í gegnum leið­ina hafi komið frá lög­að­ilum, eða 36 millj­arðar króna frá ein­stak­lingum.

Mest frá Lúxemborg og Sviss

Íslend­ingar komu sér vel fyrir í Lúx­em­borg fyrir hrun. Þar ráku íslensku bank­arnir umsvifa­mikla einka­banka- og eigna­stýr­ing­ar­starf­semi fyrir vel setta við­skipta­vini. Hluti af þjón­ustu þeirra var að setja upp félög fyrir þá við­skipta­vini í löndum þar sem skatta­hag­ræði var að finna. Það fé sem rann í gegnum það skatta­hag­ræði end­aði oft í aflands­fé­lögum á stöðum eins og Tortóla, sem til­heyrir Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Þau félög sem Íslend­ingar stofn­uðu með þessum hætti skipta þús­undum. Hluti þeirra var opin­ber­aður í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu. Þá hafa fjár­sterkir Íslend­ingar líka lengi verið gjarnir á að geyma pen­ing­anna sína í Sviss.

Í svari ráð­herr­ans kemur fram að þessi tvö lönd, Lúx­em­borg og Sviss, eru búsetu­lönd þeirra fjár­festa sem komu með mest fé til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Fjár­festar, þ.e. ein­stak­lingar eða félög, með skráða búsetu í Lúx­em­borg komu með 207 millj­ónir evra, eða um 19 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem flæddi til Íslands vegna leið­ar­innar. Þeir sem voru með skráða búsetu í Sviss komu með 17 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar.

Í svar­inu segir að bein kaup lög­að­ila frá lág­skatt­ar­svæðum, eins og t.d. Bresku Jóm­frú­areyj­unum, í meiri­hluta­eigu Íslend­inga hefðu numið 26 millj­ónum evra, eða um fimm millj­örðum króna. Frá Lúx­em­borg, Kýpur og Möltu, sem eru ekki skil­greind sem lág­skatt­ar­svæði sam­kvæmt lista fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, tóku 12 lög­að­ilar í meiri­hluta­eigu íslenskra aðila þátt og komu sam­tals með 15,2 millj­arða króna inn í landið.

Ekki upplýst hverjir nýttu sér leiðina

Þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir Kjarnans hefur Seðla­bank­inn né fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ekki viljað upp­lýsa um hvaða aðilar þetta eru. Seðla­bank­inn telur sér það ekki heim­ilt vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um Seðla­banka Íslands.

Ólafur Ólafsson er á meðal þeirra sem hafa nýtt sér fjárfestingarleiðina til að koma peningum með virðisaukningu inn í landið.
Ólafur Ólafsson er á meðal þeirra sem hafa nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina til að koma pen­ingum með virð­is­aukn­ingu inn í landið.

Fjöl­miðlar hafa hins vegar verið dug­legir við að segja fréttir af þeim aðilum sem blasað hefur við að hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina við að flytja pen­inga erlendis frá til lands­ins. Félög í eigu þeirra aðila hafa þá oftar en ekki ráð­ist í skulda­bréfa­út­gáfu sem sömu aðilar hafa keypt fyrir krón­urnar sem þeir fá fyrir gjald­eyr­inn sinn, og þar með hefur ákvæði um bind­ingu í verð­bréfum verið full­nægt. Með því að skoða gögn sem send eru inn til fyr­ir­tækja­skráar vegna slíkra við­skipta er hægt að sjá hverjir hafi nýtt sér leið­ina. En þær upp­lýs­ingar eru bundnar við að við­kom­andi viti af hverju hann er að leita. Því má líkja leit­inni við leit að nál í hey­stakki.

Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, Jóns Ólafs­son­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­son­ar, Ólafs Ólafs­son­ar, Hjör­leifs Jak­obs­son­ar, Ármanns Þor­valds­son­ar, Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­ers­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­ar.

Mikill gengishagnaður

Í ljósi þess að sami aðili gat gefið út skulda­bréf og keypt þau með fjár­munum félags síns í útlöndum og samt upp­fyllt skil­yrði fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kemur ekki á óvart að stærstur hluti þess fjár­magnsinn­streymis sem kom inn til lands­ins í gegnum leið­ina, eða 47 pró­sent, runnu til kaupa á skulda­bréfum. Um 40 pró­sent fóru í að kaupa hluta­bréf, 12 pró­sent til kaupa á fast­eignum og tæp­lega eitt pró­sent til kaupa hlut­deild­ar­skír­teinum verð­bréfa­sjóða.

Það skil­yrði var sett að binda þyrfti fjár­fest­ing­una í fimm ára áður en hún yrði laus til ráð­stöf­unar. Þeir sem komu með fé í gegnum leið­ina í fyrstu fimm útboðum Seðla­bank­ans hafa því þegar upp­fyllt þá kvöð og geta þess vegna farið með féð aftur út ef þeir vilja. Heild­ar­upp­hæðin sem kom í gegnum fyrstu fjögur útboðin var 122,6 milj­ónir evra. Þeir aðilar sem nýtt sér þau fengu alls 9,5 millj­arða íslenskra króna í virð­is­aukn­ingu. Með­al­mið­gengi evru í þessum útboðum var um 241 króna. Það þýðir að þeir sem tóku þátt fengi 241 krónur fyrir hverja evru sem þeir skiptu. Þeir fengu því sam­tals um 29,5 millj­arða króna fyrir evr­urnar sínar.

Ofan á það sem þessir aðilar græddu bara við að ferja pen­ing­anna inn í landið þá verður að ætla að þeir hafi fengið ávöxtun á það fé hér inn­an­lands á síð­ustu fimm árum. Hluta­bréfa­verð hefur til að mynda hækkað mikið og fast­eigna­verð hefur hækkað um tugi pró­senta. En án til­lits til slíkrar ávöxt­unar hafa þessir aðilar samt sem áður fengið mjög fína ávöxtun vegna geng­is­breyt­inga. Ef þeir myndu skipta öllum krón­unum sínum sem þeir fengu í útboð­unum fjórum árið 2012 í evrur í dag myndu þeir fá 249 millj­ónir evra. Þeir hafa því rúm­lega tvö­faldað fjár­fest­ingu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár