Gunna: Stór kona í Íslandssögunni

Guðrún Ögmunds­dóttir kom í gegn byltingu á réttar­stöðu minnihluta­hópa á Íslandi.

Guðrún Ögmunsdóttir
Guðrún Ögmuns­dóttir Lést á gaml­árs­dag, 69 ára gömul, en áhrif hennar lifa áfram. Mynd: Hinsegindagar.is

Guðrún Ögmundsdóttir var ekki aðeins hjartahlý og réttsýn, eins og flestir muna hana. Hún var líka raunsæ, nagli og töffari. Og skaplaus var hún ekki.

Hér verður brugðið upp svipmynd af Guðrúnu, sem lézt á gamlársdag 2019 eftir snarpa baráttu við krabba­mein, aðeins 69 ára gömul. Myndin er einkum af hinni opinberu persónu, sumsé hvernig Guðrún birtist í verkum sínum sem kjörinn fulltrúi í borgar­stjórn og á Alþingi.

En líka sitthvað fleira.

Gunna

Fyrst þó þetta: Sá sem skrifar hér naut þess að eiga Guðrúnu að vini svo áratugum skipti. Það litar áreiðanlega þessa svipmynd og rétt er að fólk hafi það í huga við lesturinn.

Og það leiðir af sér annað: Héðan í frá verður talað um Gunnu. Í því felst engin óvirðing, þvert á móti. Þannig vildi hún birtast fólki. Sem Gunna Ögmunds eða bara Gunna Ö.

Þannig var Gunna.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár