Bjarni hefur ekki gert upp við sig hvort olíufélög hafi brotið gegn neytendum

„Ég hef ekki gert það end­an­lega upp við mig hvort hér hafi ríkt eitt­hvað það ástand sem hafi sýnt ein­hvers konar brot gagn­vart neyt­endum eða ein­hverja okur­á­lagn­ingu. Ég spyr mig hvort slík ofur­á­lagn­ing geti verið til­fellið ef félögin skila engum rekstr­ar­hagn­aði. Maður hlýtur að spyrja sig að því,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra á þingi í dag, þegar hann var spurður að því hvort hann væri sam­mála mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á því að olíu­fé­lögin hafi haft ofur­á­lagn­ingu á bens­íni hér á landi.

Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Bjarna um nýút­komna skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um olíu­mark­að­inn í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma í dag. Helgi tal­aði um skýrsl­una sem enn einn áfell­is­dóm­inn yfir olíu­fé­lög­unum og fram­göngu þeirra á bens­ín­sölu­mark­aði. Hann sagð­ist vilja spyrja ráð­herra sam­keppn­is­mála hvort hann taki undir það að á þessum mark­aði „hafi verið óvið­un­andi ástand um langt ára­bil með óhóf­legum kostn­aði fyrir bíl­eig­endur í land­inu.“

Bjarni var stjórn­ar­for­maður í olíu­fé­lag­inu N1, á árunum 2005 til 2008, en skýrsla Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins tók meðal ann­ars til þess­ara ára.

Bjarni sagði að það hefði eng­inn efast um það að fákeppni ríkti á olíu­mark­aði á Íslandi eins og á svo mörgum öðrum mörk­uðum. „En það þýðir ekki að það geti ekki ríkt hörð sam­keppni á milli fákeppn­is­að­il­anna.“ Þá væru félögin ólík í eðli starf­semi og hvað varðar rekstr­ar­af­gang.

Helgi spurði Bjarna einnig um það hvort honum þyki koma til greina að taka upp opin­bera verð­stýr­ingu á þessum mark­aði. Því hafn­aði Bjarni og sagð­ist telja opin­bera verð­lagn­ingu afleita. „Hversu lengi eigum við að una því að millj­arðar séu teknir af heim­il­unum á hverju ári í óhóf­legt okur á bens­íni án þess að haf­ast nokkuð að hér í þing­inu?“ spurði Helgi Bjarna þá.

„Ef ætti að fara út í ein­hverja opin­bera verð­lagn­ingu hér þá þyrftum við að fara í sam­eig­in­leg inn­kaup til lands­ins sýn­ist mér, eða hvernig eiga menn að sitja uppi með eitt sam­eig­in­legt opin­bert verð sem hafa ólíkan inn­kaupa­kostnað. Það er mörgum spurn­ingum ósvarað þegar þessu er slengt fram,“ svar­aði Bjarni. Hann sagð­ist jafn­framt fagna útgáfu skýrsl­unnar og sagð­ist endi­lega vilja taka umræð­una um þessi mál með „mark­viss­ari og mál­efna­legri hætti“ en í fyr­ir­spurn­ar­tíma þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár