Vinnslustöðin krefst þess að farið sé að lögum - Vill meiri kvóta

Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum hyggst gera athuga­semdir við „fjöl­mörg atriði“ mak­ríl­frum­varps­ins, að því er fram kemur í umsögn fyr­ir­tæks­ins sem birt hefur verið á vef Alþingis. Í henni er vísað til álits Umboðs­manns Alþingis, sér­stak­lega, þar sem fram kemur að úthlutun á mak­ríl­kvóta til þessa hafi ekki verið í sam­ræmi við lög. Í umsögn Vinnslu­stöðv­ar­innar, sem Ragnar H. Hall hrl. ritar, eru þing­menn hvattir til þess að kynna sér álit Umboðs­manns Alþingis. Samtals hafa nú borist 24 athuga­semdir við frum­varpið.

Er þar meðal ann­ars vísað í eft­ir­far­andi orð í áliti Umboðs­manns Alþingis: „Eins og orða­lagi 2. málsl. 2. mgr. 5.gr. laga nr 151/1996, sem og 8. og 9. gr. laga nr. 116/2006, er háttað verður að mínu áliti ekki annað lagt til grund­vallar en að íslenskum stjórn­völdum beri að fylgja ákvœðum laga við úthlutun afla­heim­ilda til ein­stakra skipa óháð vilja ráð­herra eða ann­arra.“

Kemur fram í umsögn­inni að Vinnslu­stöðin telji það mikið umhugs­un­ar­efni að stjórn­völd ætli ekki að fara að lögum, og boða mun fleiri athuga­semdir við frum­varpið í frek­ari umsögnum.

Þá telur Vinnslu­stöðin enn fremur að fyr­ir­tækið eigi að fá meiri­hlut­deild í mak­ríl­kvót­anum en raunin er, en miðað frum­varpið og for­sendur þess, fær fyr­ir­tækið 9,22 pró­sent af heild­ar­kvót­anum. „Vinnslu­stöðin hf. telur að ef farið hefði verið að lögum um stjórn fisk­veiða árið 2011 og úthlutað hefði verið miðað við veiði­reynslu sl. 3 ára, sbr. 1. mgr. 9. gr. 1. nr. 116/2006, hefði hlut­deildin átt að vera 10,18% en ekki 9,22% eins og raunin varð. Ef úthlutað hefði verið eftir úthafsveiði­lög­unum og úthlutun mið­ast við þrjú bestu veiði­tíma­bil á sið­ustu sex, sbr. 2. mgr. 5. gr. 1. nr. 151/1995 þá hefði hlut­deild VSV átt að vera 11,6% í stað 9,22%. Ljóst er að hér er um afar mikla hags­muni að ræða. Laga­setn­ing um slík atriði er vanda­söm og krefst mik­illar vand­virkni. Vinnslu­stöðin hf. leggur áherslu á að laga­setn­ingin má undir engum kring­um­stæðum fela í sér aft­ur­virka skerð­ingu á rétt­indum sem telj­ast eign­ar­rétt­ar­varin sam­kvæmt stjórn­ar­skrá,“ segir í umsögn­inni.

[caption id="attachment_27988" align="alignnone" width="361"] Þessi mynd birt­ist í Fiski­fréttum á dög­unum, sem sýnir skipt­ingu 90 pró­sent af mak­ríl­kvót­anum. Inn á mynd­inni stendur að Brim fái 13,8 pró­sent af heild­inni, en reyndin er 3,8 pró­sent. Mynd: Fiski­fréttir.[/caption]

Þessi mynd birtist í Fiskifréttum á dögunum, sem sýnir skiptingu 90 prósent af makrílkvótanum. Mynd: Fiskifréttir.
Þessi mynd birt­ist í Fiski­fréttum á dög­unum, sem sýnir skipt­ingu 90 pró­sent af mak­ríl­kvót­anum. Mynd: Fiski­fréttir.

Samkvæmt frum­varp­inu verður afla­hlut­deildum (kvóta) úthlutað niður á skip í áþekkum hlut­föllum og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári. Enda byggir úthlut­unin á núver­andi fisk­veiði­ári á veiði­eynslu fyrri ára. Útgerðir skipa og báta sem hafa afla­reynslu frá árunum 2011-2014 fá afla­hlut­deild í mak­ríl úthlutað. Hömlur eru ekki á við­skiptum með afla­heim­ildir, það er kvót­inn verður fram­selj­an­legur.

Í mak­ríl­frum­varpi ráð­herra verður kvóta­skipt­ing eft­ir­far­andi:


  1. a) 90% til báta/skipa sem hafa afla­reynslu frá árunum 2011-2014 (upp­sjávar-, frysti- og ísfisk­skip).

  2. b) 5% til smá­báta sem veitt hafa mak­ríl með línu eða hand­færi á árunum 2009-2014.

  3. c) 5% til fiski­skipa í flokki a) sem unnu sér­stak­lega í mann­eld­is­vinnslu.


Ríflega 30 þús­und manns hafa nú kraf­ist þess að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fari fram um öll lög sem í sér úthlutun á fisk­veiði­auð­lind­inni til lengri tíma en eins árs í senn, á vef síð­unni Þjóð­ar­eign.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár