Khedr-fjölskyldan ekki flutt úr landi

Fjöl­skyldan fannst ekki þegar stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hugð­ist fram­kvæma brott­vísun.

Ekki flutt úr landi
Ekki flutt úr landi Khedr-fjöl­skyldan fannst ekki þegar átti að flytja hana nauð­uga úr landi í morgun. Mynd: Sema Erla Serdar

Ekki tókst að vísa egyp­sku Khedr-fjöl­skyld­unni úr landi í morgun. Fjöl­skyldu­með­limir reynd­ust ekki vera á fyr­ir­fram ákveðnum stað þegar stoð­deild rík­is­lög­erglu­stjóra hugð­ist flytja þau úr landi. Í til­kynn­ingu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra segir að ekki sé vitað um dval­ar­stað fjöl­skyld­unnar en málið sé enn á borði stoð­deildar. Ekki verði veittar frek­ari upp­lýs­ingar um málið.

Til stóð að flytja fjöl­skyld­una úr landi í morgun, með flugi Icelandair til Amster­dam. Sú flug­vél fór í loftið klukkan 7:31 í morgun, án fjöl­skyld­unnar. 

Lögmaður fjöl­skyld­unnar, Magnús D. Norðdal, lýsti því í sam­tali við Stundina fyrr í morgun að hann hefði ekki náð sam­bandi við fjöl­skyld­una í allan gær­dag og ekki í morgun heldur. Sömu sögu hafði Sema Erla Serdar, for­maður Solaris sam­tak­anna, sem hefur barist fyrir því að fjöl­skyldan fái vernd hér á landi. 

Stundin óskaði upp­lýs­inga frá rík­is­lög­reglu­stjóra í morgun, sím­leiðis, um stöðu mála varð­andi brott­vikn­ing­una. Upp­lýs­inga­full­trúi emb­ætt­is­ins sagð­ist myndi hringja til baka með upp­lýs­ingar en það hefur enn ekki gerst. Embættið sendi hins vegar til­kynn­ingu frá sér með ofan­greindum upp­lýs­ingum og þar er til­tekið að ekki verði veittar frek­ari upp­lýs­ingar um málið að svo stöddu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár