Aðeins fjórtán ný smit greind á einum sólarhring

Jafn­mörgum hefur nú batnað af COVID-19 og eru með virk smit. Elsti sjúk­ling­ur­inn er 103 ára íbúi á öldr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík.

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.689 hér á landi. Í gær voru þau 1.675 og hefur þeim því aðeins fjölgað um fjórtán síð­asta sól­ar­hring­inn. Í dag eru 3.080 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 3.678. Alls hafa 15.498 lokið sótt­kví.

Í dag er 841 ein­stak­lingur með virkt COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 918. Elsti sjúk­ling­ur­inn er 103 ára gömul kona, íbúi á öldr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík.

Jafn­margir eða 841 hefur náð bata.

Ellefu ný smit greindust í því 561 sýni sem tekið var á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær. Af 941 sýni sem tekið var hjá Íslenskri erfða­grein­ingu fund­ust þrjú ný smit. Alls hafa 34.635 sýni verið tekið hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Enn er yfir helm­ingur þeirra sem grein­ist með sýk­ingu þegar í sótt­kví sem sótt­varna­læknir hefur sagt sýna mik­il­vægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunnar.

Á sjúkra­húsi liggja fjöru­tíu sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af ell­efu á gjör­gæslu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru átta látin. Einn sjúk­lingur lést síð­asta sól­ar­hring­inn á Land­spít­al­anum.

Gert er ráð fyrir því að rúm­lega 2.100 manns muni grein­ast með COVID-19 hér á landi í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð 2.600 sam­kvæmt svart­sýnni spá. Þetta kemur fram í for­spá vís­inda­manna Háskóla Íslands, Land­spít­ala og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sem mið­ast við gögn til og með 5. apríl.

[links]Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúk­dóm nái hámarki í þess­ari viku og að þeir verði um 1.400 tals­ins. Samkvæmt svart­sýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 ein­stak­lingar hafi þá virkan sjúk­dóm á sama tíma.

Samkvæmt nýj­ustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins fer yfir þurfi 140 manns að leggj­ast inn á sjúkra­hús, en fjöld­inn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heil­brg­iðis­þjón­ustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­lingar.

Uppfærð for­spá gerir ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni 28 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega og þurfa gjör­gæslu­inn­lögn, en svart­sýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúk­lingar verði allt að 41 tals­ins.

Mestu álagi á gjör­gæslu­deildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúk­lingar liggi á gjör­gæslu á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 19 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár