Mynd: Birgir Þór Harðarson

Árið sem landsliðið bjargaði þjóðinni frá sjálfri sér

Árið 2016 náði Ísland eig­in­lega að vinna EM án þess að vinna það raun­veru­lega. Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri Kjarnans var á mót­inu og skrif­aði ítar­lega um það sem fram fór, áhrif þess á íslenskt sam­fé­lag og allt hitt sem skiptir öllu en samt engu máli.

Það hefur ekki verið auð­velt að vera Íslend­ingur síð­ustu tæpu átta árin. For­dæma­laust efna­hags­hrun og erfitt upp­gjör þess hafa séð til þess að þjóðin hefur rif­ist inn­byrðis um allt og ekk­ert nær linnu­laust.

Opin­berun Panama­skjal­anna, sem sýndu að hund­ruð efn­aðra Íslend­inga, m.a. þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, áttu millj­arða króna falda í þekktum skatta­skjólum var ekki til að bæta ástand­ið. Stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar - þar sem venju­legt milli­stétt­ar­fólk hóp­að­ist saman fyrir framan þing lands­ins - leiddu af sér afsögn valda­mesta manns lands­ins og ýttu úr vör stjórn­mála­legri kreppu sem vand­séð var hvernig ætti að leys­ast. Svo virt­ist sem hið djúpa sár á þjóð­arsál­inni væri að rifna enn meira upp frekar en að gróa. En svo byrj­aði EM.

Gullna kyn­slóðin

Fyrst skulum við spóla aðeins til baka. Íslensk knatt­spyrna hefur tekið ótrú­legum fram­förum á und­an­förnum árum. Það þekkja ansi margir sög­una um litlu eyþjóð­ina, með aðeins fleiri íbúa en Bergen, sem átt­aði sig á því rétt fyrir alda­mótin síð­ustu að hún myndi lík­lega ekki ná neinum árangri í knatt­spyrnu með því að spila á mal­ar­völlum í aftaka­veðri og myrkri átta mán­uði á ári. Þess vegna var ráð­ist skipu­lega í að byggja tíu knatt­spyrnu­hallir og á þriðja tug gervi­gras­valla. Sam­hliða bættri aðstöðu þá hefur menntun þjálf­ara verið aukin þannig að meira segja þeir sem þjálfa yngstu iðk­enda eru margir með UEFA A- eða B-gráðu. Upp­skeran lét þó á sér standa. Íslenska lands­liðið hélt áfram að geta ekk­ert árum sam­an. Eitt­hvað var samt sem áður að gerj­ast í mold­inni sem sáð hafði verið í. Sá árangur birt­ist fyrst í und­ankeppni úrslita­keppni EM U-21 árs liða, sem fram fór í Dan­mörku sum­arið 2011.

Íslenska liðið vann leik eftir leik og tryggði sig á loka­mót­ið. Burða­rás­arnar í lið­inu voru strákar sem notið höfðu góðs af bættu aðstöð­unni, bættu þjálfun­inni og hinum aukna metn­aði sem settur hafði verið settur í íslenska knatt­spyrnu. Á meðal þeirra sem léku lyk­il­hlut­verk í þessu liði voru Gylfi Sig­urðs­son, Aron Einar Gunn­ars­son, Birkir Bjarna­son, Jóhann Berg Guð­munds­son og Kol­beinn Sig­þórs­son. Nær allir aðrir leik­menn þessa U-21 árs liðs hafa síðar leikið A-lands­liðs­leiki. Þótt lið­inu hafi ekki gengið neitt sér­stak­lega vel á mót­inu í Dan­mörku þá var flestum ljóst að þetta voru sér­stakir dreng­ir. Gullna kyn­slóð íslenskrar karlaknatt­spyrnu var að fæð­ast.

Þetta sama sumar var Lars Lag­er­bäck ráð­inn lands­liðs­þjálf­ari Íslands. Hann var fyrsti útlend­ing­ur­inn til að þjálfa liðið frá því að landi hans Bo Johans­son lét af störfum 20 árum áður. Íslenska knatt­spyrnu­sam­bandið hafði gefið það út að stórt nafn yrði ráðið og á meðal þeirra sem rætt var við var Roy Kea­ne. Í dag eru Íslend­ingar ákaf­lega fegnir að þær áætl­anir hafi verið lagðar á hill­una. Lars og gullna kyn­slóðin breyttu nefni­lega öllu.

Í fyrstu und­ankeppni sinni byggði Lars Lag­er­bäck liðið sitt í kringum þessa ungu leik­menn. Hann bland­aði þeim saman við veðr­aða og granít­harða járn­menn eins og Kára Árna­son og Ragnar Sig­urðs­son og skóp vel smurða 4-4-2 vél sem hefur ekki slegið feiltakt síð­an. Leik­menn­irnir báru áður óþekkta virð­ingu fyrir Sví­anum og hann inn­leiddi bæði fag­mennsku og aga sem hafði ekki verið til stað­ar. Í und­ankeppni síð­asta heims­meist­ara­móts komst liðið alla leið í umspil gegn Króa­tíu þar sem grát­legt tap á úti­velli stóð á milli þess og Bras­il­íu. Margir héldu að þar með hefði eina tæki­færi Íslands til að kom­ast á loka­mót runnið lið­inu úr greip­um. Þeir höfðu rangt fyrir sér.

Bestir í að spila ljóta knatt­spyrnu

Fyrir EM þurfti ekk­ert umspil. Ísland vann sjálft Hol­land tvisvar á leið sinni til að tryggja sér rétt­inn til að spila í Frakk­landi í sum­ar. Þrátt fyrir það átti eng­inn von á því að liðið gerði neinar rósir á mót­inu. Flestir sér­fræð­ingar voru sam­mála um að Ísland, ásamt mögu­lega Ung­verj­um, væri það lið sem hefði minnst gæði.

Gæði eru hins vegar alls kon­ar. Það eru til að mynda gæði að geta fylgt skipu­lagi út í þaula. Það eru gæði að búa yfir nægum klókindum og skyn­semi til að stýra þróun leikja án þess að vera með bolt­ann nema tæp­lega 30 pró­sent leiks­ins. Það eru gæði að geta bætt upp fyrir skort á hraða og tækni með því að nýta hvern ein­asta eig­in­leika sem hver leik­maður hefur til hins ítrasta. Það eru gæði að geta myndað sterk per­sónu­leg sam­bönd við liðs­fé­laga sína sem gera það að verkum að leik­menn eru til­búnir að ganga í gegnum veggi fyrir hvern ann­an. Það eru gæði að vera ekki bara menn sem spila saman í liði, heldur nánir vin­ir. Íslenska liðið leikur kannski öðru­vísi knatt­spyrnu en þykir hefð­bundið í dag. En það spilar ekk­ert annað lið í heim­inum hina full­komnu ljótu knatt­spyrnu jafn vel og það ger­ir.

Allt breyttist...um tíma

Árangur íslenska lands­liðs­ins í Frakk­landi breytti Íslenskri knatt­spyrnu um ókomna tíð. Héðan í frá vita allir af Íslandi og íslenskum leik­mönn­um. Verð­gildi þeirra hækk­aði og virð­ingin sömu­leið­is. Allt var breytt.

Sam­hliða því að íslensku strák­arnir spil­uðu sig inn í hug og hjörtu heims­ins, og sjálfa sig í hærri knatt­spyrnu­legar hæð­ir, þá unnu þeir líka tíma­bundið sam­fé­lags­legt afrek. Á Íslandi var um stund ekki rif­ist lengur enda er ekk­ert talað um neitt annað en knatt­spyrnu. Og þegar kemur að henni voru allir sam­mála. Íslenskt sam­fé­lag var vart starf­hæft sökum spennu og áhuga. Nær tíu pró­sent þjóð­ar­innar fór til Frakk­lands til að hvetja þá áfram og önnur tíu pró­sent reyndu árang­urs­laust að verða sér úti um flug og miða á síð­ustu leik­ina. Þeir söfn­uð­ust þús­undum saman á torgum til að horfa á liðið á risa­skjám og orsök­uðu þjóð­há­tíð­ar­stemmn­ingu á götum úti í kjöl­far sigra sinna. Fyrsta verk nýs for­seta lands­ins var að mæta á leik liðs­ins gegn Eng­lend­ingum í 16-liða úrslitum EM.

Eftir að hafa leitað að lækn­ingu við sundr­ung­unni sem hefur skaðað okkur svo mjög und­an­farin ár í allskyns ein­stak­ling­um, stjórn­mála­stefnum og sam­fé­lags­breyt­ingum fundum við hana í knatt­spyrnu­liði. Þetta litla, hug­aða, heið­ar­lega, harða og hrein­skilna, en pínu­lítið ljóta, lið var orðið að sam­ein­ing­ar­tákni heillar þjóð­ar. Og bjarg­aði um leið þjóð sinni frá sjálfri sér. Að minnsta kosti á meðan þetta stóð allt saman yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið undanfarið ár