Ísing kann að hafa grandað þotu AirAsia

Slæmt veður er talið hafa grandað Airbus-far­þega­þotu AirAsia á Javahafi fyrir réttri viku síðan. Indónesísk yfir­völd hafa greint fyr­ir­liggj­andi gögn og kom­ist að nið­ur­stöðu um að veð­ur­skil­yrði hafi hratt af stað atburða­rás sem end­aði með því að þotan fórst með alla 162 far­þega sína.

Aðstæður til leitar þar sem þotan er talin hafa hrapað í hafið eru slæmar og hefur það hamlað allri frek­ari leit að líkum far­þega og flaki vél­ar­innar. Yfirvöld í Indónesíu hafa jafn­framt greint frá því að nú, viku eftir slysið, sé erfitt að bera kennsl á lík far­þeg­anna eftir volkið í haf­inu.

Mikið kapp er einnig lagt í að finna flug­rita vél­ar­innar til að fá nákvæmar upp­lýs­ingar um hvað átti sér stað um borð í vél­inni áður en hún skall í hafið. AFP-frétta­stofan greinir frá þessu.

https://www.youtube.com/watch?v=1BkgG2aKFP8

Flaug inn í 85 gráðu frost


Far­þega­þotan tók á loft frá Surabaya, næst stærstu borg Indónesíu, sunnu­dag­inn 28. des­em­ber og hafði flogið í fáeinar klukku­stundir áleiðis til Singapúr þegar sam­band við vél­ina rofn­aði. Fyrstu vís­bend­ingar bentu til þess að vélin hafi flogið inn í óveður.

„Byggt á þeim upp­lýs­ingum sem hefur verið aflað á þeim stað þar sem sam­band rofn­aði við vél­ina er veðrið orsök slyss­ins,“ segir í skýrslu indónesískra yfir­valda. Inn­rauðar gervi­tungla­myndir voru not­aðar til að greina nánar hita­stig skýj­anna sem vélin hefur flogið inn í. Minnsta hita­stig skýj­anna var á bil­inu -80 til -85°c.

„Veðrið hefur því lík­leg­ast skapað ísingu sem getur skemmt vélar þot­unnar vegna mik­illar kæl­ingar. Þetta er hins vegar aðeins einn mögu­leiki þess sem gæti hafa gerst byggt á þessum veð­ur­fræði­gögnum,“ segir enn fremur í skýrsl­unni.

[caption id="attachment_15901" align="alignnone" width="1024"] Hjálp­ar­sveitir hafa end­ur­heimt hluta af flaki vél­ar­innar úr haf­inu á lið­inni viku. Aðgerðin er flókin og erfið enda hafa veð­ur­skil­yrði ekki verið góð.[/caption]

Enn er á huldu hvers vegna aðrar far­þega­vélar á sömu slóðum urðu ekki fyrir áhrifum af verð­inu. Rann­sak­endur hafa því lagt áherslu á að finna flug­rita far­þega­þotu AirAsia enda liggja ekki fyrir næg gögn til að segja til um orsök með nægi­legri vissu.

Fimm stórir hlutar vél­ar­innar hafa fund­ist undan ströndum eyj­unnar Bornero. Fjöldi líka far­þega sem fund­ist hafa er nú 34. Flak vél­ar­innar er talið liggja á sjáv­ar­botni en kaf­arar hafa átt erfitt með að finna nokkuð á svo miklu dýpi vegna lélegra sjón­skil­yrða.

Staðurinn þar sem þotan hvarf af ratsjám


[google_map width="100%" height="300px" src="https://www.google.com/maps/embed?pb=!1m14!1m8!1m3!1d8157011.204639039!2d109.6911!3d-3.3708!3m2!1i1024!2i768!4f13.1!3m3!1m2!1s0x0%3A0x0!2zM8KwMjInMTQuOSJTIDEwOcKwNDEnMjguMCJF!5e0!3m2!1sen!2s!4v1420380847320"]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár