Alls verða 200 milljónir króna settar í aukin framlög til skatteftirlits verði nýtt fjárlagafrumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, að lögum.
[links]Féð á að renna til ríkisskattstjóra og nýtast til að fyrirbyggja og draga úr skattsvikum. Hin aukna fjárheimild er í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar í málaflokknum og í fjárlagafrumvarpinu segir að gera megi ráð fyrir því að það muni skila „auknum tekjum ríkissjóðs á næstu árum og þannig jákvæðum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.“
Samkvæmt áformunum er því áætlað að um nokkurs konar fjárfestingu sé að ræða, og tilgreint er í fjármlagafrumvarpinu að aðgerðin muni skila ríkissjóði um 250 milljónir króna í tekjur umfram tilkostnað á árinu 2020.
[links]Því virðist gengið út frá því að skattsvik upp á að minnsta kosti 450 milljónir króna árlega séu að eiga sér stað, en vegna skorts á eftirliti sé ekki verið að opinbera né uppræta þau.
Samstaða í ríkisstjórn um málið
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur var sérstaklega fjallað um að efla þyrfti skattrannsóknir og að áhersla þyrfti sömuleiðis að vera á „alþjóðlegt samstarf gegn skattundanskotum og skattsvikum þannig að Ísland skipi sér í fremstu röð ríkja sem berjast gegn skattaskjólum.“
Skömmu eftir að ríkisstjórnin var mynduð sagði Katrín, í viðtali í sjónvarpsþætti Kjarnans í desember 2017, að það væri átaksþörf í skatteftirliti. „Hver króna sem við setjum í þessi mál, hún mun skila sér margfalt til baka. Ég held að það sé alveg samstaða um það í ríkisstjórninni.“
Forsætisráðherra sagði skattaundanskotin væru tvíþætt. Annars vegar séu hin alþjóðlegu skattsvik, þar sem fjármuni séu til að mynda faldir í aflandsfélögum, og hins vegar sú svarta atvinnustarfsemi sem þrífist hér á Íslandi.
Á báðu þyrfti að taka og það þýddi að fjárframlög til þeirra embætta sem fara með eftirlit og rannsóknir á skattaundanskotum, sem eru ríkisskattstjóri og skattrannsóknarstjóri, myndu verða aukin.
Nú virðist sem þau auknu fjárframlög séu að verða að veruleika.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir