Fjárlagafrumvarp: Tekjuskattur og tryggingagjald lækka

Rík­is­sjóður verður rek­inn í jafn­væði á þessu ári. Heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs verða 920 millj­arðar króna sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi en ráð­ist verður í margs­konar aðgerðir til að mæta nið­ur­sveiflu í efna­hags­líf­inu.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, við kynningu á fjárlagafrumvarpi ársins 2020.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við kynn­ingu á fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­sjóður verður rek­inn í jafn­vægi á næsta ári, árið 2020. Áætlaðar tekjur eru 920 millj­arðar króna en áætluð gjöld, bæði frum­gjöld og vaxta­gjöld, eru áætluð 919 millj­arðar króna. Þar með er stað­fest að fallið hefur verið frá fyrri áformum um að reka rík­is­sjóð með afgangi, líkt og kort­lagt var í end­ur­skoð­aðri fjár­mála­á­ætlun sem kynnt var fyrr á þessu ári. Ástæðan er sá sam­dráttur í efna­hags­líf­inu sem hefur orðið í ár, mest megnis vegna gjald­þrots WOW air og loðnu­brests.

Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2020 sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í morgun. Í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna frum­varps­ins segir að sam­dráttur í fyr­ir­hug­uðum afgangi á rekstri rík­is­sjóðs sé ákveð­inn „til þess að skapa skil­yrði fyrir hag­kerfið til að leita fyrr jafn­vægis og fá fót­festu fyrir nýtt hag­vaxt­ar­skeið, með það að leið­ar­ljósi að stuðla að stöð­ug­leika og bættum lífs­kjörum.“

Fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir því að skuldir rík­is­ins fari niður í 22 pró­sent á næsta ári. Í áður­nefndri frétt segir að svig­rúm rík­is­sjóðs til þess að bregð­ast við hæg­ari gangi í hag­þró­un­inni megi „fyrst og fremst þakka agaðri fjár­mála­stjórn und­an­geng­inna ára. Jákvæð afkoma, stöð­ug­leika­fram­lög vegna los­unar fjár­magns­hafta og aðrar óreglu­legar tekjur á borð við arð­greiðslur hafa nýst til að lækka skuldir rík­is­ins veru­lega.“

Tekjuskattar og tryggingagjald lækka

Á meðal helstu tíð­inda sem er að finna í frum­varp­inu er að áform um að lækka tekju­skatt ein­stak­linga hefur verið flýtt. Þar segir að breyt­ing­arnar muni alls fela í sér 21 millj­arða króna minni álögur þegar þær verða að fullu inn­leiddar, sem sam­svari um tíu pró­sent af tekjum rík­is­ins af tekju­skatti ein­stak­linga. „Lækkunin kemur að fullu fram á tveimur árum en ekki þremur eins og áður hafði verið boðað. Tekju­skatts­lækk­unin eykur ráð­stöf­un­ar­tekjur og einka­neyslu heim­il­anna. Stuðlar hún þannig að efna­hags­legum stöð­ug­leika, bæði vegna tíma­setn­ing­ar­innar í hag­sveifl­unni og hás sparn­að­ar­hlut­falls heim­il­anna.“

[adspot]Því mun lækk­unin koma að fullu til fram­kvæmda á árunum 2020 og 2021, en ekki frá 2020 til 2022 eins og áður hafði verið stefnt að. Áætlað er að þegar lækk­unin er að fullu komin til fram­kvæmda, árið 2021, muni ráð­stöf­un­ar­tekjur tækju­lægstu ein­stak­ling­anna hækka um 120 þús­und krónur, sam­kvæmt kynn­ingu á frum­varp­inu.

Þá kemur fram í frum­varp­inu að seinni hluti 0,5 pró­sentu­stiga lækk­unar á trygg­inga­gjaldi muni koma til fram­kvæmda á næsta ári. Trygg­inga­gjaldið verður því komið í 6,35 pró­sent um kom­andi ára­mót.

Hluti lífskjarasamningaloforðsins efndur

Þegar skrifað var undir hina svoköll­uðu lífs­kjara­samn­inga í apríl var ein meg­in­for­senda þess að verka­lýðs­fé­lög sem fara með samn­ings­um­boð fyrir um helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar skrif­uðu undir sú að rík­is­stjórnin lagði fram langað lof­orða­lista um aðgerðir sem hún ætl­aði að grípa til svo hægt yrði að nást saman um hóf­legar launa­hækk­anir. Kostn­aður vegna aðgerð­anna var met­inn á um 80 millj­arða króna á samn­ings­tíma­bil­inu.

Í fjár­laga­frum­varp­inu er boðað að ráð­ast í aðgerðir sem muni fela í sér um 16 millj­arða króna kostnað á árinu 2020. „Auk breyt­inga á tekju­skatts­kerf­inu sem kynntar voru í aðdrag­anda kjara­samn­inga, fela aðgerðir rík­is­ins í sér lengra fæð­ing­ar­or­lof, hærri barna­bætur og fjöl­margar aðgerðir til að auð­velda íbúð­ar­kaup. Flestar þess­ara aðgerða koma til fram­kvæmda á árinu 2020 og birt­ast í auknum fram­lögum, einkum til félags- og hús­næð­is­mála.“

Aukin opinber fjárfesting

Til að takast á við nið­ur­sveifl­una í hag­kerf­inu eru boðuð umtals­verð aukn­ing í opin­berri fjár­fest­ingu. Samkvæmt fjár­lögum yfir­stand­andi árs er áætlað að fjár­fest­ing 2019 verði sam­tals 67,2 millj­arðar króna. Á næsta ári er áætlað að hún verði 78,4 millj­arðar króna og auk­ist því um 11,2 millj­arða króna milli ára. Frá 2017 hefur hún auk­ist um rúma 27 millj­arða króna að raun­gildi.

Á meðal stórra verk­efna sem standa yfir eða ráð­ist verður í eru fjár­fest­ingar í sam­göngum upp á 28 millj­arða króna, auk­inn kraftur í upp­bygg­ingu nýs Lands­spít­ala upp á 8,5 millj­arða króna, kaup á þyrlum fyrir Land­helg­is­gæsl­una, fram­lög vegna smíði nýs haf­rann­sókn­ar­skips og bygg­ing Húss íslensk­unnar.

Ýmsar aðgerðir fjármagnaðar

Í frétt um frum­varpið á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að með því verði tryggður fram­gangur til margra góðra mála. „Þannig má nefna að breyt­ingar á LÍN eru fjár­magn­aðar, ráð­ist verður í aðgerðir til auka nýliðun kenn­ara og efla starfs­nám og fram­lög til vís­inda- og rann­sókna­sam­starfs verða aukin. 
Framundan er stór­sókn í vega­málum og stefnt er að kostn­að­ar­þátt­töku í flug­far­gjöldum inn­an­lands fyrir íbúa lands­byggð­ar­innar. 
Orku­skipti verða styrkt með skattaí­viln­unum og styrkjum úr Orku­sjóði. Framlög til lofts­lagslags­mála hækka og renna meðal ann­ars til bind­ingar kolefnis með skóg­rækt, land­græðslu og end­ur­heimt vot­lendis, en einnig aukast fram­lög til land­vörslu og mið­há­lend­is­þjóð­garðs. 
Und­ir­búnar verða aðgerðir sem miða að því að bæta mönnun í hjúkrun, áfram verður unnið að efl­ingu heilsu­gæsl­unnar sem fyrsta við­komu­staðar, og upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma. 
Unnið er að því að auka gæði í þjón­ustu við fötluð börn og for­eldra þeirra og fram­lög aukin í sam­ræmi við fyrri áform til að bæta kjör öryrkja. Stuðlað verður að atvinnu­þátt­töku aldr­aðra, réttur for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs lengdur og fram­lög til barna­bóta aukin. 
Einnig verða fram­lög tryggð til hús­næð­is­mála í tengslum við nýlega lífs­kjara­samn­inga og boð­aðar eru aðgerðir til að bregð­ast við hús­næð­is­vanda á lands­byggð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár