Stjórnmálaflokkar fá 728 milljónir króna úr ríkissjóði

Framlög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru rúm­lega tvö­földuð fyrir nokkrum árum. Auk þess hafa var hámark þeirra fram­laga sem má gefa til þeirra hækkað um síð­ustu ára­mót. Flokk­arnir átta á þingi skipta með sér 728 millj­ónum af skattfé á næsta ári.

Framlag til stjórn­mála­flokka mun verða 728,2 millj­ónir króna á næsta ári, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2020 sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í gær­morgun.

[links]Fram­lögin lækka lít­il­lega á milli ára en þau verða 744 millj­ónir í ár sam­kvæmt fjár­lögum. Fjár­mála­á­ætlun gerir ráð fyrir því að fram­lögin lækki áfram næstu árin og verði 697 millj­ónir króna árið 2022.

Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­kosn­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­lega 2,8 millj­örðum króna úr rík­is­sjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starf­semi sinni.

Fram­lögin verða þó áfram afar há miðað við það sem þau voru fyrir nokkrum árum. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­is­ins til stjórn­­­mála­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­sent var sam­­þykkt í fjár­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka áttu að vera 286 millj­­ónir króna en urðu 648 millj­­ónir króna á því ári. Einu flokk­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

[adspot]Því verða fram­lög á næsta ári 442 millj­ónum krónum hærri en þau áttu að vera árið 2018 áður en flokk­arnir ákváðu að hækka þau.

Hámark framlaga líka hækkað

Full­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­menn stjórn­mála­flokka, lögðu sam­eig­in­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­mál stjórn­mála­flokka og fram­bjóð­enda í lok síð­asta árs. Það var svo afgreitt sem lög fyrir þing­lok 2018.

Á meðal breyt­inga sem það stuðl­aði að var að leyfa stjórn­mála­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­ling­um. Hámarks­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­ur.

Auk þess var sú fjár­hæð sem ein­stak­lingur þarf að gefa til að vera nafn­greindur í árs­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­ur.

Því hafa tæki­færi stjórn­mála­flokka til að taka við upp­hæðum frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum verið aukin sam­hliða því að upp­hæðin sem þeir fá úr rík­is­sjóði var rúm­lega tvö­föld­uð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár