Heimild til að breyta lánum ríkisins til Vaðlaheiðarganga í hlutafé

Ríkið fær heim­ild til þess að breyta millj­arða­lánum sínum til rekstr­ar­fé­lags Vaðla­heið­ar­ganga í hlutafé verði fjár­laga­frum­varpið sem kynnt var í morgun sam­þykkt. Þá mun það einnig fá heim­ild til að selja eign­ar­hluta í End­ur­vinnsl­unni.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, við kynningu á fjárlagafrumvarpi ársins 2020.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við kynn­ingu á fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi er gert ráð fyrir nýrri heim­ild til að breyta láni rík­is­sjóðs til Vaðla­heið­ar­ganga í hlutafé. Þar er einnig gert ráð fyrir nýrri heim­ild fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins til að selja 17,8 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í End­ur­vinnsl­unni hf.

Hvorug þess­ara heim­ilda var til staðar á fjár­lögum yfir­stand­andi árs.

Geta breytt milljarðaskuldum í hlutafé

Vaðla­heið­ar­göng átti að vera einka­fram­kvæmd, enda var fram­kvæmdin ekki ofar­lega á sam­göngu­á­ætlun og ólík­legt að hún myndi verða að veru­leika í nán­ustu fram­tíð ef beðið yrði eftir því að hið opin­bera myndi ráð­ast í hana. Það var hins vegar sam­þykkt árið 2012 að ríkið myndi lána 8,7 millj­arða króna í fram­kvæmd­ina en veggjöld sem yrðu rukkuð áttu að sjá til þess að þeir fjár­munir myndu skila sér til baka.

[adspot]Árið 2017 var gerð úttekt­ar­skýrsla sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að fram­kvæmdin gæti ekki talist eig­in­leg einka­fram­kvæmd, heldur væri hún í raun rík­is­fram­kvæmd, þótt hún hefði ekki verið kynnt sem slík. Samkvæmt þeirri skýrslu var heild­ar­kostn­aður áætl­aður 17 millj­arðar króna.

Vaðla­heið­ar­göng voru opnuð í jan­úar síð­ast­liðnum. Í júlí greindi DV frá því að rekstur gang­ana hefði valdið von­brigðum og að tekjur væru umtals­vert undir áætlun. Rekstr­ar­fé­lag gang­ana hefði áætlað að um 90 pósent af umferð um svæðið myndi fara í gegnum göngin en raunin hafi verið um 70 pró­sent. Aðrir keyrðu áfram um Vík­ur­skarð, sem lengir leið­ina til Húsa­víkur um nokkrar mín­útur, en göngin stytta leið­ina milli Akureyri og Húsa­víkur um alls 16 kíló­metra. Afleið­ingin var sú að tekjur sum­ars­ins voru 35-40 pró­sent minni en áætlað var.

Íslenska ríkið á sem stendur 34 pró­sent í rekstr­ar­fé­lagi Vaðla­heið­ar­ganga. Skuldir félags­ins námu sam­tals 16,6 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót.

Heimild til að selja hlut í Endurvinnslunni

Rík­is­sjóður á 17,8 pró­sent hlut í End­ur­vinnsl­unni en auk þess á ÁTVR, sem er í rík­i­s­eigu, 20 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu. Það var stofnað árið 1989 á grund­velli nátt­úru- og umhverf­is­vernd­ar­sjón­ar­miða og sér um mót­töku, ásamt umboðs­mönnum sínum, allra einnota drykkj­ar­vöru­um­búða hér­lendis, greiðir út skila­gjald þeirra, und­ir­býr þær til útflutn­ings og selur til end­ur­vinnslu. 58 starf­stöðvar starfa fyrir félagið um allt land.

End­ur­vinnslan velti 990 millj­ónum króna í fyrra og skil­aði 196 milljón króna hagn­aði. Árið áður var hagn­að­ur­inn 154 millj­ónir króna. Fyr­ir­tækið á eignir sem metnar eru á rúm­lega 1,8 millj­arð króna en er með nær engar lang­tíma­skuldir.

Í fjár­laga­frum­varp­inu kemur fram að til greina komi að ÁTVR kaupi hlut rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár