Íslandsbanki segir ekki hversu margir fengu flokkun sem hæfir fjárfestar á meðan að á útboðinu stóð

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferli Íslands­banka kemur fram að fjár­festar sem voru ekki í við­skiptum við Íslands­banka gátu sótt um og fengið flokkun sem „hæfir fjár­festar“ á þeim klukku­tímum sem útboðið stóð yfir.

Íslands­banki vill ekki svara því hversu margir fjár­festar hefðu hlotið flokkun sem „hæfir fjár­festar“ hjá bank­anum á þeim klukku­tímum sem sölu­ferlið á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í honum stóð yfir í mars síð­ast­liðnum. Íslands­banki vill heldur ekki segja fyrir hversu háa upp­hæð þeir sem fengu flokkun á meðan að tekið var við til­boðum í hlut rík­is­ins í bank­anum keyptu. Þessi hluti máls­ins sé til skoð­unar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og á meðan svo sé muni bank­inn ekki svara spurn­ingum um hann.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars er vitnað í svör frá Íslands­banka, einum af þremur umsjón­ar­að­ilum Banka­sýsl­unnar í sölu­ferl­inu, um hvernig fjár­festar sem voru ekki í við­skiptum við bank­ann fram að sölu­deg­inum fengu mögu­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­festar á meðan á söl­unni stóð. Þar segir svo orð­rétt: „Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­festar en bank­inn þurfti að meta upp­lýs­ingar þess efnis sjálf­stætt.“

Kjarninn spurði einnig hvort Íslands­banki hefði lánað ein­hverjum þeirra fjár­festa sem fengu flokkun hjá bank­anum á meðan á söl­unni stóð fyrir kaupum á bréfum sem voru til sölu í ferl­inu.

Íslands­banki svar­aði því neit­andi að hafa lánað til kaupa á bréf­unum. Í svar­inu er sér­stak­lega til­tekið að bank­anum sé óheim­ilt sam­kvæmt lögum að veita lán sem eru tryggð með veði í hluta­bréfum í bank­anum sjálfum. Að því var þó ekki spurt í fyr­ir­spurn Kjarnans enda hefur veð­taka í eigin bréfum verið ólög­mæt hér­lendis frá árinu 2010.

207 fjárfestar fengu að kaupa

Í skýrsl­u Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið á hlut rík­is­ins í Íslands­banka er fjallað um val á þeim 207 fjár­festum sem fengu að kaupa hlut í bank­anum, en 85 pró­sent þeirra voru á end­anum inn­lend­ir. Hóps sem skil­greindur var sem „hæfir fjár­fest­ar“. Alls fékk þessi hópur að eign­ast 22,5 pró­sent hlut í bank­anum fyrir 52,65 millj­arða króna, sem var 4,1 pró­sent undir dagsloka­gengi bréfa í Íslands­banka.

Leiðin sem var valin til að selja hlut­inn kall­ast til­­­boðs­að­ferð. Hún er fram­­kvæmd á nokkrum klukku­­tímum og ákveðið var að ein­blína á áður­nefnda „hæfa fjár­­­fest­­a“. Síðar var vísað í að þar sé um að ræða þá sem skil­­grein­­ast sem fag­fjár­festar sam­­kvæmt lög­­­um. Til þess þarf að upp­­­fylla tvö af þremur skil­yrð­um: að hafa átt ákveðið mörg við­­skipti á árs­fjórð­ungi, að fjár­­­­­­­mála­­­­gern­ingar þeirra og inn­­­i­­­­stæður væru sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (um 70 milljón króna) eða meira eða að fjár­­­­­­­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­­­­­­­mála­­­­geir­­­­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­­­­skiptum eða þjón­ust­u.

Rök­­semd­­ar­­færslan fyrir því að fara þessa leið var meðal ann­­ars sú að það myndi spara kostn­að og laða að erlenda fjár­festa. Ekki þyrfti að ráð­­ast í útboðs­lýs­ingu til að upp­­­fylla upp­­lýs­inga­skil­yrði fyrir almenna fjár­­­festa, venju­­legt fólk. Bara þeir sem hefðu óskil­­greindan betri skiln­ingi á því sem þeir væru að kaupa, var boðið að vera með.

Margir fengu ekki boð

Tvær grímur runnu á marga þegar kom í ljós að margir þess­­ara aðila voru ekki það sem kalla mætti stofn­ana­fjár­­­festar sem hefðu burði til að styðja við bank­ann til lengri tíma né voru að kaupa í því magni að nauð­­syn­­legt væri að velja þá til þátt­­töku í lok­uðu útboði umfram almenna fjár­­­festa. Tor­­tryggni vakn­aði strax og til­­kynn­ingar um kaup stjórn­­enda og stjórn­­­ar­­manna Íslands­­­banka, eða aðila sem tengd­ust þeim, voru birtar í Kaup­höll til að mæta til­­kynn­ing­­ar­­skyldu um inn­herj­a­við­skipti. Þar voru ein­stak­l­ingar að kaupa fyrir nokkrar millj­­ónir króna. Þrýst­ingur var settur á að fá frek­­ari upp­­lýs­ingar um hverjir hafi fengið að kaupa og við hvert skref sem var stigið í að opin­bera það vökn­uðu fleiri spurn­ing­­ar.

Þeir sem keyptu fyrir minna en 30 millj­­ónir króna voru 59 tals­ins. Þeir sem keyptu fyrir minna en 50 millj­­ónir voru 79. Alls 167 aðilar keyptu fyrir 300 millj­­ónir króna eða minna. Sá sem keypti fyrir lægstu upp­hæð­ina, starfs­maður Íslands­banka, keypti fyrir 1,1 milljón króna. Sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum sem Kjarn­inn hefur aflað er ljóst að sumir þeirra sem sölu­ráð­gjaf­­arnir flokk­uðu sem hæfa ­fjár­­­festa eru ekki skil­­greindir sem slíkir í öðrum fjár­­­mála­­fyr­ir­tækj­­um. Í því birt­ist það vanda­­mál að fyr­ir­tæki í verð­bréfa­miðlun eru með það hlut­verk sam­­kvæmt lögum að meta sjálf hvort við­­skipta­vinir þeirra upp­­­fylli skil­yrði þess að telj­­ast slík­­­ur.

Þá liggur fyrir að margir, bæði inn­­­lendir og erlend­ir, fag­fjár­­­festar fengu ekki boð um að vera með þrátt fyrir að sumir þeirra hafi leitað beint eftir því. Hefur Kjarn­inn til að mynda undir höndum tölvu­­póst­­­sam­­skipti milli aðila og Banka­­sýsl­u rík­is­ins, sem fór með fram­kvæmd söl­unnar fyrir hönd rík­is­ins, þar sem leitað var eftir því að stór alþjóð­­legur fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóður fengi að taka þátt í útboð­inu 22. mars. Engin svör bár­ust. Umræddur aðili sem sendi póst­­inn er ekki á meðal þeirra sölu­ráð­gjafa sem valdir voru til að sjá um útboð­ið.

Nóg að fullyrða það sjálfur

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að mið­lægur gagna­grunnur um hæfa fjár­festa er ekki til hér á landi. Umsjón­ar­að­il­ar, sölu­ráð­gjafar og sölu­að­ilar Banka­sýsl­unnar gátu því ekki flett upp öðrum til­boðs­gjöfum en við­skipta­vinum sínum til að sann­reyna full­yrð­ingar þeirra um að þeir væru hæfir fjár­fest­ar. Flokkun fjár­festa í sölu­ferl­inu var því fram­kvæmd hjá hverju fjár­mála­fyr­ir­tæki fyrir sig.

Sam­kvæmt Íslands­banka, einum af þremur umsjón­ar­að­ilum Banka­sýsl­unnar í sölu­ferl­inu, höfðu fjár­festar sem voru ekki í við­skiptum við bank­ann fram að sölu­deg­inum mögu­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­festar á meðan á söl­unni stóð. Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­festar en bank­inn þurfti að meta upp­lýs­ingar þess efnis sjálf­stætt. Rík­is­end­ur­skoðun segir í skýrslu sinni að stofn­unin hafi ekki kann­aði hvernig þessu var háttað hjá öðrum umsjón­ar­að­il­um, sölu­ráð­gjöfum eða sölu­að­ilum við mat þeirra á hæfum fjár­fest­um. Þessi hluti sölu­ferl­is­ins er nú til rann­sóknar hjá Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.

Innri reglur komu ekki í veg fyrir hags­muna­á­rekstra

Þá segir í skýrsl­u Rík­is­end­ur­skoð­unar að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá meðal ann­ars fjár­mála­ráð­gjafa Banka­sýsl­unnar sé óvenju­legt að einka­fjár­festum sem sam­þykktir hafa verið sem fag­fjár­festar sé boðin þátt­taka í sölu með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi. „Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og Banka­sýslan voru hins vegar sam­mála um að gera ráð fyrir þátt­töku einka­fjár­festa sem upp­fylltu skil­yrði sem hæfir fjár­festar í sölu­ferl­in­u.“

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar. Mynd: Skjáskot
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: Skjáskot

Banka­sýslan hefur í svörum sínum til Rík­is­end­ur­skoð­unar vísað til þess að fjár­mála­fyr­ir­tækjum beri lögum sam­kvæmt að setja sér innri reglur um ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstr­um. „Stofn­unin mat það svo að reglu­verk fjár­mála­mark­að­ar­ins væri með þeim hætti að slíkar innri reglur umsjón­ar­að­ila, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila kæmu í veg fyrir hags­muna­á­rekstra í söl­unni. Ljóst er að innri reglur Íslands­banka komu ekki í veg fyrir slíkt.“

Í ítar­legri málsvörn sem Banka­sýslan hefur birt á heima­síðu sinni segir að á fjár­mála­fyr­ir­tækjum hvíli ríkar skyldur sam­kvæmt lögum og reglum um að haga starf­semi sinni og innra skipu­lagi þannig að komið sé í veg fyrir hags­muna­á­rekstra meðal ann­ars milli fyr­ir­tæk­is­ins, þar með talið starfs­manna, og við­skipta­vina þess. Það sé stað­reynd. „Brot gegn slíkum reglum varða stjórn­valds­sektum allt að 10 pró­sent af heild­ar­veltu við­kom­andi fyr­ir­tækis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár