Össur: Búvörusamningur í uppnámi og gæti stangast á við stjórnarskrá

Það er lýð­ræð­is­leg óhæfa að ætla að keyra í gegn búvöru­samn­ing til tíu ára, sem muni kosta meira en Icesave, í aðdrag­anda þing­kosn­inga. „Færa má rök fyrir að það stang­ist á við stjórn­ar­skrá,“ skrifar Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. „Nýtt þing verður að hafa svig­rúm til að breyta honum án þess að baka rík­inu stór­kost­lega skaða­bóta­á­byrgð.“

Össur segir að búvöru­samn­ing­ur­inn sé í upp­námi og engin sam­staða sé um hann. Búvöru­samn­ing­ur­inn er eitt þeirra mála sem stjórn­völd hafa sagt að þau vilji klára áður en boðað verði til þing­kosn­inga.

„Ástæðan er að hann var hrip­aður saman án nokk­urs sam­ráðs í lok­uðum, reyk­fylltum bak­her­bergjum. Samráð, sem lofað var, varð ekk­ert. Þverpóli­tísk nefnd var slegin af þegar búið var að til­nefna full­trúa allra þing­flokka.“

Össur segir samn­ing­inn ekki þjóna nægi­lega mark­miðum land­græðslu, end­ur­heimt vot­lendis eða gagn­að­gerðum í lofts­lags­málum. Þá séu ekki stigin skref til að styðja við ímynd lands­ins um hrein­leika, og í ein­stökum efnum gagn­ist hann sterkum byggðum hlut­falls­lega á kostnað veikra byggða. „Bænda­for­ystan og Framsókn hafa klúðrað því að draga fram það sem er best við íslenskan land­búnað, og má sann­ar­lega hrósa honum fyrir. Ísland er nefni­lega sér­stak­lega „hreint“ land­bún­að­ar­land.“

Össur segir að samn­ing­ur­inn þurfi að breyt­ast til að tekið sé miklu meira mið af lofts­lags­vernd, vernd gróð­urs og umhverfis, neyt­enda­hyggju og styrk­ari land­sí­mynd um hrein­leika. „Ég mun alla vega aldrei styðja búvöru­samn­ing til tíu ára,“ skrifar Össur að lokum á Facebook-síðu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár