Mynd: Photographer: Andrey Popov

Tvö þrotabú banka sömdu við endurskoðendur um bætur – Eitt gerði það ekki

Það var nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að end­ur­skoð­endur föllnu bank­anna hefðu brugð­ist og að rann­saka ætti þá sér­stak­lega. Engin end­ur­skoð­andi var hins vegar ákærður vegna reikn­inga bank­anna.

Tvö af þremur þrota­búum stóru föllnu bank­anna, Glitnir og Lands­banki Íslands, hafa gert sam­komu­lag við end­ur­skoð­endur sína frá því fyrir hrun sem fela í sér að fyr­ir­tækin greiddu háar bætur fyrir þann skaða sem þau ollu með því að brjóta gegn lög- og samn­ings­bundnum skyldum sínum. Í báðum til­vikum var um að ræða trún­að­ar­sam­komu­lag þar sem upp­hæðir voru ekki til­greindar og end­ur­skoð­and­inn, sem í báðum til­vikum var PwC, við­ur­kenndi ekki sekt. En borg­aði samt.

Í til­felli þriðja bank­ans, Kaup­þings, var það lengi til rann­sóknar að stefna KPMG vegna end­ur­skoð­unar á árs­reikn­ingi bank­ans á árinu 2007 og 2008. Um tíma var stefna vegna þessa í und­ir­bún­ingi hjá skila­nefnd eða slita­stjórn bank­ans. En svo gerð­ist ekk­ert.

Nú hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá Kaup­þingi ehf., félagi utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka, að ekk­ert sam­komu­lag hafi verið gert við KPMG. Og einn eig­enda KPMG hefur sagt það opin­ber­lega að ekki hafi verið sótt að fyr­ir­tæk­inu vegna árs­reikn­ings Kaup­þings fyrir árið 2007.

Spurt en enginn svör

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, lagði nýverið fram fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þar sem hann fer fram á að fá að vita hvort þrotabú Kaup­þings, Glitnis og Lands­banka Íslands hafi sóst eftir bótum frá þeim end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækjum sem árit­uðu reikn­inga þeirra miss­erin fyrir hrun.

Ef slíkar bætur hafi verið greiddar vildi Þor­steinn vita hvort að þrota­búin fengið slíkar bætur með samn­ingum eða dómum.

Í svari Bjarna, sem birt var 13. nóv­em­ber, var spurn­ing­unni ekki svarað með þeim rökum að þau „þrotabú og fyr­ir­tæki sem um ræðir hafa hvorki verið í eigu rík­is­ins né hafa þau veitt almenn­ingi opin­bera þjón­ustu á grund­velli laga, stjórn­valds­fyr­ir­mæla eða samn­ings. Þrotabú föllnu bank­anna tengd­ust óbeint hlut­verki og starf­semi rík­is­ins vegna eign­ar­halds rík­is­ins á tveimur end­ur­reistum bönkum og áætlun stjórn­valda um losun gjald­eyr­is­hafta en þau tengsl hafa ekki leitt til þess að ráðu­neytið eða stofn­anir þess búi yfir þeim upp­lýs­ingum sem um er spurt.“

Fengu vel greitt

Það voru gjöful við­skipti að sinna end­ur­skoðun fyrir íslensku bank­ana fyrir banka­hrun. PwC, sem end­ur­skoð­aði bæði Glitni og Lands­bank­ann, fékk alls greitt 1.435 millj­ónir króna fyrir þá vinnu á árunum 2007 og 2008. KPMG, sem end­ur­skoð­aði Kaupþing, fékk 933 millj­ónir króna greitt fyrir á árunum 2007 og 2008.

Öll þrotabú föllnu bank­anna stefndu end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækj­unum og fóru fram á bætur vegna þess að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækin hefðu vitað af slæmri stöðu bank­anna þegar þeir kvitt­uðu upp á heil­brigði þeirra við gerð árs- og árs­hluta­reikn­inga. Samið hefur verið um mála­lok hjá tveimur þrota­búum en algjör leynd hvílir yfir því sem fram fór hjá hinu þriðja.

Engin búanna hafa hins vegar viljað greina frá því hvort eða hversu mikið end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækin, eða trygg­inga­fé­lög þeirra, hafi greitt í bætur fyrir að hafa sýnt af sér meinta van­rækslu við end­ur­skoðun á árs­reikn­ingum bank­anna þriggja fyrir árið 2007 og árs­hluta­reikn­ingum þeirra vegna fyrri hluta árs 2008.

Glitnir fékk hundruð milljóna

Sáttir náð­ust milli Glitnis og PwC í nóv­em­ber 2013. Trúnaður ríkti um upp­hæð­ina sem PwC greiddi en í umfjöllun Kjarnans um hana þá kom fram að PwC hefði greitt hund­ruð millj­óna króna til að kom­ast hjá máls­höfðun sem hinn fallni banki hafði höfðað á hendur PwC á Íslandi og í Bret­landi. Sam­komu­lagið var gert „án við­ur­kenn­ingar sakar“. Það sner­ist því um að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið greiddi bætur án þess að hafa við­ur­kennt að hafa gert nokkuð rangt.

Málið sem Glitnir hafði höfðað gegn PwC var ekk­ert smá­mál. Í stefnu þess, sem birt var í mars 2012 voru sér­stak­lega til­greind fimm atriði þar sem PwC átti að hafa brotið gegn lög- og samn­ings­bundnum skyldum sínum. Í fyrsta lagi hefði PwC ekki upp­lýst um að stjórn­endur Glitnis hefðu veitt útlán til inn­byrðis tengdra aðila langt umram leyfi­leg hámörk, í öðru lagi leynt útlána­á­hættu bank­ans til aðila sem töld­ust tengdir, í þriðja lagi veitt stór­felld útlán til fjár­vána eign­ar­halds­fé­laga, í fjórða lagi van­rækt afskrift­ar­skyldu sína og í fimmta lagi van­rækt að upp­lýsa um þá gríð­ar­lega miklu fjár­hags­legu hags­muni sem bank­inn var með í eigin bréfum með þeim afleið­ingum að eigið fé hans var veru­lega of hátt skráð.

Lögmaður Glitnis í mál­inu vitn­aði mikið til þess í stefn­unni að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði gert athuga­semdir við PwC á árunum 2007 og 2008 vegna þess að ekki hafi verið gerð „full­nægj­andi grein fyrir við­skiptum vensl­aðra aðila við bank­ann. Til þess flokks féllu „félög sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son stjórn­aði“, en hann var einn stærsti eig­andi bank­ans fyrir hrun. Var þar vísað til Baugs, FL Group og aðila sem tengd­ust þeim sam­steypum.

Landsbankinn samdi í trúnaði

Í mars 2017 var greint frá sam­komu­lagi sem náðst hafði milli þrota­bús Lands­banka Íslands og PwC. Málið tengd­ist störfum PwC fyrir Lands­bank­ann fyrir hrun­ið. Dóms­mál var höfðað í árs­lok 2012 og var farið fram á 100 millj­arða króna skaða­bætur vegna meints tjóns sem fyr­ir­tækið átti að hafa valdið með rangri ráð­gjöf og óvand­aðri vinnu, sem bitn­aði á fyr­ir­tæk­inu og kröfu­höfum þess. Þá hafi PwC ekki getið sér­stak­lega um háar lán­veit­ingar Lands­bank­ans til helstu eig­enda hans og félaga í þeirra eigu, þ.e. feðganna Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar og Björg­ólfs Guðmunds­son­ar.

Í til­kynn­ingu frá þrota­búi Lands­bank­ans vegna þessa sagði að það sé væri mat þrota­bús­ins og PwC að sáttin væri ásætt­an­leg fyrir báða aðila.

Engin upp­hæð var nefnd í til­kynn­ing­unni en í kynn­ingu sem haldin var fyrir kröfu­hafa bank­ans síðar var greint frá því að um væri að ræða „ótil­greinda upp­hæð“ sem PwC hafði greitt.

Kaupþing ekki sótt bætur

Nánast ekk­ert hefur heyrst af því hvort að Kaupþing hafi farið í aðgerðir gegn KPMG. Samkvæmt svari Kaup­þings ehf., félags utan um eft­ir­stand­andi eignir bank­ans, við fyr­ir­spurn Kjarnans hefur ekk­ert sam­komu­lag verið gert.

Í bók­inni Kaupt­hink­ing – Bankinn sem átti sig sjálfur, sem kom út fyrir ári síðan, var haft eftir Sæmundi Valdi­mars­syni, ann­ars þeirra end­ur­skoð­enda sem skrif­aði undir árs­reikn­ing Kaup­þings 2007 og meið­eig­anda hjá KPMG, að frá því að Kaupþing féll hefði árs­reikn­ingur hans verið rann­sak­aður af ýmsum aðilum. Þar á meðal væri slita­stjórn og skila­nefnd bank­ans, Fjár­mála­eft­ir­litið og sér­stakur sak­sókn­ari með aðstoð sér­fræð­inga. „Nú 10 árum síðar, eftir allar þær skoð­anir sem reikn­ing­ur­inn hefur fengið, hefur ekki verið sótt að okkur vegna hans. Að okkar mati segir það tals­verða sögu og vart er hægt að fá betri stað­fest­ingu á því að árs­reikn­ing­ur­inn gefi glögga mynd og sé án veru­legra ann­marka, eins og fram kemur í áritun okkar á árs­reikn­ing­inn.“

Því virð­ist sem að Kaupþing hafi ekki sótt bætur vegna end­ur­skoð­unar KPMG á reikn­ingi bank­ans. Bætur sem hin þrotabú föllnu stóru íslensku bank­anna sóttu á sína end­ur­skoð­endur, og fengu. 

Bankinn var gjaldþrota löngu áður en hann fór í þrot

Það vekur athygli þar sem rann­sóknir á end­ur­skoðun Kaup­þings, sem fram­kvæmd var fyrir emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og unnin af sér­fræð­ingum á sviði reikn­ings­skila, sýndu þá nið­ur­stöðu að bank­inn hafi verið gjald­þrota í lok árs 2007 hið síð­asta.

Nið­ur­staða sér­fræð­ing­anna sem fram­kvæmdu rann­sókn­ina var sú að hvorki stjórn, fram­kvæmda­stjórn né end­ur­skoð­endur Kaup­þings gátu staðið við yfir­lýs­ingar sem fram­settar voru í árs­reikn­ingi fyrir árið 2007 þess efnis að hann gæfi glögga mynd af rekstri og efna­hag bank­ans né að hann væri sam­inn í sam­ræmi við lög og staðla um gerð reikn­ings­skila fyrir fyr­ir­tæki sem skráð væri á markað.

Þvert á móti komust þeir að þeirri nið­ur­stöðu að árs­reikn­ing­ur­inn væri bein­línis rang­færður að veru­legum hluta. Það þýddi að þeir sem lásu árs­reikn­ing­inn fengu ekki upp­lýs­ingar um rekstur og efna­hag Kaup­þings sem gátu talist áreið­an­legar. Því lægi fyrir að þeir sem báru ábyrgð á árs­reikn­ingnum hefðu sam­eig­in­lega villt um fyrir hlut­höfum og kröfu­höfum Kaup­þings og sam­fé­lag­inu öllu.

Í þeim sagði að alvar­legir ágallar hafi verið voru á reikn­ings­skilum bank­ans fyrir það ár. Svo alvar­legir að í stað þess að eigið fé bank­ans væri jákvætt um mörg hund­ruð millj­arða króna átti það að vera nei­kvætt. Og upp­fyllti þar af leið­andi ekki sett skil­yrði fyrir því að starfa. Kaupþing hefði átt að skila inn starfs­leyfi sínu sam­kvæmt gögn­unum.

Það gerði bank­inn ekki heldur hélt áfram að starfa fram í októ­ber 2008, og ýkti um leið gríð­ar­lega það tjón sem starf­semi bank­ans olli á end­anum hlut­höfum og kröfu­höfum. Á þessum mán­uðum sem bank­inn starf­aði ólög­lega voru líka framin fjöl­mörg og alvar­leg efna­hags­brot sem búið er að dæma helstu stjórn­endur Kaup­þings til fang­els­is­vistar fyrir.

Endurskoðendur ekki ákærðir

Í nið­ur­stöðu­hluta rann­sókn­ar­nefndar Alþingis í skýrslu hennar, sem kom út í apríl 2010, var fjallað um þátt end­ur­skoð­enda. Þar sagði að skort hefði á að end­ur­skoð­endur stóru íslensku bank­anna sinntu nægi­lega skyldum sínum við end­ur­skoðun reikn­ings­skila þeirra, sér­stak­lega þegar kom að rann­sókn þeirra og mati á virði útlána til stærstu við­skipta­vina þeirra, með­ferð á hluta­bréfa­eign starfs­manna og fyr­ir­greiðslu banka til ýmissa til að kaupa hluta­bréf í sjálfum sér. Nefndin fór fram á að end­ur­skoð­endur bank­anna yrðu rann­sak­aðir sér­stak­lega.

Það var gert en ákveðið var að höfða ekki saka­mál á grunni þeirra rann­sókna. Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari og áður sér­stakur sak­sókn­ari, sagði í við­tali í októ­ber 2018 á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut að ástæðan væri sú að erfitt væri að koma þessum málum fyrir dóm. „Það helg­að­ist af mjög mörgum atriðum. Það voru fyrst og fremst alþjóð­legir reikn­ings­skil­málar sem vöfð­ust fyrir okkur og inn­leið­ing þeirra, vegna þess að sumir þeirra eru ekki inn­leiddir í íslenskan rétt fyrr en eftir hrunið í raun og veru. Þannig að menn mátu það sem svo að við myndum lenda í vand­ræðum með að fá sak­fell­ingu í þannig málum.“

Koma til baka og ráða sömu endurskoðendur

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fess­or og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, skrif­aði grein í Vís­bend­ingu í maí á þessu ári þar sem hann hann fjall­aði um end­ur­komu þeirra ein­stak­linga sem hefðu tekið

virkan þátt í fjár­mála­æv­in­týr­inu á árunum 2003 til 2008 að snúa aftur til lands­ins.

Gylfi sagði að pen­ingum hefði í mörgum til­vikum verið komið undan á árunum 2007 og 2008 og það fjár­magn væri nú að skila sér til baka, sam­hliða því að það væri búið að gera þrotabú hinna föllnu banka upp. Lík­legt væri að a.m.k. einn öfl­ugur banki yrði í eigu þess­ara aðila innan ekki langs tíma ef það hefði ekki gerst þá þeg­ar.

Vand­inn væri sá að rekstur bank­anna fyrir 2008 hafi verið ámæl­is­verður eins og margir refsi­dómar bæru vitni um. Ekki væru öll kurl komin til grafar um þann rekst­ur. „End­ur­skoð­endur gegndu lyk­il­hlut­verki í því að láta bók­fært eigið fé marg­fald­ast á fáum árum en hafa ekki sýnt neina iðrun í þeim efn­um. Mis­vísandi upp­gjör voru for­senda þess að banka­kerfið marg­fald­að­ist að stærð á stuttum tíma og féll m.a. vegna þess að eigið fé var ekki raun­veru­legt heldur búið til með bók­halds­brellum og bank­arnir of stórir til þess að ríkið gæti komið þeim til bjarg­ar. Það er því fyr­ir­sjá­an­legt að sömu aðilar komi sumir aftur til sög­unn­ar, ráði sömu end­ur­skoð­endur sem fyrr og reynir þá mikið á fjár­mála­eft­ir­lit.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár