Hætt við sölu á Ögurvík

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, áður Brim, hefur ákveðið að hætta við söl­una á félag­inu Ögurvík til HB Granda fyrir 12,3 millj­arða.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur (ÚR), áður Brim, hefur ákveðið að hætta við söl­una á félag­inu Ögurvík til HB Granda fyrir 12,3 millj­arða. RÚV greinir frá þessu í dag.

[links]Kjarninn fjall­aði um það í morgun að Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi vildi að fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku, fjár­fest­inga­banka, yrði feng­inn til að meta fyr­ir­huguð kaup HB Granda á öllu hlutafé Ögur­víkur og skil­mála þeirra. Gildi gerði þá til­lögu um að bókun þess efnis yrði tekin til með­ferðar á hlut­hafa­fundi HB Granda sem fer fram þann 16. októ­ber næst­kom­andi. 

Í bréfi sem Runólfur Viðar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri ÚR, hefur sent HB Granda, segir að til­laga Gildis sé um fjórða óháða verð­matið á Ögurvík og hún sýni að ekki hafi tek­ist að eyða öllum efa­semdum um að við­skiptin séu gerð á grund­velli arms­lengd­ar­sjón­ar­miða.

„Í ljósi reynslu, þekk­ingar og kunn­áttu ÚR á minni­hluta­vernd, deilum hlut­hafa og ein­lægum vilja for­svars­manna félags­ins til að starfa í sátt, sam­lyndi og án átaka við aðra hlut­hafa í þeim félögum sem ÚR er hlut­hafi í, sé það vilji ÚR að ekki verði farið í við­skiptin með Ögurvík að þessu sinni. „ÚR telur það ekki skyn­sam­legt að knýja við­skiptin í gegn á þessum tíma­punkti gegn efa­semdum (vilja) eins af stærri hlut­höfum í HB Granda,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár