Lífeyrissjóðurinn Gildi vill að kaup HB Granda á Ögurvík verði könnuð

Hlut­hafa­fundur hefur verið boð­aður hjá HB Granda 16. októ­ber til að ræða kaup félags­ins á Ögurvík af Brimi, félags­ins sem for­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, á að stærstum hluta.

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi vill að fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku, fjár­fest­inga­banka, verði feng­inn til að meta fyr­ir­huguð kaup HB Granda á öllu hlutafé Ögur­víkur og skil­mála þeirra. Gildi hefur gert þá til­lögu um að bókun þessa efnis verði tekin til með­ferðar á hlut­hafa­fundi HB Granda sem fer fram 16. októ­ber. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]

Fyrir fund­inum liggur þegar til­laga um að stað­festa ákvörðun stjórn­ar­innar um kaup félags­ins á öllu hlutafé Ögur­víkur ehf. af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, sem áður bar nafið Brim. Í grein­ar­gerð Gildis segir að þar með liggi fyrir hlut­höfum að leggja mat á og taka afstöðu til þess hvort við­skiptin séu hag­felld fyrir HB Granda. Tillaga Gildi er meðal ann­ars ann­ars lögð fram í ljósi þess að aðal­eig­andi selj­anda Ögur­vík­urs, Guð­mundur Krist­jáns­son, sé einnig á sama tíma for­stjóri HB Granda og stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins.

Markmið til­lög­unnar sé því að tryggja að ákvörð­un­ar­taka sé hafin yfir allan vafa. Það liggur fyrir sér­fræði­skýrsla sem bendir á að ein­ungis sé byggt á einni til­tek­inni mats­gerð, án þess að horft sé til ann­arra þátta sem kunni að skipta máli þegar við­skiptin séu metin á heild­stæðum grunni.

[adspot]

Viðskiptin teljast verulega umfangsmikill á íslenskum mælikvarða

HB Grandi sam­þykkti kaup félags­ins á Ögurvíks fyrir 12,3 millj­arða króna í sept­em­ber. Afla­heim­ildir Ögur­víkur eru metnar á 14,5 millj­arða króna. Við­skiptin eru hins vegar háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og einni háð sam­þykki hlut­hafa­fundar. HB Grandi er eina útgerð­ar­fyr­ir­tækið á Íslandi sem skráð er á mark­að, en mark­aðsvirði þess nemur nú 57,4 millj­örðum króna.

Brim hf., nú Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, er stærsti eig­andi HB Granda með ríf­lega þriðj­ungs­hlut, en það félag er jafn­framt selj­andi Ögur­vík­ur. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri HB Granda, er stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur. Eigið fé Brims nam í árs­lok 2016 um 23 millj­örðum króna, en heild­ar­skuldir voru á sama tíma 31 millj­arður króna. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar enda keypti félagið hlut­inn í HB Granda fyrir um 22 millj­arða króna.

Kaupin verða fjár­mögnuð með eigin fé og láns­fjár­magni. Eigið fé HB Granda nam um 250,5 millj­ónum evra um mitt þetta ár, eða sem nemur um 32 millj­örðum króna. Stærsti hlut­hafi HB Granda er Brim hf. með tæp­lega 38 pró­sent hlut. Aðrir stærstu hlut­hafar eru einkum líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna á 13,66 pró­sent, LSR 9,94 pró­sent, Gildi líf­eyr­is­sjóður 8,62 pró­sent, Birta líf­eyr­is­sjóður 3,95 pró­sent og aðrir hlut­hafar eiga minna, en sam­an­lagt 28,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár