Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rússíbanareið Guðmundar

Útgerð­ar­mað­ur­inn Guð­mundur Krist­jáns­son er sá ein­stak­lingur sem er með mest undir, þegar kemur að skuldum við íslensku rík­is­bank­ana, Lands­bank­ann og Íslands­banka. Óhætt er að segja að und­an­far­inn ára­tugur hafi verið rús­sí­ban­areið hjá Guðmundi.

Á þessum degi fyrir ára­tug, 7. sept­em­ber 2008. Raf­magnað and­rúms­loft á fjár­mála­mörk­uðum víða um heim. Augun voru ekki bara á töl­unum sem bár­ust frá Wall Street - þar sem verð­hrun ein­kenndi mark­aði og lána­línur banka lok­uð­ust - heldur voru stjórn­völd í hverju rík­inu á fætur öðru að boða til neyð­ar­funda með for­svars­mönnum banka, seðla­banka og stærstu fyr­ir­tækja. Stormur var í aðsigi. Viku síðar, þegar Lehman Brothers bank­inn féll, sköp­uð­ust aðstæður sem Ben Bernanke, þáver­andi banka­stjóri Seðla­banka Banda­ríkj­anna, hefur lýst sem tæp­asta vaði í nútíma efna­hags­sögu heims­ins.

Spyrnt frá botni

Ekki þarf að fjöl­yrða um þetta tíma­bil sem tók við, en á litla Íslandi urðu dramat­ískir atburðir þegar fjár­mála­kerfið hrundi á þremur dögum, 7. til 9. októ­ber, og neyð­ar­lögum og fjár­magns­höftum var beitt til að marka upp­hafið af end­ur­reisn hag­kerf­is­ins. Það þurfti að finna botn­inn til að spyrna sér upp að nýju.

Í þessum aðstæðum hófst ekki aðeins end­ur­reisn hag­kerf­is­ins heldur líka end­ur­reisn á fjár­hag heim­ila, fyr­ir­tækja og í sumum til­vikum við­skipta­velda á íslenskan mæli­kvarða.

Við­skipta­veldi Guð­mundar Krist­jáns­sonar, sem oft­ast er kenndur við Brim, er eitt þeirra sem stóð höllum fæti eftir hrunið, svo ekki sé meira sagt. Skuldir langt umfram eignir.

Óhætt er að segja til­tektin á fjár­hag þeirra félaga hafa dregið dilk á eftir sér, þar sem hlut­hafa­fundur Vinnslu­stöðv­ar­innar sam­þykkti 25. júní síð­ast­lið­inn að leggja fram rann­sókn­ar­beiðni á næsta hlut­hafa­fundi Lands­bank­ans, sem bein­ist að því hvernig á því stendur að Guð­mundur og félög hans hafi fengið millj­arða afskrif­aða hjá bank­anum - og fengið að kaupa útgerð­ar­fé­lagið Brim á 205 millj­ónir króna út úr gjald­þrota móð­ur­fé­lagi sínu.

Á sama tíma hafa lán­veit­ingar til hans auk­ist um tugi millj­arða og umsvifin sömu­leiðis. Guð­mundur stendur nú eftir með fulla vasa fjár - og miklar skuldir - og við stýrið hjá HB Granda, en í til­kynn­ingu til kaup­hallar hefur verið boð­aður frek­ari vöxtur félags­ins.

Guð­mundur sagði tap­rekstur á fyrri hluta árs­ins óvið­un­andi, í til­kynn­ingu til kaup­hallar 29. ágúst. „Veiðar má auka með auknum veiði­heim­ildum og arð­sem­ina má bæta með breyt­ingum á skipum og flota. Verið er að skoða fjár­fest­ingar í vinnslu og tækni­bún­aði sem ættu að hafa jákvæð áhrif á rekst­ur­inn þegar fram í sækir. Einnig er í athugun að auka sam­starf á sviði mark­aðs- og sölu­mála og jafn­vel fjár­festa í erlendum sölu­fé­lögum,“ sagði Guð­mundur meðal ann­ars í til­kynn­ingu.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og aðaleigandi HB Granda.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og aðal­eig­andi HB Granda.

Eigið fé HB Granda nemur um 250 millj­ónum evra, eða sem nemur um 31 millj­arði króna en mark­aðsvirði félags­ins nemur nú 56,5 millj­örðum króna.

Guð­mundur og Sig­ur­geir B. Krist­geirs­son (oft­ast nefndur Binni), for­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, hafa lengi deilt, og hafa þær deilur síst verið á und­an­haldi. Beiðnin, sem fjallað er um í hlið­ar­dálki þessar greinar, teng­ist þessum deilum beint en þau atriði sem gerð er krafa um að verði skoðuð og krufin til mergja hafa þó einnig verið til umræðu innan Lands­bank­ans að und­an­förnu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Náið er fylgst með hverju skrefi þegar kemur að skuldum Guð­mundar við bank­ann og passað upp á veð­staða sé trygg svo að áhætta auk­ist ekki óhóf­lega.

Helga Björk Eiríks­dóttir, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, vildi ekki tjá sig um mál­efni ein­stakra við­skipta­vina bank­ans en sagði næsta hlut­hafa­fund bank­ans fyr­ir­hug­aðan næsta vor, í mars mán­uði. Engir aðrir hlut­hafa­fundir hefðu verið boð­aðir. Gera má ráð fyrir að þá verði rann­sókn­ar­beiðnin lögð fram og um hana fjallað.

Sögulegt yfirtökutilboð

Nú, tæpum ára­tug eftir hrunið, sem gjör­breytti for­sendum við­skipta­veldis Guð­mundar eins og margra ann­arra, er hann einn umsvifa­mesti fjár­festir lands­ins og gerði í júní sögu­legt yfir­tökutil­boð í næst stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins á eftir Samherja, HB Granda, sem jafn­framt er eina útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem skráð er á aðal­l­ista kaup­hall­ar­innar.

Hinn 18. apríl var til­kynnt um það að Brim hefði keypt rúm­lega þriðj­ungs­hlut í HB Granda af félög­unum Vogun hf. og Fisk­veiði­fé­lag­inu Venusi fyrir 21,7 millj­arða króna, en við­skiptin voru form­lega frá­gengin í byrjun maí. Hvalur hf. er eig­andi Vogunar en Venus á 43 pró­sent hlut í Hval hf. Eigendur Venusar eru Kristján Loftsson og Birna Lofts­dóttir.

Umfang við­skipt­anna var yfir lög­bundnu marki um yfir­töku­skyldu, sem mið­ast við 30 pró­sent hlut í félagi, og því virkj­að­ist hún í kjöl­far þess að til­kynnt hafði verið um við­skipti.

Tilboðið kom flestum stærstu fjár­festum á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði í opna skjöldu, þar á meðal nokkrum íslenskum líf­eyr­is­sjóðum. Meðal íslenskra líf­eyr­is­sjóða hefur lengi verið það sjón­ar­mið uppi, að æski­leg­ast væri fyrir sjóð­ina að dreifa eignum sjóð­anna meira meðal fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, en íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga lítið sem ekk­ert í íslenskum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum en þau eru flest með þröngt eign­ar­hald, oft innan fjöl­skyldna. Þar er HB Grandi hins vegar und­an­tekn­ing, enda er félagið eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem skráð er á markað.

Einn við­mæl­enda Kjarnans, sem starfar hjá íslenskum líf­eyr­is­sjóði, sagð­ist hafa furðað sig á því hvernig þetta hefði borið að og svo hefði virst sem lítið hefði verið hugsað um það, að yfir­töku­skylda hefði mynd­ast. Hafði þetta ekki verið hugsað til enda? Voru pen­ingar til fyrir þessu?

Í sam­tölum við bæði eft­ir­lits­að­ila og banka hefur Guð­mundur sagt, að vita­skuld hafi það legið fyrir, að yfir­töku­skyldan myndi virkj­ast við kaupin á hlut Hvals. Fyrir liggur þó, að yfir­tökutil­boðið var ekki fjár­magnað þegar yfir­töku­skyldan varð virk og hófust mikil fund­ar­höld hjá bönkum, lög­mann­stofum sem komu að mál­inu og mörgum stærstu hlut­höfum HB Granda um leið og þetta varð ljóst, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Að lokum fór það svo, að eig­endur ríf­lega 90 pró­sent hluta­fjár ákváðu að selja ekki hlut­inn og gerðu um það sam­komu­lag við Brim. Þetta gerði það að verkum, að auð­veld­ara var um vik að klára afgreiðslu við­skipt­anna gagn­vart bönkum, enda ekki hrist fram úr erminni að leggja fram trygg veð og eignir fyrir lána­fyr­ir­greiðslu í bönkum upp á 65 millj­arða króna.

Samkvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipti ber lána­stofn­unum að ábyrgj­ast til­boð til hlut­hafa, og því er aðkoma þeirra nauð­syn­leg. Íslands­banki, sem ríkið á að öllu leyti, kom til skjal­anna með Lands­bank­anum og voru við­skiptin þannig afgreidd með afger­andi aðkomu rík­is­bank­anna beggja.

Breytingar á stjórnendateymi

Fljót­lega eftir að Brim hafði orðið kjöl­festu­hlut­hafi í HB Granda var Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, sem hafði verið far­sæll for­stjóri félags­ins um ára­bil, rek­inn úr starfi og tók Guð­mundur við stjórn­ar­taumunum sem for­stjóri.

Þetta olli deilum í stjórn félags­ins og töldu tveir stjórn­ar­menn félags­ins, Rannveig Rist, for­stjóri álvers Rio Tinto Alcan í Straums­vík, og Anna G. Sverr­is­dóttir, ekki rétt að fara út í þessar aðgerðir, á meðan ekki var kom­inn botn í yfir­tökutil­boð Brims í hlutafé HB Granda.

Rannveig var sér­stak­lega ósátt við hvernig að þessu var staðið, og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans taldi hún þetta ekki sam­ræm­ast góðum stjórn­ar­háttum eða lögum sem stjórnir ættu að starfa eftir. Hún brást fljótt við og sagði sig úr stjórn með form­legri til­kynn­ingu þar um. Fyrir utan óánægju með afgreiðslu máls­ins þá hafði Vil­hjálmur átt gott sam­starf við stjórn og stjórn­endur félags­ins, og var brott­hvarf hans ekki vel séð af þeim ástæðum.

Deildar mein­ingar hafa verið um það meðal lög­manna, hvort það hafi verið laga­legur réttur fyrir hendi, til að reka Vilhjálm, en ákvörð­unin hefur þó ekki haft neina eft­ir­mála að hálfu eft­ir­lits­að­ila. Guð­mundur leit sjálfur svo á að betra væri fyrir hlut­hafa, sem ættu eftir að taka afstöðu til yfir­tökutil­boðs­ins, að vita hver yrði við stýrið í fyr­ir­tæk­inu í fram­tíð­inni. Það er hann sjálfur.

Rannveig Rist sagði sig úr stjórn HB Granda.
Rannveig Rist sagði sig úr stjórn HB Granda.

Mark­aðsvirði félags­ins er nú 56,5 millj­arðar króna, tæp­lega tíu millj­örðum minna en yfir­tökutil­boðið hljóð­aði upp á, og er Brim hf. stærsti eig­andi félags­ins með rúm­lega 35 pró­sent hlut.

Frekari breyt­ingar á for­ystu fyr­ir­tæk­is­ins hafa haldið áfram. Brynjólfur Eyj­ólfs­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­sviðs HB Granda, var lát­inn fara á dög­unum, og tók Guð­mundur við störfum hans tíma­bundið, sam­hliða for­stjóra­starf­inu, á meðan end­ur­skoðun á sölu- og marks­starfi stendur yfir.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið er enn með það til skoð­unar, hvort mynd­ast hafi yfir­ráð með kaupum Brims á kjöl­festu­hlut í félag­inu. HB Granda barst erindi frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í júlí þar sem óskað var eftir sjón­ar­miðum félags­ins vegna skoð­unar á því hvort mynd­ast yfir­ráð í skiln­ingi sam­keppn­islaga.

Enginn sem er stærri áhætta

Í við­skiptum snú­ast hlut­irnir fyrst og síð­ast um pen­inga. Ljóst var strax frá upp­hafi, þegar yfir­töku­skyldan hafði verið virkjuð, að Lands­bank­inn, sem hefur lengi verið helsti við­skipta­banki Guð­mundar og við­skipta­veldis hans, gæti ekki full­fjár­magnað yfir­tökutil­boðið.

Ástæðan var sú að áhætta bank­ans gagn­vart Guðmundi var þá komin upp í þak þess sem hún mátti vera.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru ekki fleiri dæmi eins og þetta, það er um svo mikla áhættu gagn­vart einum ein­stak­lingi og félögum hans - þar sem hann er langstærsti eig­andi - hjá rík­is­bönk­unum eftir hrun. Enginn ein­stak­lingur hefur jafn mikla áhættu í bókum stærstu bank­anna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Greint var frá því í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, að skuldir Guð­mundar væru komnar upp í þakið hjá Lands­bank­anum en reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) gera ráð fyrir að áhættu­skuld­bind­ing gagn­vart einum við­skipta­vini geti ekki farið yfir 25 pró­sent af eig­in­fjár­grunni bank­ans.

Lands­bank­inn, sem íslenska ríkið á ríf­lega 98 pró­sent hlut í, á mikið undir því að rekst­ur­inn gangi vel hjá Guðmundi og að hann geti borgað tug­millj­arða skuldir til baka, en áhætta Lands­bank­ans gagn­vart Guðmundi var komin í 45 millj­arða króna um mitt þetta ár.

Eitt af því sem hefur komið til greina er að Brim selji eignir, til að létta á skuldum og losi um fé. Það eru helst tæp­lega þriðj­ungs­hlutur í Vinnslu­stöð­inni, en hann hefur verið til sölu lengi. Ekki hefur þó fund­ist kaup­andi sem til­bú­inn er að borga það fyrir hlut­inn sem Guð­mundur hefur viljað fá fyrir hann. Einnig hefur Ögurvík, fyr­ir­tækið sem Brim keypti í júlí 2016, verið til sölu. Innan íslensks sjáv­ar­út­vegs hefur það verið nefnt, að HB Grandi gæti keypti það félag og styrkt sinn rekstur í leið­inni, með auk­inni stærð­ar­hag­kvæmni. Það myndi mögu­lega einnig styrkja stöðu Guð­mundar í leið­inni, og þannig væri mögu­legt að slá tvær flugur í einu höggi í fjár­hags­legu til­liti.

Má ekki mikið útaf bregða

Sé horft til skulda­stöðu Brims, miðað við árs­reikn­ing félags­ins árið 2016, þá námu þær tæp­lega 31 millj­arði króna og eru þær að mestu við Lands­bank­ann. Lang­tíma­skuldir voru 27 millj­arðar. Samkvæmt árs­reikn­ingnum var EBITDA – rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magnsliði og skatta – um 1,7 millj­arðar. Skuldir námu því átján­faldri EBITDU sem ekki telst sér­lega góð rekstr­ar­af­koma.

Eignir félags­ins, þar af afla­heim­ildir upp á 25,5 millj­arða, námu tæp­lega 60 millj­örðum í árs­lok 2016 og var eigið fé þess tæp­lega 23 millj­arðar á sama tíma.

Eins og í öðrum útflutn­ings­greinum er gengi íslensku krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum stór og mikil breyta í rekstr­inum. Sterkt gengi krón­unnar, ofan í hækk­andi launa- og olíu­kostnað, hefur gert rekstur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja meira krefj­andi und­an­farin miss­eri. Komi til þess að gengi krón­unnar veik­ist á næst­unni - sem margir telja lík­legt í ljósi þess hve raun­gengið er og hefur verið sögu­lega sterkt í langan tíma - þá mun það geta haft mikil áhrif á helstu stærðir í við­skipta­veldi Guð­mundar.

Líklega yrði það þá til hins betra, þó koll­steypur á gengi geti sett allt á annan end­ann eins og gerð­ist fyrir tæpum ára­tug, með hruni fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar, á sama tíma og alþjóða­mark­aðir féllu saman, og skópu far­veg­inn fyrir þá rús­sí­ban­areið sem segja má að við­skipta­veldi Guð­mundar hafi farið í gegnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár