SUS lýsir yfir vonbrigðum með ummæli Bjarna

Stjórn SUS gagn­rýnir ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins á nýaf­stöðnu kirkju­þingi. Stjórn SUS segir orð­ræðu Bjarna lýsa gríð­ar­legum van­skiln­ingi á mál­stað þeirra fjöl­mörgu Íslend­inga sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samband ungra sjálf­stæð­is­manna (SUS) lýsir yfir von­brigðum með þau orð sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, lét falla á nýaf­stöðnu kirkju­þingi þjóð­kirkj­unnar í ályktun frá stjórn SUS.

Í ávarpi sínu sagði Bjarna að krafa um aðskilnað ríkis og kirkju, eða ríkis og trú­ar­bragða almennt, sé komin frá ungu fólki sem hafi ekki lent í áföllum á lífs­leið­inni og þekki því ekki til sálu­hjálpar þjóð­kirkj­unnar.

Í ályktun SUS er Bjarni harð­lega gagn­rýndur fyrir orð sín: „Orðræða af þessu tagi lýsir gríð­ar­legum van­skiln­ingi á mál­stað þeirra fjöl­mörgu Íslend­inga sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju, en um er að ræða bar­áttu­mál SUS til margra ára­tuga og sam­þykkta stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi. Það er afar ómál­efna­legt að afskrifa mál­stað þeirra sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju með þeim hætti sem Bjarni gerði.“ segir stjórn SUS

Í engu sambandi við reynslu fólks af áföllum í lífinu

Samkvæmt álykt­un­inni byggir mál­staður þeirra sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju í lang­flestum til­vikum á því að það sé ekki hlut­verk rík­is­ins að skatt­leggja almenn­ing til að fjár­magna trú­fé­lög, hvað þá eitt trú­fé­lag framar öðrum. „Slíkt fyr­ir­komu­lag felur í sér mikið ójafn­ræði milli trú­fé­laga og er á skjön við lífs­skoð­anir fjöl­margra Íslend­inga, en sá hópur fer stækk­andi með hverjum deg­inum og sam­anstendur af þjóð­fé­lags­hópum af öllum aldri og póli­tískum skoð­unum, og stendur í engu sam­bandi við reynslu fólks af áföllum í líf­inu“ segir í álykt­un­inni.

Í álykt­un­inni leggur SUS áherslu á mik­il­vægi þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn beiti sér fyrir auknu frelsi og dragi úr inn­gripum rík­is­ins í líf fólks. Stjórn SUS telur það afar óeðli­legt að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins standi í vegi fyrir frels­is­málum sem flokks­menn og gríð­ar­stór hluti þjóð­ar­innar styður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár