Bestseller og herforingjastjórnin í Myanmar

Getur hugs­ast að stærsti fata­fram­leið­andi Dan­merkur styðji, með óbeinum hætti, her­for­ingja­stjórn­ina, og mann­rétt­inda­brot í Myanmar? Ekki bara hugs­an­legt, heldur stað­reynd segir danski utan­rík­is­ráð­herr­ann, sem varar fyr­ir­tækið við.

Fyr­ir­tækj­a­nafnið Bestseller hljómar kannski ekki sér­lega kunn­ug­lega. Það gera hins­vegar búða­heitin Vero Moda, Jack & Jones, Only, Name It, Selected Homme og að minnsta kosti 15 til við­bótar. Þessar versl­anir eiga það sam­eig­in­legt að vera í eigu Bestseller fyr­ir­tæk­is­ins.

Bestseller var stofnað árið 1975. Stofn­endur voru hjónin Merete Bech Povlsen og Troels Holch Povlsen. Fyrst í stað ein­beitti fyr­ir­tækið sér að fram­leiðslu og sölu á kven­fatn­aði. Rekst­ur­inn gekk frá upp­hafi vel og árið 1986 hófst fram­leiðsla á barna­fötum og karl­manna­fatn­aði tveimur árum síðar.

Þúsundir verslana

Fyr­ir­tækið stækk­aði jafnt og þétt og versl­anir Bestseller skipta nú þús­undum, Vero Moda versl­an­irnar eru rúm­lega 8 hund­ruð og Jack & Jones 12 hund­ruð tals­ins. Tals­verður hluti þess­ara versl­ana er undir stjórn móð­ur­fyr­ir­tæk­is­ins Bestseller en aðrar reknar með sér­leyfi. Starfs­fólk Bestseller er um það bil 17 þús­und og þar við bæt­ist að minnsta kosti álíka fjöldi und­ir­verk­taka hjá fyr­ir­tæk­inu. Bestseller á auk þess hlut í nokkrum stórum fyr­ir­tækja­sam­steypum, þar á meðal Bestseller Fashion Group China. Það fyr­ir­tæki hannar og fram­leiðir fatnað sem seldur er í 5 þús­und versl­unum í Kína.

[adspot]Bestseller er í dag meðal stærstu fyr­ir­tækja í Danmörku. Árið 2000 tók Anders Holch Povlsen, sonur stofn­end­anna, við sem for­stjóri og er nú eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Hann og eig­in­kona hans Anne Storm Pedersen eru í hópi rík­ustu íbúa Dan­merkur.

Misstu þrjú börn

Um pásk­ana 2019 voru þau hjónin Anders Holch Povlsen og Anne Storm Pedersen, ásamt fjórum börnum sínum, í fríi á Sri Lanka. Að morgni páska­dags réð­ust hryðju­verka­menn til atlögu á nokkrum stöðum í land­inu, þar á meðal á hót­el­inu þar sem fjöl­skyldan bjó.

Hátt í 300 lét­ust í þessum til­ræðum og að minnsta kosti 500 særð­ust. Meðal þeirra sem lét­ust voru þrjú börn Anders og Anne, dæt­urnar Alma og Agnes og son­ur­inn Alfred. Ári síðar eign­uð­ust hjónin tví­bura.

Fyrst til Suður- Evrópu og þaðan til Asíu

Í upp­hafi sjö­unda ára­tugar síð­ustu aldar flutt­ist megnið af vestur- evr­ópskri fata­fram­leiðslu til Suður- Evrópu. Þar var fram­leiðslu­kostn­að­ur­inn, þar með talin launin, lægri. Síðar flutt­ist fram­leiðslan að stórum hluta til Asíu. Til Kína, Indlands, Pakistan, Bangla­dess, Tælands, Sri Lanka, og fleiri landa.

Myanmar

Myanmar, sem líka gengur undir nafn­inu Búrma, hefur lengi verið mjög lokað land, ára­tugum saman undir stjórn her­for­ingja. Um miðjan síð­asta ára­tug varð nokkur breyt­ing á, stjórn­völd í Myanmar vildu opna landið, eins og það var orðað. Til að skapa störf og afla gjald­eyr­is­tekna. Fjölmörg erlend fyr­ir­tæki sáu sér hag í sam­starfi við stjórn­völd, meðal þeirra var hið danska Bestseller. Í árs­byrjun 2019 var Bestseller með samn­inga um fata­fram­leiðslu við 36 fata­verk­smiðjur og sauma­stofur, með sam­tals um 50 þús­und starfs­menn, mik­ill meiri­hluti konur.

Aung San Suu Kyi

Eins og áður var nefnt hefur her­inn ráðið lögum og lofum í Myanmar ára­tugum saman. Kosn­ingar hafa þar engu breytt.

Í þessu sam­bandi má geta þess að fyrir kosn­ingar í land­inu árið 1990 var leið­togi Lýð­ræð­is­fylk­ing­ar­innar, Aung San Suu Kyi, hand­tekin og sett í stofu­fang­elsi. Lýð­ræð­is­fylk­ingin vann stór­sigur í kosn­ing­unum, en her­inn virti þau úrslit að vett­ungi og Aung San Suu Kyi mátti dúsa í stofu­fang­elsi, í sam­tals 15 ár. Í árs­lok 2015 fóru fram kosn­ingar í land­inu og þar fékk Lýð­ræð­is­fylk­ingin mik­inn meiri­hluta atkvæða. Herinn hélt eftir sem áður völd­unum í land­inu, að mestu leyti. Aung San Suu Kyi gat ekki orðið for­seti eða for­sæt­is­ráð­herra vegna ákvæða í lögum, sem heim­ila ekki að ein­stak­lingur sem á börn með erlent rík­is­fang gegni slíku emb­ætti. Tveir synir Aung San Suu Kyi sem hún eign­að­ist með breskum eig­in­manni sínum, sem er lát­inn, eru breskir rík­is­borg­arar. Hún fékk því starfs­heitið rík­is­ráð­gjafi. Áfram var það þó her­inn sem öllu réði.

Enn var kosið til þings árið 2020 og þar vann Lýð­ræð­is­fylk­ingin öruggan sigur, fékk 396 þing­sæti af 476 sætum á þing­inu. Lepp­flokkur her­for­ingja­stjórn­ar­innar sak­aði Lýð­ræð­is­fylk­ing­una um kosn­inga­svindl og fyrsta febr­úar síð­ast­lið­inn hrifs­aði her­inn völdin og Aung San Suu Kyi var enn á ný sett í stofu­fang­elsi.

Skýrsla Mannréttindaráðsins

Árið 2019 sendi Mann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu Þjóðanna frá sér skýrslu. Tildrög hennar voru ofsóknir her­stjórn­ar­innar i Myanmar gegn þjóð­ar­broti Rohingja. Talið er að fleiri en 700 hafi fallið í aðgerðum hers­ins og meira en hálf milljón flúið land, einkum til Bangla­dess. Mann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur lýst Rohingjum, sem eru sam­tals innan við tvær millj­ónir, einum mest ofsótta minni­hluta­hópi í heim­inum.

[adspot]Í skýrsl­unni kom fram að sterk tengsl væru milli hers­ins í Myanmar og stórrar fyr­ir­tækja­sam­steypu í land­inu. Eigendur sam­steypunnar eru ein­stak­lingar og deildir innan hers­ins, þar á meðal yfir­hers­höfð­ing­inn Min Aung Hlaing. Fyr­ir­tækja­sam­steyp­unni Myanmar Economic Holdings Limited, MEHL, er ætlað að útvega fjár­magn til hers­ins og hers­höfð­ingj­anna, gjarna fram­hjá opin­beru kerfi, þannig má kom­ast fram­hjá reglum um gagn­sæi. Í skýrslu Mann­réttinda­ráðs­ins er því slegið föstu að MEHL stjórni stórum hluta efna­hags­lífs­ins í Myanmar.

Bestseller og verksmiðjurnar

Í skýrsl­unni áður­nefndu koma fram nöfn að minnsta kosti tveggja mjög stórra fata­verk­smiðja sem fram­leiða mikið fyrir Bestseller. Þessar verk­smiðjur, Guotai Guohua Garment og Saung Oo Shwe Nay, greiða háar fjár­hæðir til MEHL, og þeir pen­ingar eru að veru­legu leyti til­komnir vegna tekna frá Bestseller. MEHL á enn­fremur land­svæðið sem áður­nefndar verk­smiðjur standa á og verk­smiðj­urnar borga háa leigu fyrir afnot lands­ins.

Efnahagsþvinganir, utanríkisráðherra og Bestseller

Síð­ast­lið­inn mánu­dag, 19. apríl, sam­þykkti Evr­ópu­sam­bandið hertar efna­hags­þving­anir gegn Myanmar á grund­velli mann­rétt­inda­brota í land­inu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkar ákvarð­anir eru teknar en þving­an­irnar nú ganga lengra en áður. Eitt ákvæði í þessum þving­un­ar­að­gerðum er að fyr­ir­tæki innan ESB hætti við­skiptum við Myanmar. Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra Dana gagn­rýndi í lið­inni viku Bestseller harð­lega fyrir að hafa látið nið­ur­stöður skýrslu Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 2019 sem vind um eyru þjóta. Það er fremur óvenju­legt að danskur utan­rík­is­ráð­herra sé svo harð­orður í garð eins fyr­ir­tækis. Danska atvinnu- og eft­ir­lits­stofn­unin (Erhvervs­styrel­sen) tekur sömu­leiðis djúpt í árinni og hefur bein­línis í hót­unum við Bestseller ef það hætti ekki sam­vinnu við fyr­ir­tæki í Myanmar. Pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla sagð­ist, í blaða­við­tali, ekki minn­ast þess að hafa séð jafn sterkt til orða tekið eins og í yfir­lýs­ingu atvinnu- og eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar. Hlutverk stofn­un­ar­innar er meðal ann­ars að fylgj­ast með að sam­þykktum ESB varð­andi efna­hags­þving­anir sé fram­fylgt. Pró­fess­or­inn sagði að svo virt­ist sem Bestseller hefði talið hót­anir og efna­hags­þving­anir golu­þyt sem liði hjá. „Nú ætti stjórn­endum Bestseller að vera ljóst að hér verður kné látið fylgja kviði.“

Segjast hafa látið athuga málið

Tals­maður Bestseller sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að eftir útkomu skýrslu Mann­rétt­inda­stofn­un­ar­innar árið 2019 hafi fyr­ir­tækið látið kanna hvort tengsl væru milli hers­ins í Myanmar og verk­smiðj­anna sem Bestseller skiptir við. Tals­mað­ur­inn sagði að sú könnun hefði ekki leitt í ljós að fata­verk­smiðj­urnar greiddu stórfé til hers­ins. Í bréfi til Politi­ken frá Bestseller, fyrir nokkrum dögum, kom fram að fyr­ir­tækið hafi nú ákveðið að ekki verði um frek­ari við­skipti við fata­verk­smiðj­urnar í Myanmar að ræða fyrr en slíkt verði for­svar­an­legt, etisk for­svar­ligt, eins og það var orðað.

[adspot]Í við­tali við Politi­ken fyrir nokkrum dögum sagði Anders Holch Povlsen for­stjóri og eig­andi Bestseller að á næstu dögum, í síð­asta lagi 10. maí, myndi fyr­ir­tækið leggja fram alla papp­íra sem varða við­skipti þess við fata­verk­smiðjur og önnur fyr­ir­tæki í Myanmar. Hann lýsti einnig eftir leið­bein­ingum frá Evr­ópu­sam­band­inu um hvernig fyr­ir­tækjum eins og Bestseller bæri að bera sig að varð­andi sam­skipti við fram­leið­endur í Myanmar. „Við berum mikla ábyrgð gagn­vart þeim tug­þús­undum íbúa Myanmar sem starfa bein­línis fyrir okkur og hafa af því sitt lifi­brauð.“

Nánari útfærsla á þeim efna­hags­þving­unum sem ESB hefur ákveðið verður vænt­an­lega kynnt innan tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár