Starfsfólki fækkar ört í fjármálakerfinu

Rúmlega þriðj­ungi færri unnu í fjár­mála­fyr­ir­tækjum í sumar, miðað við árið á undan. Hag­ræð­ing þriggja stærstu bank­anna hefur skilað sér í hærri arð­semi, þrátt fyrir að þrengt hafi verið að rekstri þeirra á und­an­förnum mán­uðum.

Seðlabankinn telur Landsbankann, Íslandsbanka og Arion banka alla vera kerfislega mikilvæga.
Seðla­bank­inn telur Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka alla vera kerf­is­lega mik­il­væga. Mynd: Samsett

Fjár­mála­störfum fækk­aði um rúm­lega þriðj­ung á öðrum fjórð­ungi þessa árs miðað við sama tíma­bil árið á undan. Seðla­bank­inn nefnir að banka­kerfið búi við þrengri rekstr­ar­skil­yrði þessa mán­uð­ina, en segir að nið­ur­skurður á síð­ustu miss­erum hafi leitt til hag­kvæm­ari rekst­urs. Á sama tíma og starfs­mönnum í fjár­mála­kerf­inu hefur fækkað jafnt og þétt síð­ustu ára hefur stjórn­ar­mönnum, fram­kvæmda­stjórum og stjórn­ar­for­mönnum fjölgað þar um fimmt­ung.

Vaxtamunur hefur minnkað

Í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem gefið var út af Seðla­bank­anum á mið­viku­dag­inn, kemur fram að nýlegar vaxta­lækk­anir og afskriftir í kjöl­far far­sótt­ar­innar hafi skapað þrengri rekstr­ar­skil­yrði fyrir Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka.

Lækkanir á meg­in­vöxtum Seðla­bank­ans hafa skapað þrýst­ing til lækk­unar á óverð­tryggðum lánum bank­anna á breyti­legum vöxtum, á meðan erfitt hefur reynst að lækka inn­láns­vext­ina sína sökum þess hve nálægt þeir eru 0 pró­sentum.

Minnk­andi vaxta­mun má sjá á mynd hér til hliðar, þar sem munur á vöxtum óverð­tryggðra inn-og útlána til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga síð­ustu fimm ára er skoð­aður. Líkt og myndin sýnir hefur þessi vaxta­munur hjá ein­stak­lingum hald­ist nokkuð stöð­ugur í fimm pró­sentum síð­ustu árin, en hefur svo lækkað um fimmt­ung í ár. Samkvæmt Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­bank­ans hefur svo vaxta­munur heild­ar­eigna bank­ans einnig lækkað, úr 2,7 pró­sentum á öðrum fjórð­ungi síð­asta árs niður í 2,6 pró­sent á sama tíma­bili í ár.

Mikil virðisrýrnun

Á sama tíma og vaxta­munur hefur minnkað hefur svo greiðslu­geta fyr­ir­tækja og ein­stak­linga minnkað sökum ástands­ins. Um miðjan sept­em­ber voru 3,4 pró­sent útlána til heim­ila og 8,6 pró­sent útlána til fyr­ir­tækja í greiðslu­hléi eða fryst­ingu hjá bönk­unum þremur. Þar sem greiðslu­hæfi lán­tak­enda hefur skerst hefur virði útlána bank­anna skerst um rúma 23 millj­arða króna á fyrri hluta þessa árs. Þetta er þrefalt meiri virð­is­rýrnun en á sama tíma­bili í fyrra.

Meiri arðsemi eftir mikla hagræðingu

Þrátt fyrir verri rekstr­ar­skil­yrði bank­anna þriggja var arð­semi þeirra meiri á fyrri hluta árs­ins en hún hefur verið á sama tíma­bili síð­ustu tvö árin. Í því sam­hengi nefnir Seðla­bank­inn að bank­arnir hafi náð að lækka kostnað sinn tölu­vert á síð­ustu mán­uðum, en hann var rúm­lega fimm pró­sentum minni á síð­asta árs­fjórð­ungi, ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra og tekið er til­lit til verð­bólgu.

Fækkun starfs­manna vó þungt í þeirri kostn­að­ar­lækkun, en sam­kvæmt rit­inu hefur stöðu­gildum í bönk­unum þremur fækkað um tæp 200 á síð­ustu mán­uðum og eru nú um 2.645.

1.500 störf horfin á tólf mánuðum

Svipuð þróun virð­ist hafa átt sér stað hjá öðrum fyr­ir­tækjum í fjár­mála­kerf­inu, ef tölur Hagstofu um fjölda starfa eru skoð­aðar. Samkvæmt þeim störf­uðu um 2.900 manns í fjár­mála-og vátrygg­ing­ar­starf­semi á síð­asta árs­fjórð­ungi, sem er rúm þriðj­ungs­lækkun miðað við sama tíma­bil í fyrra, þegar um 4.400 manns störf­uðu þar. Störfum í grein­inni hefur því fækkað um 1.500 á tólf mán­uðum.

Framkvæmdastjórum og stjórnarmönnum fjölgar

Ef litið er lengur aftur í tím­ann sést einnig að fjöldi laun­þega hefur hægt og rólega minnkað í fjár­mála­kerf­inu á síð­ustu tíu árum, en um 7.300 manns störf­uðu þar í árs­byrjun 2010. Á sama tíma hefur þó fjöldi fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­manna auk­ist tölu­vert, eða úr 950 í 1.200. Þar vegur fjölgun stjórn­ar­for­manna þyngst, en þeim hefur fjölgað um 130 á síð­ustu tíu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár