Gunnar Bragi á ráðstefnu um fjármögnun þróunarsamvinnu í Eþíópíu

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra er staddur í Addis Ababa í Eþíópíu þessa dag­ana, þar sem fram fer þriðja alþjóð­lega ráð­stefnan um fjár­mögnun þró­un­ar­sam­vinnu, Financing for Develop­ment. Þetta er fyrsta ferð hans til Afríku.

Ráð­stefnan hófst í gær og Gunnar Bragi var með ávarp á mál­stofu um fjár­mögnun sjálf­bærrar orku, og tók þátt í annarri mál­stofu um fjár­fest­ingu í jafn­rétti kynj­anna. Hann fund­aði einnig með ráð­herra inn­viða og orku­mála hjá Afr­íku­sam­band­inu um jarð­hita­sam­starf. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Að ráð­stefn­unni lok­inni fer Gunnar Bragi til Malaví að skoða starf­semi Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar og funda með ráða­mönnum. RÚV greindi frá því í gær­kvöldi að eng­inn starfs­maður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar verður með honum í för.

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að vegna þess að ráð­stefnan í Eþíópíu er skipu­lögð af Sam­ein­uðu þjóð­unum fellur hún undir starfs­svið utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en ekki Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar. Þess vegna er eng­inn starfs­maður Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar á ráð­stefn­unni. Með Gunnari Braga í för þar eru hins vegar Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir, aðstoð­ar­maður hans, María Erla Mar­els­dóttir, skrif­stofu­stjóri þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins og sendi­herra Íslands gagn­vart bæði Eþíópíu og Malaví, og María Mjöll Jóns­dóttir hjá fasta­nefnd Íslands gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York. María Mjöll tekur þátt í samn­inga­fundum fyrir hönd Íslands á ráð­stefn­unni en fer ekki til Malaví.

Í Malaví mun Vil­hjálmur Wium, umdæm­is­stjóri Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar í Lilongwe, á móti ráð­herr­anum og fylgd­ar­liði hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár