Jafnréttismiðuð fyrirtæki greiði lægra tryggingagjald

Þingmenn úr þremur flokkum hafa lagt til að fyr­ir­tæki með jafn­ara kynja­hlut­fall í stjórn­un­ar­stöðum greiði lægra trygg­inga­gjald. Mark­miðið er að fjölga konum í stjórn­un­ar­stöðum og þar með draga úr óleið­réttum launa­mun kynj­anna.

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar hefur lagt fram frum­varp, auk sex ann­arra þing­manna, þess efnis að fyr­ir­tæki sem tekið hafa jafn­rétt­is­mál föstum tökum, þar á meðal með betra jafn­vægi milli kynja í stjórn­un­ar­stöðum og yfir­lýstri jafn­rétt­is­stefnu, greiði lægra trygg­inga­gjald.

Þing­menn­irnir telja að með því skap­ist hvati til að fjölga konum í stjórn­un­ar­stöðum sem síðan dragi úr vægi almanna­trygg­inga í líf­eyr­is­greiðslum og úr óleið­réttum launa­mun.

Til þess fallið að draga úr óleiðréttum launamun

[links]Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að efn­is­leg rök séu fyrir því að fyr­ir­tæki sem náð hafa betra jafn­vægi milli kynja í stjórn­un­ar­stöðum greiði lægra trygg­inga­gjald.

Konur reiða sig í rík­ari mæli á líf­eyr­is­greiðslur almanna­trygg­ingar en karlar. Samkvæmt grein­ar­gerð­inni stafar það af umtals­verðum launa­mun kynj­anna, en óleið­réttur launa­munur þeirra mælist nú í kringum 15 pró­sent og hefur lítið breyst á und­an­förnum árum, auk þess sem atvinnu­þátt­taka kvenna er minni en karla. [adspot]

Því sé aukið jafn­vægi milli kynja í stjórn­un­ar­stöðum til þess fallið að draga úr óleið­réttum launa­mun kynj­anna og þar með minnka vægi almanna­trygg­inga í líf­eyr­is­greiðslum að starfs­ferli loknum. Auk þess segir í grein­ar­gerð­inni að gangi frum­varpið eftir dragi það úr kyn­bund­inni verka­skipt­ingu vinnu­mark­aði sem ýti undir mun hærra hlut­fall kvenna á örorku­skrá.

Langt í land

Í grein­ar­gerð­inni er jafn­framt fjallað um hlut­fall í stjórnum íslenskra fyr­ir­tækja. Í fyrra voru konur 33,5 pró­sent stjórn­ar­manna í fyr­ir­tækjum með 50 laun­þega eða fleiri en þetta er í fyrsta sinn sem hlut­fall mælist hærra en þriðj­ungur. Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja með færri en 50 laun­þega stendur aftur á móti nán­ast í stað á milli ára og var 25,9 pró­sent árið 2018.

Staðan meðal milli­stjórn­enda er ögn skárri en þó hafa aðeins 30 pró­sent íslenskra fyr­ir­tækja jöfn kynja­hlut­föll í milli­stjórn­enda­stöðum og í um 60 pró­sent íslenskra fyr­ir­tækja eru milli­stjórn­endur mest­megnis eða nær ein­göngu karl­menn.

Félög í rík­i­s­eigu mæl­ast með jafn­ari kynja­hlut­föll en félög í einka­eigu en þó eru konur aðeins 29 pró­sent stjórn­ar­for­manna, 38 pró­sent for­stjóra og 39 pró­sent fram­kvæmda­stjórn­enda í félögum í rík­i­s­eigu.

„Þessar tölur sýna að þrátt fyrir gott gengi Íslend­inga í jafn­rétt­is­bar­átt­unni þá er enn verk að vinna,“ segir í grein­ar­gerð­inni og jafn­framt er bent á að rann­sóknir hafi sýnt að til þess að konur eigi mögu­leika á stjórn­enda­stöðum í efsta lagi fyr­ir­tækis þá er lík­leg­ast að þær fái slíkar stöður eftir að hafa gegnt milli­stjórn­enda­stöðu fyrir. Því telja flutn­ings­menn frum­varps­ins mik­il­vægt að auka hvatann til að hafa sem jöfn­ust kynja­hlut­föll í öllum stigum fyr­ir­tæk­is­ins.

Allt að 8 milljarða króna breyting

Þing­menn­irnir leggja því til að almennt trygg­inga­gjald fyr­ir­tækja sem upp­fylla skil­yrði um hlut­fall stjórn­enda af hverju kyni sé ekki hærra en 60 pró­sent, hafa hlotið jafn­launa­vottun og sett sér jafn­rétt­is­á­ætlun verði lækkað um 0,5 pró­sentu­stig eða úr 4,9 pró­sent í 4,4 pró­sent.

Skilyrði um jafnt hlut­fall í stjórnum tekur þó aðeins til fyr­ir­tækja sem hafa fleiri en fjóra stjórn­endur og skil­yrðið um jafn­launa­vottun gildir að auki aðeins um félög sem hafa 25 starfs­menn eða fleiri. Er því ljóst að kröfur sem smærri atvinnu­rek­endur þurfa að upp­fylla til að hljóta lækkun trygg­inga­gjalds eru minni en kröf­urnar sem stærri fyr­ir­tæki þurfa að upp­fylla.

Reiknað er með að breyt­ingin sem frum­varpið felur í sér hafi áhrif á tekjur rík­is­sjóðs til lækk­unar um 8 millj­arða króna á árs­grund­velli ef allir atvinnu­rek­endur upp­fylltu þau skil­yrði sem sett eru til að njóta lækk­unar trygg­inga­gjalds. Þó segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins að gera megi ráð fyrir að það taki nokkur ár fyrir áhrif breyt­ing­anna að koma fram að fullu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár