Landsbankinn vill matsmenn til að leggja mat á ársreikning Borgunar

Mál sem Lands­bank­inn höfð­aði gegn Borgun, fyrr­ver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og þeim sem keyptu hlut bank­ans í því haustið 2014 var tekið fyrir í apríl. Bankinn vill enn ekki afhenda stefn­una í mál­inu né fram­lagðar grein­ar­gerðir.

Mál Lands­bank­ans gegn Borgun hf., fyrr­ver­andi for­stjóra Borgunar Hauki Oddssyni, BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. var tekið fyrir 13. apríl síð­ast­lið­inn. Við það tæki­færi lagði Lands­bank­inn fram beiðni um að dóm­kvaddir yrðu mats­menn til að leggja mat á „til­tekin atriði varð­andi árs­reikn­ing Borgunar hf.“ Mál­flutn­ingur um mats­beiðn­ina fer fram í lok næstu viku, eða 31. ágúst. Þetta kemur fram í nýjasta árs­hluta­reikn­ingi Lands­bank­ans.

[links]Bankinn, sem er í eigu rík­is­ins, höfð­aði málið í jan­úar 2017 til við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu vegna sölu­hagn­aðar sem hann telur sig hafa orðið af þegar hann seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun árið 2014. Í til­kynn­ingu sem Lands­bank­inn sendi frá sér þegar málið var höfðað sagði að hann hefði ekki fengið „upp­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ. á m. mögu­lega hlut­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­ar­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.“

Lands­bank­inn hefur ekki viljað afhenda Kjarn­anum stefn­una í mál­inu né þær grein­ar­gerðir sem lagðar hafa verið fram. Í árs­hluta­reikn­ingi bank­ans er þó stað­fest að búið sé að skila grein­ar­gerðum í mál­inu.

Keypt á undirverði

Þegar Lands­bank­inn seldi Borgun var kaup­and­inn Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun. Kaupin áttu sér þann aðdrag­anda að maður að nafni Magnús Magn­ús­son, með heim­il­is­festi á Möltu, setti sig í sam­band við rík­is­bank­ann og fal­að­ist eftir eign­ar­hlutnum fyrir hönd fjár­festa. Á meðal þeirra sem stóðu að kaup­enda­hópnum voru stjórn­endur Borgunar.

[adspot]Hópurinn fékk að kaupa 31,2 pró­sent hlut­inn á tæp­lega 2,2 millj­arða króna án þess að hann væri settur í opið sölu­ferli. Í fyrstu vörðu stjórn­endur Lands­bank­ans söl­una og það að hlut­ur­inn hafi ekki verið boð­inn út í opnu sölu­ferli. Það breytt­ist þó fljót­lega, sér­stak­lega þegar í ljós kom að á meðal eigna Borgunar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu síðar. Þessi eign­ar­hlutur var marga millj­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­ar­hlut Lands­bank­ans.

Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­samn­ingnum um við­bót­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mögu­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc.

Þrír stærstu aðil­arnir sem stóðu að Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­ar­fyr­ir­tækið Stálskip, félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra) og félagið Pétur Stef­áns­son ehf. (Í eigu Péturs Stef­áns­sonar). Einhver við­skipti hafa síðan verið með hluti í Borgun frá því að Lands­bank­inn seldi sinn hlut.

Í nóv­em­ber 2016 birti Rík­is­end­ur­skoðun skýrslu um fjöl­margar eigna­sölur Lands­bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær harð­lega. Á meðal þeirra er salan á hlut í Borg­un. Tíu dögum síðar var Stein­þóri Pálssyni, banka­stjóra Lands­bank­ans, sagt upp störfum.

Arðgreiðslur hærri en kaupverðið

Rekstur Borgunar gekk ótrú­lega vel næstu árin. Hagnaður árs­ins af reglu­legri starf­semi var undir einum millj­arði króna árið 2013. Árið 2016 var hann rúm­lega 1,6 millj­arðar króna. En hlut­deildin í söl­unni á Visa Europe skiptir auð­vitað mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er metin. Sá lottó­vinn­ingur skil­aði Borgun 6,2 millj­örðum króna. Þrátt fyrir hana hefur virði Borgunar samt sem áður auk­ist umtals­vert.

Nýju eig­end­urnir hafa heldur betur notið þessa. Sam­tals voru greiddir 7,7 millj­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna áranna 2014-2016. Ef Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hefði haldið 31,2 pró­sent hlut sínum í fyr­ir­tæk­inu hefði hlut­deild hans í umræddum arð­greiðslum numið 2,4 millj­örðum króna.

Í ljósi þess að hlutur Lands­bank­ans var seldur í nóv­em­ber 2014 fyrir 2.184 millj­ónir króna hafa arð­greiðsl­urnar sem runnið hafa til nýrra eig­enda að hlutnum frá því að hann var seldur verið 218 millj­ónir króna fram yfir það sem greitt var fyrir hlut rík­is­bank­ans haustið 2014. Þeir eru búnir að fá allt sitt til baka auk 218 millj­óna króna og eiga enn hlut­inn í Borgun. Virði hans hefur einnig hækkað mikið.

Á síð­asta ári hagn­að­ist Borgun um 350 millj­ónir króna og eignir þess voru metnar á 31,7 millj­arða króna í árs­lok. Bókfært eigið fé á þeim tíma var 6,8 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár