Ráðherra segir ríkið ekki bera kostnað af hafnargarðinum

Sigrún Magn­ús­dóttir segir að Land­stólpi borgi fyrir flutn­ing hafn­ar­garðs­ins. Því er Land­stólpi ósam­mála, telur lögin skýr og mun sækja bætur í rík­is­sjóð.

Hafnargarðurinn, sem þurfti að taka upp stein fyrir stein og verður svo settur aftur á sinn stað.
Hafn­ar­garð­ur­inn, sem þurfti að taka upp stein fyrir stein og verður svo settur aftur á sinn stað. Mynd: Birgir Þór

Sigrún Magn­ús­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra segir að ríkið muni ekki bera neinn kostnað af því að láta flytja hafn­ar­garð­inn á Aust­ur­hafn­ar­reitnum. Aðeins launa­kostn­aður vegna eft­ir­lits Minja­stofn­unar með fram­kvæmd­unum kemur í hlut rík­is­ins. Þetta kemur fram í svari hennar við fyr­ir­spurn Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

Fram­kvæmd­ar­að­il­inn, Land­stólpi, er á öðru máli og telur ljóst að ríkið eigi að bera allan kostn­að­inn af fram­kvæmd­unum. Þetta stað­festir Guðni Rafn Eiríks­son í sam­tali við Kjarnann. Búið var að reikna út að kostn­að­ur­inn yrði um 500 millj­ónir króna, en ekki er ljóst hversu hárrar upp­hæðar verði kraf­ist.

Land­stólpi hefur raunar alltaf haldið því fram að það sé ríkið sem bera eigi kostn­að­inn af mál­inu. Sigrún var settur for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og ákvað að friða hafn­ar­garð­inn þegar fram­kvæmdir stóðu fyrir dyrum á reitnum. Áður hafði Minja­stofnun Íslands beitt skyndi­friðun. Þegar búið var að friða garð­inn í októ­ber síð­ast­liðnum tölu lóð­ar­haf­arnir á reitnum, sem er við hlið Toll­húss­ins, að frið­lýs­ingin myndi valda að lág­marki 2,2 millj­arða króna tjóni. Þá kom strax fram í bréfi lög­manns lóð­ar­hafa til rík­is­ins að þessi upp­hæð yrði sótt úr hendi Minja­stofn­unar, og því myndi tjónið lenda á rík­is­sjóði.

Síðar var gert sam­komu­lag milli Minja­stofn­unar og Land­stólpa þar sem ákveðið var að Land­stólpi myndi færa hafn­ar­garð­inn til þess að geta ráð­ist í fram­kvæmdir, en að honum yrði svo komið fyrir á sama stað. Í fréttum í des­em­ber síð­ast­liðnum kom fram að gerð yrði krafa vegna þessa á ríkið. „Við munum sækja okkar rétt í þessu. Við teljum að hann sé alveg skýr í ljósi þess að þeir frið­uðu garð­inn sem er ekki 100 ára. Þannig að þetta endar á skatt­borg­urum,“ sagði Gísli Steinar Gíslason, for­stjóri Land­stólpa þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár