Landsmenn úr sveit í bæ

Greina má miklar þjóð­fé­lags­breyt­ingar á síð­ustu öld en í byrjun 20. aldar bjó tæp­lega fjórð­ungur Íslend­inga í þétt­býli. Nú er sú tala aftur á móti komin upp í 95 pró­sent.

Mikill meiri­hluti lands­manna býr í dag í þétt­býli, eða 95 pró­sent, en í byrjun síð­ustu aldar var raunin hins vegar tals­vert önnur þegar sama hlut­fall var ein­ungis tæp­lega fjórð­ungur eða 24 pró­sent. Frá þessu greindi Hag­stofan á vef sínum í gær.

Breyt­ingin er síðan, sam­kvæmt Hag­stof­unni, enn meiri sé farið aðeins lengra aftur í tím­ann og miðað við árið 1880 en þá var hlut­fall þeirra sem bjuggu í þétt­býli aðeins 11 pró­sent.

Þá kemur fram að fjöldi þeirra sem byggðu landið hafi á þeim tíma verið eðli máls­ins sam­kvæmt mun minni en hann er í dag og byggða­kjarnar að sama skapi færri. Þannig hafi þeir sem bjuggu í þétt­býli árið 1880 verið um 8.600 manns í 47 byggða­kjörnum, bæði smáum og stórum, en um 64.000 manns í strjál­býli sem í flestum til­fellum voru bæir í sveit.

„Fram til alda­móta 1900 var þétt­býl­is­myndun nokkuð hröð sem sést á því að íbúum í alls 66 þétt­býl­is­kjörnum hafði þá fjölgað í 18.800. Á sama tíma hafði íbúum í strjál­býli fækkað að höfða­tölu, voru þá komnir niður í 59.400, og hlut­fallið orðið 76 pró­sent af lands­mönnum. Þegar kom fram á árið 1922 var svo komið að meiri­hluti lands­manna bjó í þétt­býl­is­kjörnum en þá voru þétt­býl­iskjarn­arnir 74 að tölu,“ segir á vef Hag­stof­unnar.

Þróunin hélt áfram hægt og bítandi

Fram kemur hjá Hag­stof­unni að miklar þjóð­fé­lags­breyt­ingar á Íslandi felist á bak við þessar tölur sem meðal ann­ars fólu í sér búferla­flutn­inga úr sveitum lands­ins til þétt­býl­is­staða víðs vegar um land jafn­hliða umbreyt­ingu atvinnu­lífs­ins frá land­bún­aði, sem aðal­at­vinnu­vegar lands­manna í gegnum ald­irnar, yfir í sjáv­ar­út­veg, iðnað og þjón­ustu.

Þessar mann­fjölda­breyt­ingar og þróun atvinnu­lífs hafi svo haldið áfram næstu ára­tug­ina og árið 1982 hafi verið svo komið að rúm­lega 90 pró­sent lands­manna bjó í þétt­býli, eða 212.400 manns, og hafi fjöldi þétt­býl­iskjarna verið kom­inn í 101. Þar með hafi tala íbúa í strjál­býli verið komin undir 10 pró­senta mörkin og íbúa­fjöld­inn þar um 23.000. Á síð­ustu ára­tugum hafi þró­unin hald­ist áfram hægt og bít­andi og séu þétt­býl­is­búar í dag um 95 pró­sent lands­manna í 106 þétt­býl­is­kjörnum á móti 5 pró­sent íbúum sem búa í strjál­býli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár