24 börn yngri en sex ára með COVID-19

Tíu börn á aldr­inum 0-5 ára greindust með kór­ónu­veiruna í gær. Samtals eru því 24 börn í þessum ald­urs­hópi í ein­angrun með COVID-19. Einn ein­stak­lingur á átt­ræð­is­aldri greind­ist einnig í gær.

Á þriðja tug barna yngri en sex ára eru í einangrun á Íslandi.
Á þriðja tug barna yngri en sex ára eru í ein­angrun á Íslandi. Mynd: EPA

Samtals eru 24 börn fimm ára og yngri með COVID-19 á land­inu. Tíu börn í þessum ald­urs­hópi greindust með veiruna í gær. Eitt þeirra er ekki orðið eins árs. Þá greind­ist einn ein­stak­lingur yfir sjö­tugu með sjúk­dóm­inn í gær og sjö manns yfir sex­tugu eru nú í ein­angrun.

Þetta má lesa út úr tölum sem birtar eru á vefnum covid.is.

Í gær greind­ist 21 inn­an­lands­smit. Sam­an­lagt hafa því 65 greinst með veiruna frá því á föstu­dag. Smitin eru meðal ann­ars rakin til tveggja ein­stak­linga sem fóru ekki að reglum í sinni sótt­kví eftir komu til lands­ins og hóp­sýk­ing á leik­skóla í Reykja­vík er meðal ann­ars þannig til komin.

Alls eru 113 ein­stak­lingar á land­inu með virkt smit og í ein­angrun. 41 er yngri en átján ára.

Hið breska afbrigði veirunnar hefur verið alls­ráð­andi hér á landi und­an­farnar vikur. Í öllum þeim til­vikum sem smit hafa greinst inn­an­lands hefur verið hægt að rekja þau til landamær­anna.

Alma Möller land­læknir hefur bent á að breska afbrigðið hagi sér að ákveðnu leyti nokkuð öðru vísi en fyrri afbrigði. Það leggst í fyrsta lagi frekar á yngra fólk en þau sem við höfum hingað til glímt við og í öðru lagi er það meira smit­andi. En fleira við veirur af þessu til­tekna afbrigði vekur áhyggjur.

„Við höfum séð í auknum mæli að fólk er nei­kvætt í fyrri skimun en jákvætt í þeirri seinni. Hlut­fallið þar hefur breyst,“ sagði Alma á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í gær um grein­ingar á landa­mærum. „Við höfum líka dæmi um það að fólk var búið að fara í sýna­töku og fá nei­kvætt þó að það væri með ein­kenni. Við erum enn að læra á þetta nýja breska afbrigði og höfum jafn­vel á til­finn­ing­unni að fólk sé að grein­ast seinna.“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir vakti athygli á því á upp­lýs­inga­fund­inum í gær að þrátt fyrir að fólk væri oftar að grein­ast í seinni landamæra­skimun en áður væru aðeins örfá dæmi þess að ein­stak­lingar væru að grein­ast eftir báðar skiman­irnar. „Það er telj­andi á fingrum ann­arrar handar.“ Sagðist hann því ekki telja rétt að lengja sótt­kví, sem nú er fimm dagar, á milli skim­ana. „En maður getur vel séð fyrir sér hvernig það geti verið að svona margir sem fram­vísi nei­kvæðu PCR-prófi en grein­ast engu að síður með veiruna á landa­mærum, annað hvort í fyrri eða seinni skimun.“ Um 70 pró­sent þeirra sem eru að grein­ast við landa­mærin hafa sýnt nei­kvætt PCR-próf, þ.e. höfðu ekki greinst í sýna­töku á upp­runa­stað.

Fjórðungur fullorðinna bólusettur

Um 70.500 manns á Íslandi hafa fengið að minnsta kosti annan skammt­inn af bólu­efni sínu. Það þýðir að um fjórð­ungur allra eldri en sextán ára, hefur fengið bólu­efni. Samkvæmt bólu­setn­ing­ar­daga­tali stjórn­valda, sem upp­fært var í síð­ustu viku, eiga allir full­orðnir að verða búnir að fá að minnsta kosti fyrri spraut­una fyrir júlí­lok.

Enn eru engin áform um að bólu­setja börn. Til­raunir eru hafnar á bólu­efnum á börnum, m.a. í Ísrael.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár