Íslendingar skráðir fyrir 83 prósentum af hótelgistingu í júní

Íslend­ingar voru skráðir fyrir 74.800 gistin­óttum á hót­elum í júní síð­ast­liðnum en erlendir ferða­menn voru skráðir fyrir 15.100. Í júní voru 32 hótel enn lokuð og heild­ar­fjöldi greiddra gistin­átta dróst saman um 72 pró­sent.

Heild­ar­fjöldi greiddra gistin­átta í júní dróst saman um 72 pró­sent sam­an­borið við sama mánuð í fyrra sam­kvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þar af fækk­aði gistin­óttum á hót­elum um 79 pró­sent og á gisti­heim­ilum um 75 pró­sent. Minni fækkun varð á öðrum teg­undum gisti­staða, sem eru meðal ann­ars far­fugla­heim­ili, orlofs­hús og tjald­svæði. Þar nam fækk­unin 63 pró­sentum.

Greiddar gistinætur ferða­manna á öllum stöðum voru um 263.400 í júní sam­an­borið við 942.700 í sama mán­uði í fyrra. Um 86 pró­sent gistin­átta voru skráðar á Íslend­inga, um 227.000, en um 14 pró­sent á erlenda gesti, um 36.400.

Í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar segir: „Í lok mars tóku mörg hótel þá ákvörðun að loka tíma­bundið og voru enn 32 hótel lokuð í júní. Framboð gisti­rýmis minnk­aði um 24% frá júní 2019, mælt í fjölda hót­el­her­bergja, sem skýrist af lok­unum hót­ela.“

Gistinætur á hót­elum í júní voru 89.900 sem er fækkun um 79 pró­sent frá sama mán­uði í fyrra. Um 16,8 pró­sent gistin­átta á hót­elum voru skráð á erlenda ferða­menn, eða 15.100. Gistinætur Íslend­inga voru 74.800 eða 83,2 pró­sent. Her­bergj­a­nýt­ing á hót­elum í júní síð­ast­liðnum var 20,5 pró­sent og dróst saman um 51,4 pró­sentu­stig frá því á sama tíma í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár