Þrjúhundruð manns töldust heimilislaus í Reykjavík á liðnu hausti

Samkvæmt úttekt á stöðu heim­il­is­lausra í höf­uð­borg­inni er rúm­lega helm­ingur þeirra sem telj­ast heim­il­is­lausir með hús­næði. Rúm þrjá­tíu pró­sent til við­bótar nýttu sér neyð­ar­gist­ingu og lít­ill hópur býr við slæmar aðstæður á víða­vangi.

Rúmlega 300 manns töldust heimilislaus í Reykjavíkurborg síðasta haust.
Rúmlega 300 manns töld­ust heim­il­is­laus í Reykja­vík­ur­borg síð­asta haust. Mynd: Bára Huld Beck

Í októ­ber 2021 tald­ist 301 ein­stak­lingur heim­il­is­laus í Reykja­vík­ur­borg, sam­kvæmt úttekt á stöðu heim­il­is­lausra sem fram­kvæmd var á vel­ferð­ar­sviði borg­ar­innar undir lok síð­asta árs.

Þrjú pró­sent hóps­ins, fjórir karlar og fjórar konur, voru ekki með aðgang að hús­næði af ein­hverju tagi og höfð­ust við á víða­vangi. Fimmtán karlar og sjö konur til við­bótar töld­ust í ótryggum hús­næð­is­að­stæðum.

Rúmur helm­ingur hóps­ins eða 54 pró­sent töld­ust í hús­næði sem skil­greint er fyrir heim­il­is­lausa á vegum Reykja­vík­ur­borgar eða á áfanga eða þá í hús­næði með lang­tíma­stuðn­ing. Tæpur þriðj­ungur hóps­ins, eða 31 pró­sent, var í neyð­ar­gist­ingu fyrir heim­il­is­lausa.

Fleiri karlar telj­ast heim­il­is­lausir en konur, en karlar eru 71 pró­sent heild­ar­hóps­ins. Næstum 9 af hverjum 10 heim­il­is­lausum í Reykja­vík­ur­borg eru með íslenskt rík­is­fang og um 71 pró­sent hóps­ins er á aldr­inum 21-49 ára.

Samanburður við úttektir fyrri ára örðugur

Ekki er úti­lokað að heim­il­is­lausir í höf­uð­borg­inni séu enn fleiri en úttektin segir til um, en ein­stak­lingar sem eru heim­il­is­lausir en sækja hvergi þjón­ustu vel­ferð­ar­sviðs í mála­flokki heim­il­is­lausra gætu fallið utan úttekt­ar­innar.

Í skýrslu sem lögð var fram í borg­ar­ráði í gær segir þó að á síð­asta ári hafi verið gerð breyt­ing í skrán­ingum á heim­il­is­lausum í þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar, með mið­lægri skrán­ingu á vegum Vett­vangs- og Ráð­gjafateymi (VoR) í sam­vinnu við lög­reglu, fang­els­is­mála­yf­ir­völd og heil­brigð­is­stofn­anir.

Úttektir á stöðu heim­il­is­lausra hafa áður verið gerðar árin 2009, 2012 og 2017, en þá fóru þær fram með þeim hætti að kann­anir voru sendar á þjón­ustu­mið­stöðvar borg­ar­innar, Rauða kross­inn, Samhjálp, lög­regl­una, Fang­els­is­mála­stofnun og fleiri stofn­anir og sam­tök í sam­fé­lag­inu sem hafa beina snert­ingu við hóp­inn.

[adspot]

Nú er hins vegar komin mið­læg skrán­ing, sem í skýrslu vel­ferð­ar­sviðs er sagt leiða til þess að sviðið hafi nú yfir mun betri og mark­tæk­ari gögnum að ráða um hóp heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir en nokkru sinni fyrr. Þessu er lýst sem „bylt­ingu“ í skýrslu vel­ferð­ar­sviðs.

Með þeim fyr­ir­vara að ekki sé um sam­an­burð­ar­hæfar tölur að ræða hefur þó skráðum heim­il­is­lausum fækkað um 14 pró­sent frá árinu 2017.

Ef horft er lengra aftur hefur fjöldi skráðra heim­il­is­lausra þó auk­ist nokkuð – en árið 2009 var 121 ein­stak­lingur skráður heim­il­is­laus sam­kvæmt könnun vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár