Interpol lýsir eftir forríku forsetadótturinni

Hún gæti verið í Portúgal, þrátt fyrir að yfir­völd hafi fryst eignir hennar, þar á meðal þak­íbúð­ina og sveita­setrið. Svo gæti hún verið ein­hvers staðar allt ann­ars staðar, konan sem var sú rík­asta í Afríku en er nú eft­ir­lýst um allan heim.

Isabel dos Santos er elsta dóttir fyrrverandi forseta Angóla.
Isabel dos Santos er elsta dóttir fyrr­ver­andi for­seta Angóla. Mynd: EPA

Alþjóða­lög­reglan Interpol hefur gefið út hand­töku­skipun á hendur angólska millj­arða­mær­ingnum og fyrr­ver­andi for­seta­dótt­ur­inni Isabel dos Santos. Sak­sókn­ari í Angóla óskaði aðstoðar Interpol við að hafa uppi á, hand­taka og fram­selja kon­una sem er sú rík­asta í Afríku en er sökuð um að hafa safnað auði sínum með glæp­sam­legum hætti.

[adspot]

Dos Santos er sögð búa í heima­land­inu, á Bret­landseyjum og í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum til skiptis. Þá er hún einnig oft sögð dvelja í Portúgal. Þar­lendur fjöl­mið­ill, Lusa, greindi frá tíð­ind­unum um hand­töku­skip­un­ina síð­asta föstu­dag. Í frétt­inni kemur fram að dos Santos, sem er 49 ára gömul, sé eft­ir­lýst fyrir marg­vís­lega meinta glæpi, m.a. fjár­drátt og fjár­svik, pen­inga­þvætti og fyrir að nota sín póli­tísku tengsl sér til fjár­hags­legs fram­dráttar. Hin póli­tísku tengsl eru vissu­lega til staðar því faðir hennar, Jose Eduardo dos Santos var for­seti Angóla í tæpa fjóra ára­tugi, allt frá árinu 1979 og til 2017. Hann tók virkan þátt í bar­áttu Angóla fyrir sjálf­stæði undan stjórn Portú­gala, fór til mennta í Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu, var utan­rík­is­ráð­herra í fyrstu rík­is­stjórn lands­ins og varð annar for­seti hins sjálf­stæða og yfir­lýsta komm­ún­ista­ríkis. Hann lést í sumar, 79 ára að aldri.

[links]Dóttir hans og auga­steinn, Isabel dos Santos, hefur verið ásökuð um svik og spill­ingu árum saman. Núver­andi stjórn­völd lands­ins ásök­uðu hana m.a. árið 2020 um að hafa fært millj­ónir banda­ríkja­doll­ara úr sjóðum rík­is­ins til fyr­ir­tækja sem hún og eig­in­maður hennar áttu stóra hluti í á meðan faðir hennar var for­seti. Þau eru einnig sökuð um að hafa kom­ist yfir hluti í þessum fyrrum rík­is­fyr­ir­tækjum með aðstoð föður síns. Meðal fyr­ir­tækj­anna sem hún er talin hafa hagn­ast á með þessum milli­færslum er olíu­ris­inn Sonangol. Út úr því fyr­ir­tæki er hún svo sögð hafa fært pen­inga á banka­reikn­inga í skatta­skjólum.

Lúanda-skjölin

Dos Santos er umfjöll­un­ar­efni Lúanda-skjal­anna, sem lekið var til Samtaka rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, árið 2020 og fréttir í kjöl­farið birtar upp úr í fjöl­miðlum víða um heim. Helstu nið­ur­stöður þeirra eru að í tvo ára­tugi voru stunduð inn­herj­a­við­skipti sem gerðu Isabel dos Santos að rík­ustu konu Afríku en hið olíu- og dem­ant­sauð­uga Angóla að einu fátæk­asta ríki ver­aldar.

Vefur meira en 400 fyr­ir­tækja og dótt­ur­fyr­ir­tækja í 41 landi tengj­ast dos Santos og eig­in­manni hennar, Sindika Dokolo, þar af eru 94 í skatta­skjólum á borð við Möltu, Máritíus og Hong Kong. Dokolo lést árið 2021 í köf­un­ar­slysi.

Margir fjár­mála­ráð­gjafar og fyr­ir­tæki á Vest­ur­löndum aðstoð­uðu við að færa til pen­inga, stofna félög og end­ur­skoða reikn­inga. Þessir aðilar veittu sumir ráð­gjöf um hvernig væri hægt að skjóta fé undan skatti á meðan aðrir þótt­ust ekki taka eftir neinu mis­jöfnu sem margt benti til að væri í gangi.

Tvö fyr­ir­tæki, PwC og Boston Consulting Group, fengu á árunum 2010-2017 greiddar 5,6 millj­ónir dala fyrir störf sín í þágu fyr­ir­tækja hjón­anna.

Skjölin sýna einnig hvernig Isabel dos Santos keypti banka á meðan aðrar fjár­mála­stofn­anir og trygg­inga­fé­lög neit­uðu að stunda við­skipti við hana því þeim þótti ekki ljóst hvaðan auður hennar kæmi. Að hún hafi ginnt stjórn­völd og stjórn­endur fyr­ir­tækja á Vest­ur­löndum til að setja pen­inga í verk­efni sín og þrýst á upp­bygg­ing­ar­verk­efni sem varð til þess að þús­undir fátækra Angóla­manna misstu heim­ili sín við strönd­ina.

Þá er hún sam­kvæmt skjöl­unum sögð hafa beint hund­ruðum millj­ónum doll­ara sem fengnar voru að láni eða með samn­ingum til eigin fyr­ir­tækja og tengdra aðila, m.a. með því að milli­færa 38 millj­ónir doll­ara frá rík­is­rekna olíu­fyr­ir­tæk­inu Sanangol inn á reikn­ing í Dubaí, aðeins nokkrum klukku­tímum eftir að for­set­inn hafði rekið hana úr starfi stjórn­ar­for­manns.

Dos Santos hefur hingað til neitað því harð­lega að hafa mis­notað sér stöðu sína sem dóttir for­set­ans í fjár­hags­legum til­gangi. Hún hefur í reynd neitað því að hafa gert nokkuð rangt.

[adspot]

Bæði angólsk og portú­gölsk yfir­völd hafa fryst allar eigur og banka­reikn­inga dos Santos um leið og saka­mála­rann­sókn á við­skipta­háttum hennar hófst. Við­skipta­veldi hennar lið­að­ist að mestu í sundur við þetta.

Í fyrra var svo gráu bætt ofan á svart er Pandoru-skjölin voru birt. Samkvæmt þeim er dos Santos og hópur ann­ars áhrifa­fólks í Angóla sökuð um að hafa falið millj­arða doll­ara í skatta­skjólum. Þá ákváðu banda­rísk stjórn­völd að frysta allar eignir og banka­reikn­inga dos Santos og hefja saka­mála­rann­sókn.

Portúgalar drógu landamærin

Angóla er á vest­ur­strönd Afríku og er sjö­unda stærsta land álf­unnar að flat­ar­máli. Landa­mæri þess liggja að Namibíu, Austur-Kongó og Sambíu. Líkt og í mörgum öðrum Afr­íku­löndum voru landa­mærin dregin af nýlendu­herrum, Portú­gölum í þessu til­viki, sem fyrst komu sér þar fyrir á sext­ándu öld. Innan landamær­anna lentu margar og ólíkar þjóðir og er ríkið fékk sjálf­stæði árið 1975 braust út blóðug borg­ara­styrj­öld sem varði í 27 ár. Þúsundir féllu og efna­hagur lands­ins hrundi.

Líkt og oft vill verða komu vest­ræn ríki að átök­unum. Stjórn­ar­her MPLA-flokks­ins, flokks föður dos Santos, naut stuðn­ings Rúss­lands og Kúbu en skæru­liða­hreyf­ing UNITA stuðn­ings Banda­ríkj­anna og Suður-Afríku.

Fædd í Sovétríkjunum

Isabel dos Santos fædd­ist árið 1973 í Aserbaídsjan þaðan sem móðir hennar er og faðir hennar var við nám. Þá var hann skæru­liði og hátt­settur í frels­is­hreyf­ingu Angóla, MPLA. Hreyf­ingin var komm­ún­ísk að upp­lagi og dos Santos hafði verið sendur til Sov­ét­ríkj­anna til verk­fræði­náms.

Móðir hennar var skák­meist­ari og einnig verk­fræði­nemi. Tveimur árum eftir fæð­ingu Isabel fékk Angóla loks sjálf­stæði frá Portú­gölum og fjórum árum síðar, 1979, varð faðir hennar annar for­seti lands­ins og fjöl­skyldan flutti inn í for­seta­höll­ina í höf­uð­borg­inni Lúanda.

Eftir að for­eldrar hennar skildu og landið ólg­aði af átökum flutti hún ásamt móður sinni til London þar sem hún gekk í stúlkna­skóla. Hún var fram­úr­skar­andi nem­andi og lærði síðar raf­magns­verk­fræði í Kings College. Eftir útskrift vann hún í tvö ár hjá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Coopers & Lybrand sem nú heitir PwC.

Náði forskoti í farsímageira

Er borg­ara­stríð­inu var að ljúka snéri hún aftur til Angóla, þá rúm­lega tví­tug, og stofn­aði flutn­inga­fyr­ir­tæki. Það leiddi hana svo út í fjar­skipti, nánar til­tekið í hinn nýtil­komna far­síma­geira. Þar reynd­ist hún hafa veðjað á réttan hest.

Við lok tíunda ára­tug­ar­ins fengu hún og við­skipta­fé­lagar hennar fjar­skipta­leyfi fyrir far­síma í almennu útboði. Dos Santos hefur alla tíð neitað því að hafa kom­ist að þeim kjöt­kötlum vegna klíku­skapar.

Á næstu árum óx við­skipta­veldi hennar hratt og allan tím­ann harð­neit­aði hún því að hafa notið for­skots, beint eða óbeint, vegna föður síns. Í vörnum sínum síð­ustu ár hefur hún alfarið hafnað því að hafa gert nokkuð rangt og minnt á að hún hafi efn­ast með vinnu­semi. Þannig hafi hún til dæmis stofnað Unitel í skrif­stofu­holu fyrir ofan síma­búð sem hún rak og vel­gengni stór­mark­aða hennar hafi verið vegna þess að þar var að finna „besta fisk­borð lands­ins“.

[adspot]

Safnaði auði í tvo áratugi

Er dos Santos var að hefja við­skipta­feril sinn, m.a. með kaupum á bar sem átti eftir að verða einn sá vin­sæl­asti á vest­ur­strönd Afríku, var Angóla að sigla út úr gríð­ar­legum efna­hags­þreng­ingum og inn í vel­sæld vegna hækk­andi olíu­verðs á heims­vísu. Það reynd­ist henni per­sónu­lega happa­drjúgt en lítið af olíu­auð­inum skil­aði sér hins vegar til almennra borg­ara lands­ins.

Auð sinn hefur hún kom­ist yfir á síð­ustu tveimur ára­tugum og það tíma­bil í sögu Angóla hefur verið róstu­samt með ein­dæmum. Borg­ara­styrj­öld­inni lauk, það fjar­aði undan hinu arð­sama olíu­æv­in­týri, og faðir hennar José Eduardo dos Santos, einn þaul­setn­asti for­seti Afríku fyrr og síðar, neydd­ist til að segja af sér.

Á þessum árum hafði hópur Angóla­manna efn­ast veru­lega þó lang­sam­lega mest for­seta­dóttirin Isabel dos Santos. Eignir hennar voru sam­kvæmt Forbes metnar á 2,2 millj­arða Banda­ríkja­dala árið 2020, yfir 280 millj­arða íslenskra króna. Á sama tíma þurfti hins vegar meiri­hluti almenn­ings í Angóla að lifa af tveimur doll­urum, um 250 krónum, á dag.

Innviðir í molum

Innviðir Angóla eru enn bág­bornir þrátt fyrir að efna­hag­ur­inn hafi rétt úr kútnum eftir borg­ara­styrj­öld­ina og greiður aðgangur að lánum til upp­bygg­ingar, m.a. frá Kína, hafi verið fyrir hendi. Vegir eru slæmir og raf­orku­kerfið ófull­nægj­andi.

Á meðan dos Santos hélt miklar veislur fyrir fólk úr hinni nýju milli­stétt, þar sem engu var til sparað, bjó mik­ill meiri­hluti Angóla­manna við sára fátækt, mat­ar­skort, vondan húsa­kost og tak­mark­aðan og oft nær engan aðgang að hreinu vatni.

Snekkjur, lúxusíbúðir og listaverkasafn

Dos Santos og eig­in­mað­ur­inn Dokolo reyndu ekk­ert að fela sinn rán­dýra lífs­stíl – frekar má segja að þau hafi flaggað honum. Dokolo safn­aði til dæmis sport­bílum og hann birti myndir af risa­snekkju þeirra, Hayken, á sam­fé­lags­miðlum. Lúx­uslífið tók á sig ýmsar birt­ing­ar­myndir. Þau áttu þak­íbúð í portú­gal­skri borg og sveita­setur við strönd­ina. Þá eru þau talin hafa átt að minnsta kosti þrjár fast­eignir í London til við­bótar við lúxus­í­búð í Monte Carlo.

Dokolo safn­aði líka lista­verkum og er tal­inn hafa átt heims­ins stærsta safn afrískra verka. Þá átti hann einnig verk eftir Andy Warhol og fleiri þekkta lista­menn. Hann fædd­ist líkt og eig­in­konan með silf­ur­skeið í munni. Faðir hans var mik­ill við­skipta­jöfur í Kinshasa í Austur-Kongó en sjálfur ólst hann aðal­lega upp í Belgíu og Frakk­landi.

„Faðir Isabel dos Santos, José Eduardo, lagði grunn­inn að gríð­ar­legum auð­æfum hennar með því að fá henni stjórn yfir miklum nátt­úru­auð­lindum Angóla á meðan millj­ónir landa hennar bjuggu við sult,“ sagði í sam­an­tekt blaða­mannateym­is­ins sem afhjúpaði spill­ing­una með Lúanda-skjöl­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár