Auður ríkustu konu Afríku byggður á arðráni fátækrar þjóðar

Frá Angóla og víða um Afríku, Evrópu og Mið-Aust­ur­lönd, liggur flókið net fjár­fest­inga í bönkum, olíu, sem­enti, fjar­skiptum, fjöl­miðlum og demöntum. Ríkasta kona Afríku seg­ist hafa byggt þetta ævin­týra­lega við­skipta­veldi sitt upp á eigin verð­leikum.

Samkvæmt Lúanda-skjöl­unum, sem hófu að birt­ast í fjöl­miðlum víða um heim fyrir nokkrum dögum, færði kaup­sýslu­konan Isabel dos Santos, elsta dóttir José Eduardo dos Santos, fyrr­ver­andi for­seta Angóla, hund­ruð millj­óna doll­ara af almannafé út úr einu fátæk­asta landi heims og inn í völ­und­ar­hús fyr­ir­tækja og félaga sem mörg hver eru skráð í skatta­skjólum.

Skjölin sýna einnig hvernig þekkt fjár­mála­fyr­ir­tæki á Vest­ur­löndum, lög­fræð­ingar, end­ur­skoð­endur og emb­ætt­is­menn – allt frá Lissabon til Lundúna og Lúanda, frá Möltu til Dúbaí – aðstoð­uðu við svikin. Banda­rísk ráð­gjafa­fyr­ir­tæki, m.a. Boston Consulting Group, McKinsey & Company og PricewaterhouseCoopers (PwC) eru m.a. sögð hafa aðstoðað for­set­ann fyrr­ver­andi og dóttur hans við að reka rík­is­ol­íu­fyr­ir­tækið Sonangol með óheið­ar­legum hætti og nota hagn­að­inn til per­sónu­legra nota og fjár­mögn­unar marg­vís­legra verk­efna í Frakk­landi og Sviss.

Stjórn­völd í Angóla hafa nú fryst eignir dos Santos og eig­in­manns hennar, Sindika Dokolo. Dos Santos hafnar alfarið ásök­unum um spill­ingu og að hafa notið frænd­hygli og seg­ist fórn­ar­lamb póli­tískra norna­veiða. „Fjöl­miðlar kalla mig prinsessu. Ég þekki ekki margar prinsessur sem fara fram úr rúm­inu og byggja upp keðju stór­mark­aða,“ sagði hún í við­tali við Financial Times.

Portúgalar drógu landamærin

Angóla er á vest­ur­strönd Afríku og er sjö­unda stærsta land álf­unnar að flat­ar­máli. Landa­mæri þess liggja að Namibíu, Austur-Kongó og Sambíu. Líkt og í mörgum öðrum Afr­íku­löndum voru landa­mærin dregin af nýlendu­herrum, Portú­gölum í þessu til­viki, sem fyrst komu sér þar fyrir á sext­ándu öld. Innan landamær­anna lentu margar og ólíkar þjóðir og er ríkið fékk sjálf­stæði árið 1975 braust út blóðug borg­ara­styrj­öld sem varði í 27 ár. Þúsundir féllu og efna­hagur lands­ins hrundi.

Líkt og oft vill verða komu vest­ræn ríki að átök­unum. Stjórn­ar­her MPLA-flokks­ins, flokks föður dos Santos, naut stuðn­ings Rúss­lands og Kúbu en skæru­liða­hreyf­ing UNITA stuðn­ings Banda­ríkj­anna og Suður-Afríku.

Fædd í Sovétríkjunum

Isabel dos Santos fædd­ist árið 1973 í Aserbaídsjan þaðan sem móðir hennar er og faðir hennar var við nám. Þá var hann skæru­liði og hátt­settur í frels­is­hreyf­ingu Angóla, MPLA. Hreyf­ingin var komm­ún­ísk að upp­lagi og dos Santos hafði verið sendur til Sov­ét­ríkj­anna til verk­fræði­náms.

Móðir hennar var skák­meist­ari og einnig verk­fræði­nemi. Tveimur árum eftir fæð­ingu Isabel fékk Angóla loks sjálf­stæði frá Portú­gölum og fjórum árum síðar, 1979, varð faðir hennar annar for­seti lands­ins og fjöl­skyldan flutti inn í for­seta­höll­ina í höf­uð­borg­inni Lúanda.

Eftir að for­eldrar hennar skildu og landið ólg­aði af átökum flutti hún ásamt móður sinni til London þar sem hún gekk í stúlkna­skóla. Hún var fram­úr­skar­andi nem­andi og lærði síðar raf­magns­verk­fræði í Kings College. Eftir útskrift vann hún í tvö ár hjá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Coopers & Lybrand sem nú heitir PwC.

Náði forskoti í farsímageira

Er borg­ara­stríð­inu var að ljúka snéri hún aftur til Angóla, þá rúm­lega tví­tug, og stofn­aði flutn­inga­fyr­ir­tæki. Það leiddi hana svo út í fjar­skipti, nánar til­tekið í hinn nýtil­komna far­síma­geira. Þar reynd­ist hún hafa veðjað á réttan hest.

Við lok tíunda ára­tug­ar­ins fengu hún og við­skipta­fé­lagar hennar fjar­skipta­leyfi fyrir far­síma í almennu útboði. Dos Santos hefur alla tíð neitað því að hafa kom­ist að þeim kjöt­kötlum vegna klíku­skapar. Fjar­skipta­fyr­ir­tæki hennar, Unitel, er nú það stærsta í land­inu.

Allar götur síðan hefur við­skipta­veldi hennar vaxið, hrein­lega blásið út, og allan tím­ann hefur hún harð­neitað því að hafa notið for­skots, beint eða óbeint, vegna föður síns. Í vörnum sínum síð­ustu daga, sem hófust áður en Lúanda-skjölin voru birt, hefur hún alfarið hafnað því að hafa gert nokkuð rangt og minnt á að hún hafi efn­ast með vinnu­semi. Þannig hafi hún til dæmis stofnað Unitel í skrif­stofu­holu fyrir ofan síma­búð sem hún rak og vel­gengni stór­mark­aða hennar hafi verið vegna þess að þar var að finna „besta fisk­borð lands­ins“.

Safnaði auði í tvo áratugi

Er dos Santos var að hefja við­skipta­feril sinn, m.a. með kaupum á bar sem átti eftir að verða einn sá vin­sæl­asti á vest­ur­strönd Afríku, var Angóla að sigla út úr gríð­ar­legum efna­hags­þreng­ingum og inn í vel­sæld vegna hækk­andi olíu­verðs á heims­vísu. Það reynd­ist henni per­sónu­lega happa­drjúgt en lítið af olíu­auð­inum skil­aði sér hins vegar til almennra borg­ara lands­ins.

Isobel dos Santos hefur verið mjög sýnileg og fyrirferðarmikil samhliða því að hún hefur safnað að sér miklum auð.
Isobel dos Santos hefur verið mjög sýni­leg og fyr­ir­ferð­ar­mikil sam­hliða því að hún hefur safnað að sér miklum auð.

Auð sinn hefur hún kom­ist yfir á síð­ustu tveimur ára­tugum og það tíma­bil í sögu Angóla hefur verið róstu­samt með ein­dæmum. Borg­ara­styrj­öld­inni lauk, það fjar­aði undan hinu arð­sama olíu­æv­in­týri, og José Eduardo dos Santos, einn þaul­setn­asti for­seti Afríku fyrr og síðar, neydd­ist til að segja af sér for­seta­emb­ætti.

Á þessum árum hafði hópur Angóla­manna efn­ast veru­lega þó lang­sam­lega mest for­seta­dóttirin Isabel dos Santos. Eignir hennar eru sam­kvæmt Forbes nú metnar á 2,2 millj­arða Banda­ríkja­dala, yfir 273 millj­arða íslenskra króna. Á sama tíma þarf hins vegar meiri­hluti almenn­ings í Angóla að lifa af tveimur doll­urum, um 250 krónum, á dag.

Innviðir í molum

Innviðir Angóla eru enn bág­bornir þrátt fyrir að efna­hag­ur­inn hafi rétt úr kútnum eftir borg­ara­styrj­öld­ina og greiður aðgangur að lánum til upp­bygg­ingar, m.a. frá Kína, hafi verið fyrir hendi. Vegir eru slæmir og raf­orku­kerfið ófull­nægj­andi.

Á meðan dos Santos hélt miklar veislur fyrir fólk úr hinni nýju milli­stétt, þar sem engu var til sparað, bjó mik­ill meiri­hluti Angóla­manna við sára fátækt, mat­ar­skort, vondan húsa­kost og tak­mark­aðan og oft nær engan aðgang að hreinu vatni.

Snekkjur, lúxusíbúðir og listaverkasafn

Dos Santos og eig­in­mað­ur­inn Dokolo reyndu ekk­ert að fela sinn rán­dýra lífs­stíl – frekar má segja að þau hafi flaggað honum. Dokolo safnar til dæmis sport­bílum og hann hefur birt myndir af risa­snekkju þeirra, Hayken, á sam­fé­lags­miðlum. Lúx­uslífið tók á sig ýmsar birt­ing­ar­myndir. Í Portúgal eiga hjónin þak­íbúð í háhýsi og sveita­seitur við strönd­ina. Þá eru þau talin eiga þrjár fast­eignir í London til við­bótar við lúxus­í­búð í Monte Carlo.

Dokolo safnar lista­verkum og er tal­inn eiga heims­ins stærsta safn afrískra verka. Þá á hann einnig verk eftir Andy Warhol og fleiri þekkta lista­menn. Hann fædd­ist líkt og eig­in­konan með silf­ur­skeið í munni. Faðir hans var mik­ill við­skipta­jöfur í Kinshasa í Austur-Kongó en sjálfur ólst hann aðal­lega upp í Belgíu og Frakk­landi.

Pabbi rétti henni stjórnartaumana

Árið 2016 vék for­set­inn José Eduardo dos Santos allri stjórn rík­is­ol­íu­fyr­ir­tæk­is­ins Sonangol og skip­aði dóttur sína, Isabel, stjórn­ar­for­mann. Hún sat þó ekki lengi á þeim stóli því um árið síðar lét eft­ir­maður föður hennar í emb­ætti, João Lourenço, hana fjúka. Hann sagði brott­ví­k­ing­una hluta af her­ferð sinni gegn spill­ingu í land­inu en dos Santos segir hann í per­sónu­legri her­ferð gegn sér.

Dos Santos lifði hátt árum saman og blandaði geði við fræga og valdamikla fólkið. Hér sést tíst tónlistarkonunnar Nicki Minaj frá desember 2015, þegar hún hélt tónleika í Angóla.
Dos Santos lifði hátt árum saman og bland­aði geði við fræga og valda­mikla fólkið. Hér sést tíst tón­list­ar­kon­unnar Nicki Minaj frá des­em­ber 2015, þegar hún hélt tón­leika í Angóla.

Hálf­systk­ini dos Santos hafa einnig verið tengd spill­ingu. Systur hennar, Welwitschia dos Santos, var bolað út af angólska þing­inu. Hún sagði leyni­þjón­ustu lands­ins áreita sig í sífellu og flúði til Bret­lands. Bróðir þeirra, José Filomeno dos Santos, hefur verið ákærður fyrir spill­ingu og rétt­ar­höldin standa nú yfir. Faðir þeirra, for­set­inn fyrr­ver­andi, er í Barcelona og sagður alvar­lega veikur.

Lagði grunn að gífurlegum auðæfum dótturinnar

Sér­fræð­ingar sem blaða­mannateymið ræddi við segja að end­ur­skoð­endur, lög­fræð­ingar og ráð­gjafar séu í lyk­il­hlut­verki þegar komi að pen­inga­þvætti í skatta­skjólum, að skjóta fé undan skatti og í spill­ingu innan þess opin­bera sem eykur fjár­hags­legt ójafn­rétti og grefur undan lýð­ræði um allan heim.

Jose Eduardo dos Santos, fyrrverandi forseti Angóla. Dóttir hans Isabel sést fyrir aftan hann.
Jose Eduardo dos Santos, fyrr­ver­andi for­seti Angóla. Dóttir hans Isabel sést fyrir aftan hann.

„Faðir Isabel dos Santos, José Eduardo, lagði grunn­inn að gríð­ar­legum auð­æfum hennar með því að fá henni stjórn yfir miklum nátt­úru­auð­lindum Angóla á meðan millj­ónir landa hennar bjuggu við sult,“ segir í sam­an­tekt blaða­mannateym­is­ins.

Segist vera blóraböggull

Viðbrögð Isabel dos Santos við upp­ljóstr­unum blaða­mann­anna hafa m.a. verið þau að segj­ast hafa verið gerð að blóra­böggli í póli­tískum til­gangi. Þá segir hún dóm­stóla Angóla spillta og hlut­dræga. Hún hefur verið búsett í London frá árinu 2018 en nú herma fréttir að hún ætli að flytja til Dubaí. Ferðinni er að hennar sögn ekki heitið til Angóla í bráð. „Því að ástandið í Angóla núna er óör­uggt. Glæpa­tíðni er há, þar eru framin mörg rán og mörg morð. Landið er ekki öruggur staður.“

Rann­sókn­ar­blaða­menn­irnir segja hins vegar Lúanda-skjölin varpa ljósi á umfangs­mikil við­skipti dos Santos í orku­geir­anum, fjár­mála­líf­inu, fjar­skiptum, demöntum, smá­sölu, fjöl­miðlum og fleiru. Fjöl­skyldan hafi notað aflands­fé­lög til að kom­ast yfir marg­vís­lega starf­semi á Vest­ur­löndum sem og lifa lúx­us­lífi sem aðrir Angóla­menn gátu ekki einu sinni látið sig dreyma um. „Í stuttu máli er Lúanda-lek­inn saga inn­herj­a­við­skipta á epískum skala.“

Bankareikningar frystir í Angóla vegna Samherjamálsins

Spill­ing­ar­mál í Angóla teygðu anga sína til Íslands í fyrra þegar banka­reikn­ingar Victória de Barros Neto, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Angóla, eig­in­manns hennar og barna voru frystir í des­em­ber. Enn fremur var saka­mál höfðað á hendur henni.

Ástæðan er ætluð þátt­taka hennar í Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða. Í umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar um málið, sem var birt 12. nóv­em­ber 2019, kom meðal ann­ars fram að ­Sam­herji lægi undir grun um að hafa greitt mútur til að tryggja aðgengi að ódýrum kvóta í Namib­íu og Angóla.

João de Barros, sonur angólska ráðherrans, Antonio, ráðgjafi sama ráðherra, Tamson Hatuikulipi, Þorsteinn Már Baldvinsson, þá forstjóri Samherja, James Hatuikulipi og Sacky Shanghala í Hafnarfjarðarhöfn í nóvember 2013.
João de Barros, sonur angólska ráð­herr­ans, Antonio, ráð­gjafi sama ráð­herra, Tamson Hatuikulipi, Þor­steinn Már Bald­vins­son, þá for­stjóri Samherja, James Hatuikulipi og Sacky Shang­hala í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn í nóv­em­ber 2013.

De Barros Neto á að hafa leikið hlut­verk í athæfi sem fól í sér mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatt­svik. Á meðal þeirra sem eiga að hafa notið góðs af greiðslum til sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi er João de Barros, einn barna ráð­herr­ans fyrr­ver­andi. Hann hefur meðal ann­ars heim­sótt Sam­herja til Íslands. ­

Viðræður hafa staðið yfir milli angól­skra og namibískra stjórn­valda um lög­sögu í mál­inu, þar sem að stjórn­ar­skrá Angóla heim­ili ekki fram­sal á rík­is­borg­urum lands­ins til ann­ars lands.

De Barros Neto var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra er José Eduardo dos Santos, faðir Isabel dos Santos, var for­seti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár