Vilja að Alþingi fordæmi tilskipun Trump gegn múslimum

Sjö þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu.

Sjö þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar vilja að Alþingi for­dæmi harð­lega til­skipun Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem bann­aði rík­is­borg­urum sjö ríkja að ferð­ast til Banda­ríkj­anna. Þing­menn­irnir lögðu fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þetta í dag.

Þing­menn­irnir eru Logi Ein­ars­son, Oddný G. Harð­ar­dóttir og Guðjón Brjáns­son, þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­kona VG og Smári McCarthy, Viktor Orri Val­garðs­son og Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­menn Pírata.

Hinn 27. jan­úar síð­ast­lið­inn gaf for­seti Banda­ríkj­anna út til­skipun þess efnis að fólki frá sjö ríkjum, Sýrlandi, Írak, Íran, Jemen, Lýbíu, Sómalíu og Súdan, væri óheim­ilt að koma inn í landið. Til­skip­unin var felld úr gildi eftir að alrík­is­dóm­stóll í Washingtonríki dæmdi gegn henni, en málið er í áfrýj­un­ar­ferli.

„Til­skip­unin er for­dæma­laus og lýsir mann­fyr­ir­litn­ingu, bygg­ist á for­dómum og grefur undan mann­rétt­indum og þeim lýð­ræð­is­legu gildum sem almennt eru við­ur­kennd í vest­rænum lýð­ræð­is­ríkjum. Þá er hún fremur fallin til að kynda undir ófriði en tryggja öryggi. Zeid bin Ra'ad Zeid al-Hussein, yfir­maður mann­rétt­inda­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, hefur sagt aðgerð­ina ólög­lega og setta fram af illum hug. Með henni fari að auki fjár­munir í vaskinn sem ella gætu nýst í bar­áttu gegn hryðju­verkum,“ segir í grein­ar­gerð­inni með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár