Sigríður Dögg nýr formaður Blaðamannafélags Íslands

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir sigr­aði Heimi Má Pét­urs­son í for­manns­kjöri.

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, frétta­maður á RÚV, sigr­aði í kjöri til for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands í kosn­ingu sem lauk á mið­nætti.


Sigríður fékk 171 atkvæði eða 54,6 pró­sent greiddra atkvæða. Heimir Már Pét­urs­son, frétta­maður á Stöð 2, Bylgj­unni og Vísi, fékk 130 atkvæði eða 41,5 pró­sent greiddra atkvæða. Auðir seðlar voru 12 eða 3,8 pró­sent atkvæða. Alls voru 553 á kjör­skrá og atkvæði greiddu 313 þannig að kjör­sókn var 56,6 pró­sent.

Sigríður hefur unnið við blaða- og frétta­mennsku frá árinu 1999 þegar hún lauk námi í hag­nýtri fjöl­miðlun og hóf störf á Morg­un­blað­inu. Þar var hún fyrst fast­ráðin og síðan laus­ráðin sem frétta­rit­ari í London til árs­ins 2002.

Í London vann hún við fjöl­miðla og almanna­tengsl þangað til hún kom aftur heim til Íslands árið 2004 og hóf störf á Frétta­blað­inu þar sem hún starf­aði til árs­byrj­unar 2007. Þá stofn­aði hún og eig­in­maður hennar, Valdimar Birg­is­son, viku­blaðið Krónik­una. Í fram­hald­inu fór hún til starfa á DV en síðan í almanna­tengsl hjá Mos­fellsbæ, stofn­aði eigið almanna­tengsla­fyr­ir­tæki og fór loks á Frétta­tím­ann þar sem hún varð rit­stjóri til árs­ins 2014. Eftir nokk­urra ára hlé frá fjöl­miðla­störfum hóf hún störf sem frétta­maður hjá RÚV árið 2017.

Hjálmar Jónsson, sem verið hefur for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands frá árinu 2010, til­kynnti í haust að hann myndi ekki bjóða sig fram að nýju. Hann hefur einnig verið fram­kvæmda­stjóri félags­ins àrum saman en Sigríður sagði á fram­boða­fundi í síð­ustu viku að hún vildi að það starf yrði aug­lýst laust til umsóknar næði hún kjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár