Sigmundur Davíð til Líbanon að kynna sér aðstæður flóttamanna

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er á leið til Líbanon, þar sem hann ætlar að kynna sér aðstæður flótta­manna og starf stofn­ana Sam­ein­uðu þjóð­anna og Rauða kross­ins á svæð­inu. Síðar í vik­unni fer hann svo til London á sér­stakan leið­toga­fund um mál­efni Sýrlands.

„For­sæt­is­ráð­herra mun meðal ann­ars heim­sækja Flótta­manna­hjálp SÞ (UNHCR) og Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð SÞ (UNRWA), sam­ræm­ing­ar­skrif­stofu SÞ (OCHA), skrif­stofu sér­staks sam­ræm­ing­ar­að­ila SÞ í Líbanon (UNSCOL) og funda meðal ann­ars með yfir­mönnum þess­ara stofn­ana á svæð­inu. Þá mun for­sæt­is­ráð­herra heim­sækja flótta­manna­búðir á vegum UNHCR og búðir fyrir Palest­ínu­flótta­menn á vegum UNRWA,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. 

Sig­mundur mun einnig funda með fram­kvæmda­stjóra og öðrum full­trúum Rauða kross­ins í Líbanon og heim­sækja verk­efnið Heilsu­gæsla á hjólum, sem Íslend­ingar hafa styrkt.

Hann mun einnig funda með for­sæt­is­ráð­herra Líbanon og for­seta líbanska þings­ins.

Leið­toga­fund­inn um mál­efni Sýrlands í London sækir for­sæt­is­ráð­herra í boði for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Þýska­lands, Noregs og Kúveit.

„Á fund­inum verða meðal ann­ars til umfjöll­unar fram­lög ríkja heims til að styðja við flótta­manna­vand­ann í lönd­unum í kring um Sýrland, mögu­leikar á efna­hags- og atvinnu­upp­bygg­ingu í Sýrlandi og stuðn­ingur við menntun innan Sýrlands og meðal flótta­manna í nágranna­löndum þess. For­sæt­is­ráð­herra mun á fund­inum kynna fram­lag Íslands til aðstoðar við flótta­menn í nágranna­löndum Sýrlands fyrir árin 2015-16.“ Í tengslum við leið­toga­fund­inn mun Sig­mundur Davíð einnig funda með for­sæt­is­ráð­herrum Norð­ur­landa í London um fólks­flutn­inga­vand­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár