Dagur gagnrýnir „aðgerða- og áhugaleysi“ Ragnheiðar Elínar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ráðherra ferða­mála virð­ist ekki nenna að reka af sér slyðru­orðið og tryggja að sveit­ar­fé­lög fái hlut­deild í tekjum af ferða­fólki — því það snú­ist ein­ungis um millj­arð á ári!“ skrifar Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur á Facebook-síðu sína í dag. Dagur krækir í frétt af við­tali við Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, í þætt­inum Þjóð­braut á Hring­braut þar sem hún seg­ist ekki vilja fara frek­ari tekju­leiðir stjórn­valda til að styðja við ferða­þjón­ust­una.

Ragn­heiður Elín sagði í við­tal­inu að í sam­heng­inu væri millj­arður „baunir“ við þær tekjur sem fást af ferða­fólki. Dagur spyr í færslu sinni hvort þarna sé komin ástæðan fyrir „algeru aðgerða- og áhuga­leysi ráð­herra við að koma til móts við þá eðli­legu kröfu að gistin­átta­gjald renni til sveit­ar­fé­laga“.

Mikið hefur verið rætt um aðkomu rík­is­ins að upp­bygg­inu inn­viða í ferða­þjón­ustu, hvort sem það teng­ist sal­ernum eða annarri aðstöðu fyrir ferða­menn á vin­sælum ferða­manna­stöðum. Ragn­heiður Elín segir virð­is­auka­skatts­kerfið duga til að tryggja rík­is­sjóði tekjur af ferða­þjón­ustu. Tekjur af gistin­átta­gjaldi eru 250 millj­ónir króna á ári og renna þær beint í rík­is­sjóð en ekki til sveit­ar­fé­laga. Ef hund­rað króna gistin­átta­gjald yrði fjór­faldað yrðu tekj­urnar millj­arður. „Millj­arður er líka baunir í sam­hengi við allar þær tekjur sem fást af ferða­fólki,“ er haft eftir Ragn­heiði Elínu í frétt Hring­brautar.

Dagur segir að fyrir millj­arð á ári mætti gera „gagn­skör í upp­bygg­ingu inn­viða, einsog sal­erna, umhirðu og við­haldi, einsog hreinsun og mal­biks­fram­kvæmdir, þar sem þörfin er brýn víða um land vegna auk­ins álags og straums ferða­manna“.

„Ráðherra gerir illt verra og hælist um og segir að allar kistur séu fullar af gulli hjá rík­inu. Það er í það minnsta ljóst að Ragn­heiður Elín ætlar að klára ráð­herra­tíð sína án þess að gera neitt í þessu,“ skrifar Dagur. „Afrakstur heils kjör­tíma­bils: Inn­við­ina vantar víða, aðgerð­ar­leysið er algert og stuðn­ingur við sveit­ar­fé­lög í þessum mik­il­vægu verk­efnum eng­inn.?“

Borg­ar­ráð hefur skorað á Stjórn­stöð ferða­mála að beita sér fyrir að hludeild af tekjum af virð­is­auka­skatti, gistin­átta­gjaldi og öðrum sköttum af ferða­fólki renni til sveit­ar­fé­laga. „Augljóst er að sveit­ar­fé­lög um allt land verða fyrir marg­vís­legum auknum kostn­aði vegna umhirðu og aðstöðu­sköp­unar, upp­bygg­ingar inn­viða og slits á vegum,“ segir í álykt­un­inni sem afgreidd var úr borg­ar­stjórn 5. apríl síð­ast­lið­inn.

„Mál­flutn­ingur ráð­herra dregur ein­vörð­ungu fram hversu ósann­gjarnt er að sveit­ar­fé­lög beri fyrst og fremst kostnað en njóti í miklu minna mæli ábata af auk­inni ferða­þjón­ustu en ríkið,“ segir einnig í álykt­un­inni. Reykja­vík er fjöl­sótt­asti ferða­manna­staður lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár